Skessuhorn - 21.06.2017, Page 32
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Dagskrá fimmtudagsins 29. júní
14:00 - 15:00 Bókasafn Akraness
Heimsókn Sögubílsins Æringja. Sóla sögukona segir frá.
16:00 - 17:30 Grillveisla Húsasmiðjunnar
Hin árlega grillveisla Húsasmiðjunnar er fyrir löngu orðin fastur liður á hátíðinni. Það er tilvalið að líta við og fá sér eina með öllu.
17:00 - 19:00 Garðakaffi, opnun myndlistasýningar
Sólveig Sigurðardóttir, Sissa, heldur myndlistasýninguna Heimahagarnir á Garðakaffi á Írskum dögum. Samhliða sýningunni verður
spákona á staðnum sem spáir í spil og bolla fyrir gesti og gangandi.
17:30 - 19:00 Bókmenntaganga – Akranes heima við hafið
Bókmenntagangan hefst við Akratorg. Gengið verður um gömlu byggðina á Akranesi með nokkrum áningum. Félagar í Skagaleik-
flokknum og bæjarbókavörður segja frá og rifja upp endurminningar Baska (Bjarna Skúla Ketilssonar) eins og þær birtast í bók hans.
Gangan tekur rúma klukkustund og endar á kaffihúsinu Lesbókinni við Akratorg með tónlistaratriði.
18:00 Hjólarallý MODEL og VODAFONE fyrir alla krakka 4-12 ára
Frá upphafi Írskra daga hafa Model og Vodafone verið virkir þátttakendur í dagskrá þeirra og staðið fyrir dorgveiðikeppni. Nú stíga
þau fram og sýna á sér nýja hlið með því að halda hjólarallý fyrir börn á aldrinum 4-12 ára. Öll börn sem taka þátt fá viðurkenningu
fyrir þátttöku. Auk þess verður happadrætti og vinningarnir ekki af verri endanum.
Staðsetning: Planið hjá Þjóðbraut 1 og stóra malarplanið við hliðina.
Skráning: Þátttakendur skrái sig í Model í síðasta lagi 27. júní.
20:00 Ljóð og lög í Guðnýjarstofu
Kalmanskórinn á Akranesi flytur valda kórtónlist upp úr söngheftunum Ljóð og lög sem Þórður Kristleifsson
safnaði saman efni í og gaf út á árunum 1939-1949. Gullmolar sem flestir þekkja en sjaldan heyrast.
Föstudagur: Götugrillin á sínum stað og stórtónleikar á hafnarsvæðinu kl. 22:00
Laugardagur: Brot úr dagskrá: Helgasund, sandkastalakeppni, Rauðhærðasti Íslendingurinn, Sirkus Íslands,
BMX Bros, Best skreytta húsið, Ullarsokkurinn, Björgvin Franz og Bíbí, Raku brennsla, Hálanda
leikarnir, danssýning, tónlistaratriði og margt fleira. Dagurinn endar að venju á brekkusöng og
Lopapeysuballinu.
Sunnudagur: Leikhópurinn Lotta í Garðalundi kl. 14:00
Alla helgina: Leiktæki, paint ball, vatnaboltar og söluvagnar
Tekið er við ábendingum um fleiri dagskrárliði á netfangið irskirdagar@akranes.is
Írskir dagar 29. júní – 2. júlí