Skessuhorn - 21.06.2017, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 29
Húsnæði óskast
Hjón með 3 börn óska eftir leigu-
húsnæði í Borgarnesi. Anna
865-1873. Sammi 892-2944.
Suzuki Baleno
Er með Suzuki Baleno til sölu, skráð-
ur í maí 2001. 1600cc, sjálfskiptur.
Ekinn 222.600 km. Er nýskoðaður
2018. Á nýjum Nokian heilsárs-
dekkjum að framan, hálfslitnum
Toyo heilsársdekkjum að aftan. Ný
bremsurör frá hvalbak og að aftur-
hjólum. Diskar og klossar að framan
nýtt síðan í haust. Bremsuborðar að
aftan sömuleiðis. Fram og afturhjóla-
legur vinstra megin nýjar. Nýsmurður
og loftsía nýleg. Splunkunýr vatns-
kassi keyptur 29/05’17. Bíll í mjög
flottu standi. Ásett á hann er 290þús í
skiptum en eitthvað minna staðgreitt.
Allar nánari upplýsingar í 662-5272
eða birna.ran.tryggva@gmail.com.
Skoða skipti á nánast hverju sem er.
Skoda Octavia
Vel með farinn fjórhjóladrifinn Skoda
Octavia. Nýlega yfirfarinn. Skipt um
tímareim, splunkuný heilsársdekk og
skipt um jafnvægisstöng að aftan. Ár
er síðan bremsur voru endurnýjaðar.
Smurbók fylgir bílnum. Vel með
farinn bíll. Verð 590 þús. kr. floki@
heimsnet.is Álfelgur til sölu
4 stk. vel með farnar 15” álfelgur
undan Skoda Octavia. Gatadeilingin
er 5×100, passa undir eldri Skoda,
margar gerðir VW og fleiri tegundir.
Þær hafa eingöngu verið notaðar á
sumrin og bónaðar reglulega, líta
vel út. Verð kr. 40 þús. fyrir ganginn.
Sumardekk 14”
Til sölu gangur af tæplega hálf-
slitnum sumardekkjum, 185/70 R14.
Þau seljast á 10.000 gangurinn.
Hnífabrýningar
Brýni flestar gerðir bitjárna. Er á
Akranesi. Uppl. í síma 894-0073.
Markaðstorg Vesturlands
Dalabyggð -
miðvikudagur 21. júní
Sumarsólstöðutónleikar á Laugum í
Sælingsdal. Kristín Lárusdóttir selló-
leikari heldur órafmagnaða tónleika
kl. 21 í Gyllta salnum á Hótel Eddu
Laugum í Sælingsdal. Tónlist Kristín-
ar er innblásin af íslenskum tónlistar-
arfi og náttúru. Hún spilar bæði á
selló, kveður og notar ýmis rafhljóð.
Á tónleikunum mun Kristín koma til
með að spila og syngja eigin tónlist,
rímur og þjóðlög. Allir eru velkomnir
og enginn aðgangseyrir.
Akranes - föstudagur 23. júní
Norðurálsmótið á Akranesi er knatt-
spyrnumót fyrir kraftmikla stráka í
7. flokki, sem koma til að skemmta
sér í leik og keppni. Allir þjálfarar,
fararstjórar og fjölskyldur keppenda
eru velkomnir á Skagann með strák-
unum.
Borgarbyggð - föstudagur 23. júní
Mannskoret Havdur, karlakór frá
Bömlo í Noregi, heldur tónleika í
Reykholtskirkju kl. 17. Stjórnandi er
Cecilie Rönhovde frá Stord. Karlakór-
inn Havdur var stofnaður árið 1937
og hefur starfað síðan, nema í seinni
heimsstyrjöldinni. Kórinn flytur and-
lega, veraldlega og þjóðlega söngva
án undirleiks. Hefur hann tekið þátt
í ýmsum viðburðum í Bömlo og á
eyjunum í grenndinni. Þá hefur hann
sungið í Færeyjum, á Shetlands-
eyjum, Írlandi og í Austur-Evrópu.
Hefð er fyrir því að HAVDUR komi
fram á 17. maí hátíðarhöldum og
syngi í kirkjum og menningarhúsum.
Söngmenn eru um 30 talsins.
Snæfellsbær -
föstudagur 23. júní
1. deild kvenna: Víkingur Ó. - ÍR á
Ólafsvíkurvelli kl. 19:15.
Grundarfjörður -
föstudagur 23. júní
Jónsmessa Setbergskirkju. Helgun
og hollusta kl. 21. Gengið á Klakk
eftir messu. Lagt af stað kl. 22 frá
Bárarfossi. Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
laugardagur 24. júní
Brákarhátíð er haldin í áttunda
skiptið með skemmtilegri dagskrá
og viðburðum. Nóg verður að gera
í hverfum Borgarbyggðar og allir
finna sér eitthvað við hæfi. Verið
velkomin og munum að Brákarhátíð
er hátíð okkar allra!
Akranes - sunnudagur 25. júní
Guðsþjónusta í Akraneskirkju kl.
11. Emil Theodór Ármannsson,
Danmörku, verður fermdur í athöfn-
inni. Heimilisfang hans á Akranesi er
Álmskógar 18. Sr. Eðvarð Ingólfsson
þjónar. Sveinn Arnar sér um tónlist-
ina. Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
sunnudagur 25. júní
Gengið um sögustaðinn Reykholt
kl. 15. Snorrastofa býður til útivistar-
dags að lokinni messu í Reykholts-
kirkju með leiðsögn um sögu mann-
lífs og mannvirkja í Reykholti. Leið-
sögumenn verða sr. Geir Waage og
Óskar Guðmundsson rithöfundur.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
31. maí. Drengur. Þyngd 3.480
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar:
Sigurbjörg Anna Þorleifsdóttir
og Jóhannes Þór Grímsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Sara Björk
Hauksdóttir.
9. júní. Stúlka. Þyngd 3.684
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar:
Sigurlaug Kjartansdóttir
og Trausti Magnússon,
Hamraendum Stafholtstungum.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
LEIGUMARKAÐUR
Markaðstorg Vesturlands
Skráðu SMáauglýSinguna Frítt á www.SkeSSuhorn.iS
Fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM
TIL SÖLU
ÝMISLEGT
14. júní. Drengur. Þyngd 3.870
gr. Lengd 51 sm. Foreldrar:
Ágústa Sigríður Jónsdóttir
og Mattías A. Þorgrímsson,
Stykkishólmi. Ljósmóðir: Elísabet
Harles.
19. júní. Stúlka. Þyngd 3.862
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Vera
Kristín Jónasdóttir og Daníel Þ.
Arnarsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Elísabet Harles.
Pennagrein
Kæru skagamenn!
Nú á síðustu mánuðum hefur Akra-
neskaupstaður verið að huga að
„nýju“ gervigrasi fyrir inni íþrótta-
aðstöðu til handa börnum og ung-
lingum í bæjarfélaginu. Nánar til-
tekið nýtt fótboltagras í Akranes-
höllina. Eða á ég að segja „nýtt“.
Hvernig gervigras myndir þú velja
fyrir börn og unglinga? En þig
sjálfan? Myndir þú velja nýjustu
kynslóð af gervigrasi, eða ekki?
Topp knattspyrnueiginleika allt-
af, eða ekki? Gúmmíkurl á víð og
dreif, eða ekki? Fimm ára ábyrgð
í stað tíu ára verksmiðjuábyrgðar,
eða ekki? Öruggt umhverfisvænt
gervigras, eða ekki? útlit eins og
raunverulegt gras, eða ekki? Virk-
ar óaðlaðandi, eða ekki? Auðvelt
að þrífa, eða ekki? Auðvelt að laga
skemmdir, eða ekki? Mikla gúmmí-
lykt, eða ekki? Mikla svifryksmeng-
un, eða ekki? Leikmenn með t.d.
astma ættu auðvelt með að leika á
grasinu, eða ekki? Rispa sig mik-
ið, eða ekki? Fá straum frá gervi-
grasinu, eða ekki? Besta mögulegu
fjöðrun allsstaðar á vellinum, eða
ekki? Freistandi að spila á vegna
fegurðar, eða ekki? Tugir tonna
af sandi, eða ekki? Tugir tonna af
gúmmíkurli, eða ekki? Miklar lík-
ur á sýkingu, eða ekki? Geta spil-
að berfættur, eða ekki? Fer vel með
húðina, eða ekki? Betri eignileik-
ar, eða ekki? Hættuleg innihalds-
efni gúmmíkurls, eða ekki? Ódýrt
í rekstri, eða ekki? Endingarbetri
knattspyrnueiginleikar, eða ekki?
Ráðamenn Akraneskaupstaðar,
nánar tiltekið ráðgjafi og sviðsstjóri
skipulags- og umhverfissviðs, höfn-
uðu öllum kostum nýrrar kynslóð-
ar gervigrass þrátt fyrir að allir að-
ilar voru sammála um að eiginleikar
vörunnar væru stórkostlegir. Hvað
þá í samanburði við gúmmíkurl og
sandgras. En hvers vegna var þá tekin
kolröng ákvörðun fyrir Skagamenn
til framtíðar? Var það verðið? Nei alls
ekki, því miðað við alla kostina, eigin-
leikana, endingu, ábyrgð og rekstrar-
kostnað þá er varan í rauninni miklu
ódýrari ef reiknað er til tíu ára tíma-
bils. Var það útaf lítilli reynslu á vör-
unni? Nei alls ekki. Fjöldinn allur af
meðmælum og í meira en 12 ár hefur
innfylliefnalaust gervigras verið þró-
að og betrumbætt af fremsta fram-
leiðanda í heimi í innfylliefnalausu
gervigrasi. Var það útaf KSí? Nei alls
ekki. Aðilar innan mannvirkjanefnd-
ar KSí lofsama vöruna. Nýja reglu-
gerðin býður þessa vöru „loksins“
velkomna á vellina frá því í maí árið
2017. Að auki skv. KSí reglugerð-
inni má gúmmíkurl ekki lengur vera
mengandi eða skaðlegt heilsu. Er
slíkt gúmmíkurl til
sem er ekki meng-
andi við framleiðslu
og í innihaldi?
Fjórir af fimm sem
reyndu að taka þátt í útboðinu og
bjóða gúmmíkurl lausn, voru dæmd-
ir ógildir af ráðgjafa, hvers vegna?
Tveir þeirra buðu hagstæðara verð
en sá sem var valinn, allir voru þeir
með „viðurkenndar“ vörur að mati
FIFA. Hverjir eru það sem stjórna
valinu, er það einn einstaklingur sem
kallast ráðgjafi eða fá fleiri að gefa
álit sitt, á hverju er álitið byggt? Árið
2017 er valið fyrir Skagamenn áfram
vafasamt gúmmíkurl og sandur, göm-
ul „úrelt“ tækni með endalausum
vandamálum og hundruðum tonna af
gúmmíi og sandi með nokkrum gras-
þráðum innanhúss? Áfram er gríðar-
lega mikil hætta á sýkingum í opin sár
og áfram allur möguleiki á mikilli svi-
fryksmengum sem hamlar fólki með
viðkvæm öndunarfæri að taka þátt í
íþróttum innandyra.
Skagamenn það er undir ykkur
komið að mótmæla þessari ákvörðun
við bæjarstjóra og óska eftir því besta
fyrir börn og unglinga á Akranesi,
nú eða láta þau bara kyngja áfram
gúmmíkurlinu og sandinum! Mynd-
irnar segja meira en 1000 orð.
Með Skagakveðju,
Sveinbjörn Freyr Arnaldsson
Gott gervigras, eða ekki!
Nokkurra ára gamall Sportisca S9 Revolution völlur í framleiðslulandinu Sviss án
innfylliefna.
Nýjasta kynslóð af gervigrasi ofan á
gömlu kynslóðinni.
Gróttuvöllur með grátt gúmmíkurl og sand. Splunkunýr völlur.