Skessuhorn - 21.06.2017, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 201728
Nú er sumarlestur barna hafinn
á Bókasafni Akraness. Líkt og
síðustu sumur mun Skessuhorn
birta lesara vikunnar, en umsjón
með efni hafa starfsmenn bóka-
safnsins. Þetta er tólfta sumar-
ið sem Bókasafnið stendur fyrir
sumarlestri. Byrjað var að skrá
þátttakendur 1. júní síðastlið-
inn og nú þegar hafa rúmlega
hundrað börn skráð sig. Fyrstu
sumarlesararnir eru þau Maron
og Ísabella.
Sumarlesari fyrstu vikunnar:
Hvað heitir þú og hvað ertu
gamall?
Ég heiti Maron og ég á afmæli
eftir nokkra daga og þá verð ég
7 ára.
Í hvaða skóla ertu?
Ég er í Grundaskóla.
Hvaða bók varstu að lesa?
Ég var að lesa Halló Kata köngu-
ló og Halló Hanna hunangsfluga.
Voru þetta skemmtilegar bæk-
ur?
Já, þær voru mjög skemmtilegar.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar?
Bækur sem eru langar og léttar.
Áttu þér uppáhalds bók eða
uppáhalds rithöfund?
Ég á eina uppáhaldsbók og hún
heitir Skrítinn dagur hjá Gunn-
ari.
Af hverju tekur þú þátt í sumar-
lestrinum?
Af því að mig langar að vera dug-
legur að lesa.
Kemurðu oft á bókasafnið og
hvað gerir þú á bókasafninu?
Já ég kem oft og næ mér í bæk-
ur til að lesa og svo eru líka mörg
spil hérna.
Sumarlesari í síðustu viku:
Hvað heitir þú og hvað ertu
gömul?
Ég heiti ísabella og ég er 10 ára.
Í hvaða skóla ertu?
Ég er í Grundaskóla.
Hvaða bók varstu að lesa?
Ég var að lesa bókina Ottólína og
gula kisan.
Hvernig var hún?
Hún var alveg mjög skemmti-
leg, ég gat ekki hætt að lesa og las
langt fram á nótt.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar?
Fyndnar bækur og spennandi.
Áttu þér uppáhalds bók eða
uppáhalds rithöfund?
Uppáhaldsbókin mín er Risastóra
peran.
Af hverju tekur þú þátt í sumar-
lestrinum?
Af því að það er gaman og gerir
mig að betri lesara.
Kemurðu oft á bókasafnið og
hvað gerir þú á bókasafninu?
Já, ég kem frekar oft á Bókasafn-
ið. Ég skoða bækur og les. Mér
finnst gaman að koma á Bóka-
safnið.
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi
Ari Grétar Björnsson
Sími: 864-2100
Email : taxar@simnet.is
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Pennagrein
Alþingi fjallaði um mörg mál á nýaf-
stöðnu þingi og nokkur þeirra hlutu
samþykki sem lög eða þingsályktan-
ir eða var vikið til hliðar. Þetta 146.
þing fer þó fjarri því í sögubækurn-
ar sem árangursríkt og afkastamikið.
Sum málanna teljast aðkallandi, brýn
og þörf en fengu ekki framgang.
Það sem efst var á forgangslista
Samfylkingar voru eins og jafnan
áður velferðarmálin, m.a. þau sem
lúta að barnafjölskyldum, bættri heil-
brigðisþjónustu, húsnæðismálum,
sjúkratryggingum, málefnum eldri
borgara og hagsmunamálum öryrkja
auk annarra mála, s.s. samgöngu-
mála. Efnahags- og atvinnumál voru
einnig ofarlega á málaskrá Samfylk-
ingar á þingtímanum. Dæmi þess er
frumvarp um breytingar á lögum um
stjórnun fiskveiða sem gengur út á
að viðbótarkvóti næsta fiskveiðiárs
verði tekinn til hliðar og úthlutað
með sérstökum hætti. Markmiðið er
að styrkja byggðarlög, kvótalitlar út-
gerðir og auðvelda nýliðun í grein-
inni. Þessu hafnaði ríkisstjórnin al-
gjörlega og áframhaldandi óréttlæti
er viðhaldið.
Fæst mál Samfylkingar fengu
brautargengi enda flokkurinn í
minnihluta og þingmannafjöldi langt
frá því sem er viðunandi. Umskipti
í þessum málaflokkum verða því að
bíða þar til öðruvísi skipast á löggjaf-
arsamkundunni.
Alltof mikill tími fór í það sem
Sjálfstæðisflokkurinn valdi sem sitt
forgangsmál en það var brennivíns-
frumvarpið svokallaða sem dagaði
uppi. Þegar líða fór á þingtímann
fóru nefnilega að renna tvær grímur
á stjórnarflokkana enda ljóst að ekki
var meirihluti fyrir málinu og mikil
og útbreidd andstaða í þjóðfélaginu.
Þetta eina dekurmál kom hins vegar
í veg fyrir að tími gæfist til að klára
önnur, t.d. mikilvægt frumvarp til
laga um þjónustu við fólk með mikl-
ar stuðningsþarfir.
Einu máli sem varðar marga ein-
staklinga og fjölskyldur þeirra tókst
Samfylkingunni þó að þoka í höfn.
Á síðustu dögum Alþingis var sam-
þykkt með 63 greiddum atkvæðum
þingsályktunartillaga um heildstæða
stefnu í málefnum einstaklinga með
heilabilun sem undirritaður lagði
fram á sínu fyrsta þingi. ísland er eitt
örfárra Evrópuríkja sem ekki hefur
mótað heildstæða stefnu í málefnum
fólks með þennan hrörnunarsjúk-
dóm og eina norræna ríkið. Nefnd
innan Evrópusambandsins lagði til
á árinu 2016 að Alzheimer-sjúkdóm-
urinn og skyldir sjúkdómar yrðu skil-
greindir sem forgangsverkefni í heil-
brigðismálum í Evrópu samkvæmt
stefnu sem hefði það að markmiði
að bregðast við afleiðingum þessara
sjúkdóma, og efla rannsóknir sem
leitt gætu til markvissra meðferðar-
lausna.
Heilabilun er afleiðing nokkurra
sjúkdóma þar sem Alzheimer-sjúk-
dómurinn er algengastur og orsakar
um 60-70% heilabilunartilfella, en
aðrir sjúkdómar eru t.d. Lewy body
heilabilun og æðakölkun. Á núver-
andi stigi eru engar leiðir til lækn-
inga, en meðferð vegna heilabilun-
ar er veitt með ýmsu móti, t.d. lyfja-
meðferð við undirliggjandi sjúk-
dómi, einnig sérhæfðri umönnun og
með fræðslu til aðstandenda sem oft-
ast sjá um umönnun innan heimilis.
Sálfræðilegur og
félagslegur stuðn-
ingur er veittur
ásamt sérhæfðri
hjúkrun og umönnun á seinni stig-
um.
Skráning einstaklinga með heila-
bilun er mjög brotakennd á íslandi og
enginn einn aðili getur á áreiðanleg-
an hátt tilgreint umfang heilabilun-
arsjúkdóma. Alzheimersamtök Evr-
ópu (Alzheimer Europe) hafa áætlað
að einstaklingar með heilabilun á ís-
landi séu um 4.000 talsins og byggja
útreikninga sína á lýðfræðilegum að-
stæðum. Þetta samsvarar um 1,19%
af heildarfjölda íslendinga. Hlutfall
íbúa á íslandi með greinda heilabilun
samkvæmt þessu er enn umtalsvert
lægra en reiknað meðaltal Evrópu-
sambandslanda, sem er 1,55%.
Um sex milljónir einstaklinga í
Evrópu eru greindir með Alzheimer-
sjúkdóminn og skylda sjúkdóma á ári
hverju og fjölgar stöðugt. Ef horft
er til greininga og framtíðarspár frá
nágrannalöndum, m.a. frá dönsk-
um og breskum greiningaraðilum,
eru líkindi til þess að árið 2040 verði
heildarfjöldi einstaklinga með heila-
bilun sem hlutfall af íslensku þjóð-
inni komið í 1,2-2,9%. Þetta hlýtur
að teljast áhyggjuefni sökum þess hve
mikla umönnun þeir þurfa sem hafa
langt gengna heilabilun. íslenska
velferðarkerfið er enn sem komið er
vanbúið til að takast á við þetta krefj-
andi verkefni.
Guðjón S. Brjánsson
Höf. er alþingismaður fyrir Sam-
fylkinguna í NV kjördæmi
Munum þá sem gleyma
Viðskiptavinir sem heimsóttu versl-
un Costco í Kauptúni í Garðabæ á
miðvikudag í liðinni viku gripu hálf-
partinn í tómt. Fjölmargar vöruhillur
voru tómar og afar takmarkað úrval
til í ýmsum vöruflokkum. Að sögn
starfsfólks í versluninni var þó von
á nýjum sendingum í verslunina um
kvöld þess dags. Haft var eftir versl-
unarstjóra í öðrum fjölmiðlum að töf
hafi orðið á flutningi vörugáma til
landsins og það hefði orsakað vöru-
skort. Costco hefur fengið jákvæðar
viðtökur almennings frá því verslun-
in var opnuð 23. maí síðastliðinn og
tugþúsundir íslendinga gerst félagar
í ameríska kaupfélaginu. mm
Viðbrögð við Costco umfram
væntingar stjórnenda
Þetta er ekki abstrakt listaverk, heldur tómar vöruhillur.
Sumarlestur hafinn á
Bókasafni Akraness