Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Page 31

Skessuhorn - 10.05.2017, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 31 Fjórir leiki voru spilaðir í 2. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu á mánudagskvöld. Á Akranesi tók ÍA á móti Val. Gestirnir báru sigurorð af Víkingi Ó. í fyrsta leik sumarsins en ÍA tapaði 2-4 gegn fyrir Íslands- meisturum FH. Sú markatala birt- ist aftur á stöðutöflu Akranesvallar á mánudaginn, því Valur sigraði 2-4 eftir að hafa haft yfirhöndina nær all- an leikinn. Eftir tíu mínútna leik munaði litlu að Tryggvi Hrafn Haraldsson kæm- ist einn á móti marki eftir góða send- ingu innfyrir en Anton Ari Einars- son, markvörður Vals, rétt náði að koma fæti í boltann. Að öðrum kosti voru það Valsmenn sem stjórnuðu gangi leiksins. Þeir voru mun spræk- ari í upphafi leiks, áttu hverja sókn- ina á fætur annarri, fengu ágætis sénsa en tókst ekki að gera sér mat úr þeim. Á 21. mínútu fengu Valsmenn víti. Arnar Már Guðjónsson átti lé- lega tæklingu og braut á Sigurði Agli Lárussyni í jaðri vítateigsins og víta- spyrna umsvifalaust dæmd. Sigurður Egill fór sjálfur á punktinn og skor- aði af miklu öryggi framhjá Ing- vari Þór Kale í marki Skagamanna. Valsmenn voru áfram sterkari eftir markið og komust í 0-2 á 34. mín- útu. Varnarmönnum ÍA voru mis- lagðir fætur og tókst ekki að hreinsa boltann frá. Boltinn barst á Guðjón Pétur Lýðsson sem skoraði laglega. Fimm mínútum síðar minnkuðu Skagamenn muninn með marki af dýrari gerðinni. Þórður Þorsteinn Þórðarson tók aukaspyrnu úti á kanti vinstra megin. Boltinn sveif yfir alla í teignum og small í horninu fjær, al- veg uppi við samskeytin. Stórglæsi- legt mark og staðan 1-2 í hálfleik. Valsmenn voru mun sterkari fram- an af síðari hálfleik og juku forskotið í 1-3 á 58. mínútu. Eftir góða sókn áttu Valsmenn skot af stuttu færi sem Ingvar varði glæsilega í horn. Horn- spyrnan barst fyrir markið og Hauk- ur Páll Sigurðsson skallaði boltann í bláhornið. Skagamenn minnkuðu muninn að nýju á 75. mínútu. Aftur var það Þórður sem tók aukaspyrnu af vinstri kantinum. Hann skrúfaði boltann fyrir markið og af Robert Menzel fór hann og í netið. Staðan 2-3 og þá var eins og lifnaði yfir Skagamönnum. Þeir voru sprækari eftir markið og engu munaði að Garðar Gunnlaugs- son jafnaði skömmu síðar eftir góða fyrirgjöf frá Þórði en skotið rétt yfir markið. Þegar fimm mínútur lifðu leiks voru Skagamenn aftur nálægt því að jafna. Hafþór Pétursson átti hörkuskalla að marki eftir horn en Anton Ari varði stórkostlega í marki Vals. Hart var barist síðustu mínúturn- ar en í uppbótartíma gerðu Vals- menn endanlega út um leikinn. Nikolaj Hansen komst inn í teig Skagamanna vinstra megin og lagði boltann undir Ingvar í markinu og tryggði Valsmönnum sigur, 2-4. Skagamenn hafa því tapað fyrstu tveimur leikjum sumarsins, báðum 2-4 og eru því án stiga. Næst leikur ÍA sunnudaginn 14. maí næstkom- andi þegar liðið mætir erkifjend- um sínum í KR. Sá leikur fer fram í Frostaskjólinu í Vesturbæ Reykja- víkur. kgk/ Ljósm. gbh. Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Víkingur Ó. mætti KR í annarri umferð Pepsi deildar karla í knatt- spyrnu á sunnudagskvöldið. Leikið var í Ólafsvík og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins. Fyrri hálfleikur var fremur tíð- indalítill og einkenndist af mik- illi baráttu. Víkingar fengu ágætis tækifæri á 25. mínútu eftir góðan samleik Kenan Turudija og Nacho Heras. Kenan bar boltann langt upp völlinn, kom honum á Nacho sem fann Kenan aftur en skot hans hátt yfir markið. Besta færi fyrri hálf- leiks var hins vegar KR-inga og það kom á 39. mínútu. Kennie Chop- art fékk þá sendingu innfyrir vörn Víkinga og var kominn í dauðafæri en Christian Martinez varði vel í markinu. Kennie fékk boltann aft- ur en setti hann framhjá. Staðan í hálfeik 0-0 en það átti eftir að breytast skömmu eftir að flautað var til síðari hálfleiks. Á 46. mínútu leiksins fékk Pape Ma- madou Faye boltann á vítateigs- boganum. Hann sneri á punktinum og smellti boltanum í fjærhornið. Glæsilegt mark og Víkingar komn- ir yfir, 1-0. KR-ingar sóttu í sig veðrið eftir markið og náðu að jafna á 56. mín- útu. Óskar Örn Hauksson sendi þá góða sendingu fyrir markið á Skúla Jón Friðgeirsson sem stangaði bolt- ann í netið. Víkingar fengu stór- hættulegt færi skömmu eftir jöfn- unarmarkið. Guðmundur Steinn Hafsteinsson fann Pape með mikið pláss vinstra megin. Móttaka hans var ekki alveg nægilega góð og þrengdi það færið. Pape kom hins vegar skoti á markið sem Stefán Logi Magnússon varði vel í marki KR-inga. Eftir þetta datt leikurinn dálítið niður. KR-ingar voru ívið sterkari en Víkingar féllu mjög aftarlega á völlinn. Gestirnir héldu áfram að liggja á heimamönnum og á loka- mínútunum voru allir leikmenn Víkings fyrir aftan boltann nema Þorsteinn Már Ragnarsson. Upp- bótartíminn einkenndist af því að KR-ingar sendu boltann inn í teig- inn og Víkingar komu honum frá. KR fékk hornspyrnu á þriðju og síðustu mínútu uppbótartímans og boltinn sendur fyrir. Eftir mikinn atgang í teignum, þar sem Christian varði tvisvar vel með fótunum, tókst KR-ingum á endanum að koma boltanum yfir línuna og tryggja sér sigur með síðustu spyrnu leiksins, 1-2. Víkingar mátt hins vegar sætta sig við grátlegt tap. Víkingur Ó. hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sumarsins og er því án stiga enn sem komið er. Næst mætir liðið nýliðum Grindavíkur á útivelli sunnudaginn 14. maí. kgk Grátlegt tap Víkings gegn Vesturbæjarliðinu Pape Mamadou Faye í baráttunni. Hann átti góðan leik á móti KR, skoraði eina mark Víkings Ó. en það dugði ekki til. Ljósm. af. Dregið var í 32 liða úrslitum Borg- unarbikars karla í knattspyrnu á mið- vikudaginn var, en liðin í Pepsi deild karla koma inn í pottinn í 32 liða úr- slitum. Þrjú lið af Vesturlandi voru í pottinum; ÍA, Víkingur Ó. og Kári, þar sem bæði Skallagrímur og sam- eiginlegt lið Snæfells/UDN féllu úr leik í fyrstu umferð bikarsins. Drátturinn fór á þá leið að að- eins ein viðureign milli Pepsi deild- ar liða verður í 32 liða úrslitum bik- arkeppninnar, en Víkingur Ó. dróst á móti Val, ríkjandi bikarmeistara. Viðureign liðanna fer fram í Ólafs- vík fimmtudaginn 18. maí næstkom- andi. ÍA mætir 1. deildar liði Fram á Akranesvelli miðvikudaginn 17. maí en daginn fyrir, þriðjudaginn 16. maí, mætir Kári liði Selfoss á úti- velli. Kári leikur í 3. deild en Selfoss í 1. deild. Viðureignir 32 liða úrslita má sjá í heild sinni á heimasíðu KSÍ. kgk Dregið í bikarkeppni karla Skagamenn fagna marki í bikarkeppn- inni síðasta sumar. Ljósm. úr safni/ gbh. Víkingur Ó. mætti Þrótti R. í fyrstu umferð Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu laugardaginn 6. maí síð- astliðinn. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og máttu Víkingskonur sætta sig við tap með einu marki gegn engu. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Sóley María Steinarsdóttir eina mark leiksins á 70. mínútu og dugði það Þrótti til sigurs, 0-1. Því er ljóst að ungt og efnilegt lið Vík- ings Ó. hefur lokið þátttöku sinni í Borgunarbikar kvenna þetta árið. kgk Víkingskonur töpuðu í bikarnum ÍA tapaði fyrir sprækum Valsmönnum Skagamenn horfa á eftir aukaspyrnu Þórðar Þorsteinn Þórðarsonar svífa í markhornið. Áhorfendur fagna í baksýn. Þórður Þorsteinn fagnar marki sínu. Garðar Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður í hálfleik, en hann hefur glímt við smá meiðsli undanfarið. Eftir innkomu hans mátti sjá nokkur batamerki á sóknarleik Skagamanna.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.