Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2017, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 21.06.2017, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 9 SK ES SU H O R N 2 01 7 Félagsmálastjóri Laust er til umsóknar starf félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 50% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum félagsþjónustu sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágústmánuði nk. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Barnavernd• Félagsleg heimaþjónusta• Félagsleg ráðgjöf • Fjárhagsaðstoð• Málefni aldraðra • Málefni fatlaðra• Önnur ve• rkefni á málefnasviði fjölskyldunefndar og fræðslu- og skólanefndar. Félagsmálastjóri ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Félagsmálastjóri sinnir teymisvinnu og starfar með mismunandi fagstéttum á þjónustusvæði sveitarfélagsins. Þá er félagsmálastjóri starfsmaður fjölskyldunefndar og fræðslu- og skólanefndar. Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi.• Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg.• Reynsl• a af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða sambærileg störf er mikilvæg. Reynsla af stjórnunarstörfum á vettvangi félagsþjónustu • sveitarfélaga er æskileg. Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og • skipulagshæfileika. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.• Hæfni til að tjá si• g í ræðu og riti. Kjör: Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur um starf félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar er til og með 30. júní nk. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar um störfin veitir Skúli Þórðarson, sveitar- stjóri í síma 433-8500 og á netfanginu skuli@hvalfjardarsveit.is ÚTBOÐÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is 81x120 mm TIL SÖLU Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð nr. 20592 - Skólaakstur við Fjölbrautaskóla Snæfellinga SK ES SU H O R N 2 01 7 Ríkiskaup, fyrir hönd Fjölbrautaskóla Snæfellinga, óska eftir tilboðum í skólaakstur fyrir nemendur til og frá skóla að morgni og aftur heim síðdegis, alla skóladaga. Útboðið skiptist í 2 undirleiðir og skulu bjóðendur bjóða í báðar þeirra. Opnun tilboða 26. júlí 2017 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is Kvenfélagasamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu hittist að venju til að halda 19. júní hátíðlegan en þá er þess minnst að þann dag árið 1915 hlutu íslenskar konur, fjörutíu ára og eldri, kosningarétt til Alþing- is og fimm árum síðar öðluðust kon- ur á íslandi kosningarétt til jafns við karla. Skiptast kvenfélögin í sam- bandinu á að sjá um daginn og að þessu sinni var það Kvenfélagið Sig- urvon í Staðarsveit sem sá um við- burðinn sem fram fór á sunnudag- inn. Um 60 konur hittust í Samkomu- húsinu á Arnarstapa þar sem borin var fram súpa og fjallagrasabrauð og í eftirrétt voru kökur. Ragnhild- ur Sigurðardóttir á Álftavatni bauð konur velkomnar og sagði frá deg- inum. Þema dagsins var konur á svæðinu og sagði Ragnildur sögur af nokkrum merkum konum eins og Helgu dóttur Bárðar Snæfellsáss og Þuríði Þorbjarnardóttur. Sveina las ljóð fyrir konur eftir konur. Nutu konur veitinganna og sagnanna í Samkomuhúsinu. Dagskránni lauk með göngu að minnismerkinu um Bárð Snæfellsás og að sjálfsögðu sagði Ragnhildur frá því helst sem fyrir augu bar. þa Hittust í tilefni kvenréttindadagsins Aðalfundur húsnæðissamvinnufélags Búmanna hsf. var haldinn á Grand hótel síðastliðinn fimmtudag að við- stöddu fjölmenni. í ávarpi formanns félagsins kom m.a. fram að alger við- snúningur hefur orðið á stöðu félags- ins. í stað þess að vera gjaldþrota- félag 2015 er það nú orðið stórt fé- lag á íslenskan mælikvarða. Sala á bú- seturétti íbúða Búmanna hefur geng- ið vel á öllum svæðum Búmanna enda eru engar eignir á lausu. Þær eignir sem losna og fara í sölu selj- ast jafnóðum. Allar íbúðir í Leigu- félagi Búmanna eru komnar í útleigu og við lok leigusamnings eru bú- seturéttirnir settir í sölu og þannig hafa þegar nokkrar eignir verið færð- ar upp í móðurfélagið. Af 22 íbúð- um í Hveragerði, sem stjórnin ákvað að selja út úr félaginu, hafa þegar tíu þeirra selst. Ágóðinn af sölu þessara eigna og búseturétta í eigu Búmanna styrkir sjóðsstöðu félagsins verulega. í máli fulltrúa íbúðalánasjóðs, en stjórn Búmanna hefur átt frábært samstarf með sjóðnum, kom fram m.a. að mjög góður árangur hefur náðst í allri úrvinnslu við að bjarga félaginu frá gjaldþroti, og mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir í upp- hafi. Nefnt var sem dæmi um þenn- an góða árangur, að gert var ráð fyr- ir frystingu ákveðinna lánasafna í félaginu til þriggja ára frá 2016 að telja. Frá 1. júní sl. eru engin lán til Búmanna í frystingu hjá íbúðalána- sjóði og öll lán í skilum. Samning- ur um fjárhagslega endurskipulagn- ingu félagsins gildir til 2021 en nú er vonast til þess að hægt verði að losna undan samningnum og aflétta öllum kvöðum vegna hans á árinu 2019. í tilkynningu frá Gunnari Krist- inssyni formanni Búmanna hsf segir: „í ársreikningi Búmanna fyrir árið 2016 kemur fram að velta félagsins nam 986 milljónum króna. Hagn- aður ársins nam 1.206 milljónum króna samanborðið við 271 milljón króna á árinu 2015 og hækkar á milli ára um 935 milljónir króna. Heild- areignir félagsins námu 15.369 milljónum króna í árslok 2016 og hækka um 460 milljónir króna á milli ára. Eigið fé félagsins nem- ur 2.585 milljónum króna í árslok 2016. Eiginfjárhlutfall í árslok 2016 nam 16.8% samanborðið við 9.2% í upphafi árs. Langtímalán Búmanna nema 11.910 milljónum króna í árs- lok 2016 og lækka um 1.518 millj- ónir frá fyrra ári. Lækkunin skýrist af yfirfærslu skulda til leigufélags Búmanna ehf. að fjárhæð 1.131 mílljóna króna og eftirgjöf skulda að fjárhæð 561 milljón. Á árinu voru seldar fasteignir til leigufélags Bú- manna ehf. Eignir Leigufélags Bú- manna ehf. námu 1.500 milljónir króna. í árslok 2016.“ mm Gjörbreytt staða Búmanna til hins betra Fjölbýlishúsið að Þjóðbraut 1 á Akranesi er meðal eigna Búmanna. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.