Skessuhorn - 21.06.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 25
Skráning til þátttöku í Best skreytta húsið þarf að
berast á irskirdagar@akranes.is fyrir lok fimmtudagsins 29. júní
Langar þig til
Írlands í sumar?
Flug fyrir tvo til
Írlands í verðlaun
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sjóvá Kvennahlaup íSí var meðal
annars hlaupið í Ólafsvík. Þegar í
mark var komið fengu allar konur
verðlaunapening, ásamt Kristal og
vörum frá Nieva og börnin fengu
sápukúlur og fleira. Sá siður hefur
skapast að elsta konan sem tekur
þátt hverju sinni fær verðlaun og
þetta ár var engin undanteknin á
því og fékk Ragnheiður Víglunds-
dóttir þau að þessu sinni. Einnig
var happdrætti í lok hlaupsins sem
vakti mikla lukku. 34 konur tóku
þátt í hlaupinu og létu veðrið ekki
á sig fá, en það var ekki alveg upp
á það besta.
þa
Aldursforsetinn fékk sérstök
verðlaun eftir kvennahlaupið
Sjóvá Kvennahlaup íSí fór fram
á sunnudaginn, 18. júní. Hlaupið
var á fjölmörgum stöðum hérlend-
is sem og erlendis, þar af á níu stöð-
um á Vesturland; Akranesi, Borgar-
nesi, Hvanneyri, Reykholti, Grund-
arfirði, Ólafsvík, Lýsuhóli, Búðardal
og Reykhólum. Markmið Kvenna-
hlaupsins hefur frá upphafi ver-
ið að vekja áhuga kvenna á reglu-
legri hreyfingu. Það sem er ekki síst
ánægjulegt við Kvennahlaupið er
góð og almenn þátttaka og þar koma
saman konur á öllum aldri. Mjög al-
gengt er að margir ættliðir, vinkonur
eða systur eða vinnufélagar fari sam-
an í hlaupið og geri sér jafnvel glað-
an dag í tilefni dagsins. Sú var raunin
á sunnudaginn. Meðfylgjandi mynd-
ir voru teknar fyrir upphitun hlaups-
ins á Akranesi, við rásmark og eftir
hlaup. Hátt í 200 tóku þar þátt.
mm/ Ljósm. sas
Kvennahlaup ÍSÍ var
hlaupið á sunnudaginn