Skessuhorn - 21.06.2017, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 201724
Karlakórinn Söngbræður brá sér
til Skotlands og Norður-írlands
á dögunum í söng- og skemmti-
ferð. Makar voru með í ferð svo
alls taldi hópurinn um 50 manns.
Flogið var til Glasgow, dvalið þar
í tvær nætur og skoskra kjara not-
ið. Skroppið var til Edinborgar
og sú fallega borg skoðuð undir
leiðsögn fararstjóra hópsins, Sól-
veigar Jónsdóttur frá Galtarholti í
Hvalfjarðarsveit.
Þá var siglt yfir til Norður-ír-
lands, til Belfast, og dvalið þar í
4 nætur, fyrst á Culloden-hót-
eli sem er afar vel búinn gisti- og
hvíldarstaður í útjaðri borgarinn-
ar, fjarri umferð og skarkala henn-
ar. Fundu menn sig sem greifa og
barónessur á þeim stað. Und-
ir staðgóðri leiðsögn heimakon-
unnar Donnu Fox var miðborg
Belfast skoðuð og þá einkum sá
hluti hennar sem við sögu kom á
átakatímunum 1969-1998. Áð var
við friðarvegginn sem reistur var
og og á hann rituðu ferðafélagar
nöfn sín. Þótt menn teldu sig hafa
í fjölmiðlum fylgst með átökum á
Norður-írlandi var upplifunin
önnur að heyra frásögn heima-
manns og koma á þá staði sem
blóðug átök áttu sér stað og sjá
þar minjar um þau. Þótt nú sé
kyrrð yfir eru skoðanir Norður-
íra enn skiptar um stjórn lands-
ins: Með sjálfstæði eða sambandi
við bresku krúnuna en í þeim mis-
mun lágu rætur átakanna miklu.
Hópurinn ók norður til Derry
(London Derry) og skoðaði sig
þar um undir leiðsögn Sólveigar
fararstjóra er fræddi okkur enn
frekar um þau miklu átök sem þar
fóru fram á seinni hluta síðustu
aldar. Var fróðlegt að ganga að
veggnum eldforna og rammgerða
sem umlykur borgina, enn heill
að mestu þótt reistur væri í byrj-
un sautjándu aldar. Derry er falleg
borg og hún var raunar sögð ein
af 10 helstu borgum heims verðra
heimsókna samkvæmt meðmæla-
bók Lonely Planet árið 2013.
Hvert tækifæri var notað til
þess að bresta í söng hvort sem
nærstöddum áheyrendum líkaði
það betur eða verr. Formlegustu
tónleikarnir voru hins vegar settir
upp í kirkju Heilags Kolumbusar
(eða Kólumkilla) í Derry þriðju-
daginn 13. júní. Kirkjan er mikið
hús og vel fallin til söngs einnig.
Þar flutti kórinn úrval íslenskra
sönglaga, allt frá hefðbundn-
um ættjarðarlögum til yngri ís-
lenskra dægulaga undir stjórn
Viðars Guðmundssonar söng-
stjóra í Miðhúsum og við meðleik
Heimis Klemenzsonar frá Dýra-
stöðum. Dágóður hópur heima-
manna mætti til söngskemmtun-
arinnar. Hún tókst prýðilega og af
viðræðum við tónleikagesti mátti
ráða að heimsóknin hafði lukkast
vel. Söngmenn héldu því hoskir
í náttstað. Síðasta daginn reikaði
hópurinn um Belfast í blíðunni
og undi sér vel í þessari merku og
fallegu borg þaðan sem vel sér til
þeirra blómlegu sveita er umlykja
hana. Hvað eftirminnilegast frá
Belfast verður líklega heimsókn-
in í Titanic-safnið, þar sem þeirri
stórfenglegu en jafnframt sorg-
legu sögu eru gerð einstök skil.
Að sex nóttum liðnum héldu
Söngbræður heim með sínum.
Með ferð þessari má segja að
formlega hafi lokið vetrarstarfi
karlakórsins sem verið hefur líf-
legt og mikið. Allmarkir tón-
leikar hafa verið haldnir auk þess
sem kórinn hefur komið fram við
mörg tækifæri bæði til skemmt-
unar og huggunar. Söngfélagar
koma víða að, af svæði frá Strönd-
um, um Dali, Snæfellsnes, Borg-
arfjörð og allt til höfuðborgar-
innar.
Bjarni Guðmundsson skráði.
Ljósm. Kristberg Jónsson og Sig-
rún Tómasdóttir.
Söngbræður á
faraldsfæti
Kórinn stillir sér upp til myndatöku fyrir við St. Giles kirkjuna í Edinborg. Í henni eru steindir gluggar eftir Leif Breiðfjörð.
Viðars Guðmundsson kórstjóri er lengst til hægri. Augnabliki eftir að þessi mynd var tekin kom kona hlaupandi út úr bygg-
ingu og hrópaði upp yfir sig: „Guð! Karlakór, ég elska karlakóra, en ég verð að flýta mér aftur inn, sonur minn er að gifta sig.“
Elsa og Gunnar formaður Söngbræðra.
Kórfélagar skoða hér Edinborgarkastala.
Húsgafl sem segir sögu.
Sest niður í rólegheitunum og iðnaðarframleiðsla innfæddra reynd.
Víða má sjá veggskreytingar sem minna á átökin á Norður Írlandi.
Það þótti svipur með þessum.