Skessuhorn - 21.06.2017, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Síðastliðinn fimmtudag mætti Vík-
ingur Ólafsvík Fjölni í sjöundu
umferð Pepsideildar karla í knatt-
spyrnu. Leikurinn var spilað-
ur í Grafarvogi og fór fjörlega af
stað. Eftir tólf mínútna leik skor-
aði Guðmundur Steinn Hafsteins-
son fyrir Víking með fallegum
skalla eftir frábæra sendingu Kenan
Turudija af vinstri vængnum. Vík-
ingur var ekki lengi með forystu í
leiknum því þremur mínútum síðar
skoraði Ingimundur Níels Óskars-
son fyrir Fjölni. Ingimundur fékk
þá sendingu frá Birni Snæ Inga-
syni; Christian Martínez varði skot
Ingimundar en boltinn barst aftur
til hans og lagði hann þá boltann
í netið. Guðmundur Steinn fékk
góðan möguleika til að koma Vík-
ingi aftur yfir á 36. mínútu. Hann
fékk þá sendingu frá Pape Ma-
madou Faye og slapp einn í gegn
en Þórður Ingason í marki Fjölnis
sá við honum. Síðari hálfleikur var
bragðdaufari en sá fyrri. Leikmenn
Víkings voru þéttir til baka og gáfu
fá færi á sér. Fjölnir sóttu meira en
náðu ekki að skapa sér sérstök færi.
Niðurstaðan 1-1 jafntefli.
Óvænt úrslit á
Ólafsvíkurvelli
í Ólafsvík lék Víkingur gegn Stjörn-
unni í áttundu umferð deildarinnar.
Bjuggust margir við öruggum sigri
Stjörnunnar fyrir leikinn þar sem
liðið var í þriðja sæti með þrett-
án stig og Víkingur í neðsta með
fjögur. Það bætti ekki úr skák að
Víkingur hafði ekki unnið Stjörn-
una í deildarleik í áratug. Það má
því segja að 2-1 sigur Víkings hafi
komið mörgum á óvart.
Víkingar spiluðu virkilega góð-
an leik og voru mjög skipulagðir.
Þeir skoruðu fyrsta mark leiks-
ins á 17. mínútu. Þorsteinn Már
Ragnarsson fékk langa sendingu
fram völlinn, gaf boltann fast fyr-
ir þar sem hann fór í gegnum alla
sem þar stóðu og barst á Kwame
Quee sem lagði boltann snyrtilega
í netið. Quee fagnaði markinu svo
með býsna laglegu dansspori. Mik-
ill hiti og harka var í leiknum og
virtust Stjörnumenn vera orðnir
mjög pirraðir á því í lok fyrri hálf-
leiks þegar Davíð Snorri aðstoðar-
þjálfari Stjörnunnar missti stjórn á
skapi sínu og öskraði á bekk Vík-
ings. Fleiri mörk voru þó ekki
skoruðu í fyrri hálfleik og staðan
því 1-0.
Það voru aðeins liðnar fjór-
ar mínútur af síðari hálfleik þegar
Víkingur bætti við öðru marki sínu.
Þorsteinn Már átti þá flotta send-
ingu af vinstri kanti inn í teig eft-
ir góða rispu. Guðmundur Steinn
Hafsteinsson fékk boltann við fjær-
stöng og setti hann í slána og inn.
Stjarnan lagði allt í sölurnar til þess
að reyna minnka muninn og sókn-
arþungi þeirra jókst jafn og þétt.
Vörn Víkings og markmaðurinn
Cristian Martinez Liberato stóðu
sína vakt með sóma. Stjarnan fékk
vítaspyrnu á 85. mínútu þegar Pape
Mamadou Faye reyndi að hreinsa
boltann úr teig Víkings en lyfti
tökkunum of hátt upp og virtust
þeir enda í andliti Stjörnumanns.
Hilmar Árni Halldórsson skor-
aði úr vítinu 2-1 en lengra komust
Garðbæingar ekki og vann Víking-
ur þar með nokkuð óvæntan sigur.
Víkingur er enn í neðsta sæti eft-
ir leikinn með sjö stig en deildin er
þétt og þurfa að eins einn sigur gæti
lyft þeim í áttunda sæti. Næsti leik-
ur Víkings er mánudaginn 26. júní
á útivelli gegn Víkingi frá Reykja-
vík.
bþb/ Ljósm. Alfons Finnsson
Víkingur enn í neðsta sæti þrátt fyrir sigur
Mikil harka einkenndi leik Víkings og Stjörnunnar. Stuðningsmenn Víkings fögnuðu vel í leikslok.
Leikið var í sjöundu umferð Pepsi-
deildar karla í knattspyrnu miðviku-
daginn 15. júní. Skagamenn héldu
til Akureyrar til að mæta nýliðum
KA. Skagamenn voru mjög þétt-
ir og gáfu fá færi á sér, sóknarleikur
liðsins var þó heldur dapur. Undir
lok leiksins tók Þóroddur Hjaltalín,
dómari leiksins, umdeilda ákvörð-
un þegar hann dæmdi mark af KA.
Þóroddur vildi þá meina að Callum
Williams hafi brotið á Ingvari Þór
Kale. Leikmenn KA voru allt annað
en sáttir og hafa líklega eitthvað til
síns máls því í samtali við fotbolta.
net eftir leik sagði Ingvar að það hafi
ekki verið brotið á sér og markið þá
átt að standa. Niðurstaðan marka-
laust jafntefli.
Mikilvægur
sigur á Fjölni
Nú á mánudaginn lauk áttundu um-
ferð Pepsideildar karla. Skagamenn
mættu liði Fjölnis á Akranesvelli en
leikurinn var gríðarlega mikilvægur
þar Skagamenn voru í næstneðsta
sæti með fjögur stig og Fjölnir í ní-
unda með átta stig. Leiknum lauk
með hádramatískum sigri Skaga-
manna þar sem rautt spjald leit
dagsins ljós og úrslitin réðust í upp-
bótartíma.
Fjölnir skoraði fyrsta mark leiks-
ins á 38. mínútu eftir skot inni í teig
í nærhornið. Skagamenn svöruðu
markinu strax því fjórum mínútum
síðar jafnaði Hafþór Pétursson met-
in. Þórður Þorsteinn Þórðarson tók
aukaspyrnu sem fór að teig Fjölnis-
manna og þaðan náði Arnór Snær
Guðmundsson að koma boltanum á
Hafþór Pétursson sem skoraði með
einkar skrautlegu skoti. Staðan 1-1
í hálfleik.
í síðari hálfleik var spilaður opnari
og skemmtilegri leikur. Þegar rúm-
ar tíu mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik komst Tryggvi Hrafn Har-
aldsson einn inn fyrir vörn Fjöln-
is. Mario Tadejevic varnarmaður
Fjölnis reyndi hvað hann gat að
ná honum en Tryggvi var sneggri.
Mario ákvað þá að brjóta á Tryggva
og fékk að launum rautt spjald enda
brotið mjög ljótt og hann átti aldrei
möguleika í boltann.
Skagamenn náðu illa að nýta sér
það að vera einum fleiri og áfram
hélt jafnræði með liðunum. Það var
svo þegar tvær mínútur voru liðn-
ar af uppbótartíma að eftir flott spil
Skagamanna sendi Þórður Þor-
steinn boltann inn í teig á Steinar
Þorsteinsson sem renndi honum í
netið. Fjölnir fékk svo hornspyrnu
skömmu síðar þar sem Þórður
Ingason, markmaður Fjölnis, fór
inn í teig. Ingvar Þór Kale náði til
boltans eftir hornspyrnuna og kast-
aði boltanum á Þórð Þorstein sem
skaut boltanum af eigin vallarhelm-
ingi í autt mark Fjölnis. Flautað var
til leiksloka eftir markið og lauk
leiknum því með 3-1 sigri.
Skagamenn eru enn í næstneðsta
sæti deildarinnar eftir leikinn, en
nú með sjö stig. Næsti leikur íA
er á laugardaginn í Garðabæ gegn
Stjörnunni.
bþb/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
Skagamenn fjórum stigum ríkari eftir vikuna
Mario Tadejevic braut illa á Tryggva þegar Tryggvi var sloppinn einn í gegn. Mario fékk rautt spjald að launum.
Þó markið hafi verið autt var mark Þórðar smekklegt þar sem hann var á eigin
vallarhelmingi, af um það bil 70 metra færi.