Skessuhorn - 21.06.2017, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 19
FJÓRÐUNGSMÓT VESTURLANDS
Fjórðungsmót Vesturlands 2017 verður haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júlí.
Gæðingakeppni, A og B flokkur, börn, unglingar og ungmenni•
Kynbótahross•
Tölt opinn flokkur og 17 ára og yngri opið fyrir alla•
Skeið 100 m opið fyrir alla•
Hestakostur aðallega af Vesturlandi, Vestfjörðum, úr Húnavatnssýslum
og Skagafirði.
Aðgangseyrir 2.500 á allt mótið fyrir 14 ára og eldri.
Góð aðstaða fyrir keppendur og gesti svo sem tjaldstæði með rafmagni
fyrir kr. 12.000 kr,- allt mótið en án rafmangs 6.000 kr,-.
Dansleikur með Stuðlabandinu í reiðhöllinni Faxaborg
föstudaginn 30. júní kl. 23:00.
Stutt í alla þjónustu í Borgarnesi svo sem veitingastaði, sundlaug o.fl.
Sjá facebook síðu mótsins Fjórðungsmót Vesturlands 2017
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær
Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Má bjóða þér að taka þátt í
metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman
að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Laus störf frá 1. ágúst 2017
Deildarstjóri óskast í stjórnendateymi skólans
Meginverkefni viðkomandi er þátttaka í þriggja manna stjórnunar-
teymi í Höfðabergi með ábyrgð á faglegu starfi grunnskólahlutans.
Viðkomandi er jafnframt hluti af stjórnendateymi skólans.
Umsjónarkennsla á yngsta og miðstigi
Afleysing í umsjónarkennslu á yngsta stigi til 1. mars 2018
vegna fæðingarorlofs
Þroskaþjálfi, 50 – 100% starfshlutfall
Frekari upplýsingar um störfin er að finna á www.mos.is
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og við-
komandi stéttarfélaga.
Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma
5259200/8968230. Umsóknir, með upplýsingum um menntun, starfsreynslu
og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um störfin er til 30. júní 2017.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.
í maí síðastliðnum nam erlend
greiðslukortavelta hér á landi 21,3
milljörðum króna samanborið við
19,9 milljarða í maí í fyrra. Hlut-
fallsvöxtur frá fyrra ári er því um
7,1% og hefur ekki verið minni frá
því Rannsóknaseturs verslunarinn-
ar hóf söfnun hagtalna um korta-
veltu erlendra ferðamanna árið
2012. í krónum jókst kortavelt-
an um 1,4 milljarða frá maí í fyrra.
Meginástæðan fyrir minni vexti
kortaveltu nú er vafalítið sterkt
gengi krónunnar.
í maí var samdráttur í nokkrum
flokkum erlendrar kortaveltu. Ber
þar helst að nefna verslun en í heild
dróst greiðslukortavelta verslunar
saman um 4,7% frá fyrra ári, úr 2,3
milljörðum króna í maí 2016 í 2,2
milljarða króna í maí síðastliðnum.
Kortavelta í gjafa- og minjagripa-
verslun dróst saman um 18,9%,
fataverslun dróst saman um 5,9%,
tollfrjáls verslun um 7,4% og önnur
verslun um 10,9%. Dagvöruversl-
un var eini flokkur verslunar þar
sem erlend kortavelta jókst í mán-
uðinum, um 12,8% frá sama mán-
uði í fyrra. Meðal annarra flokka
kortaveltunnar sem drógust saman
frá fyrra ári eru bílaleigur en erlend
greiðslukortavelta þeirra var 0,6%
lægri í maí samanborið við sama
mánuð í fyrra og var 1,7 milljarðar
í maí síðastliðnum.
Mest jókst kortavelta í maí í
flokki farþegaflutninga, um 22,7%
eða um 852 milljónir frá sama mán-
uði í fyrra. Sem fyrr er vakin athygli
á því að hluti erlendrar starfsemi
innlendra flugfélaga er meðtalin, en
farþegaflug er langstærsti einstaki
hluti farþegaflutninga í erlendri
greiðslukortaveltu. Næst mestur
var vöxtur kortaveltunnar í flokki
ýmissar ferðaþjónustu en undir
flokkinn fellur þjónusta ferðaskrif-
stofa og ýmsar skipulagðar ferðir.
Velta þess flokks jókst um 13,2%
frá maí 2016 og nam 3,5 milljörð-
um króna í maí síðastliðnum.
Erlend greiðslukortavelta í gisti-
þjónustu jókst um 8,7% í maí síð-
astliðnum og nam 3,9 milljörðum
króna samanborið við 3,6 milljarða
í sama mánuði fyrir ári. Vöxtur
kortaveltu veitingastaða var heldur
minni eða 0,9% frá fyrra ári og nam
í maí síðastliðnum 2.044 milljónum
króna, 18 milljónum króna meira
en í sama mánuði í fyrra.
mm
Þróun í erlendri kortaveltu
endurspeglar hátt gengi krónunnar
Erlendir ferðamenn við Hraunfossa í Borgarfirði. Ljósm. mm.