Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 20176 Rusl verður list BORGARNES: Aðstanend- ur listahátíðarinnar Plan B hafa náð samkomulagi við Borgar- byggð og Íslenska Gámafélag- ið um nýtingu á efni sem berst á gámastöðina við Sólbakka í Borgarnesi. Frá þessu er greint á heimasíðu Borgarbyggðar. Listamenn hátíðarinnar hafa því leyfi til að nýta efni sem berst á stöðina við listsköpun og þannig glæða gamla hluti nýju lífi. Má því búast við því að rusl, drasl og sorp það sem fleygt verður á stöðina við Sólbakka frá 24. júlí til 11. ágúst muni birtast sem hluti af listaverki eða lista- verkum hátíðarinnar. Listahá- tíðin Plan B var haldin fyrsta sinni í Borgarnesi á síðasta ári. Í ár verður hún haldin dagana 11.-13. ágúst næstkomandi, að því er fram kemur á heimasíðu hátíðarinnar. -kgk Aldrei of seint að hreyfa sig! LANDIÐ: Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra – FÁÍA – hefur unnið að íþróttum og leikjum fyrir eldri borgara í ára- tugi. Haldin hafa verið fjölmörg námskeið fyrir leiðbeinendur í Reykjavík og á Laugarvatni og kynningar hafa verið á léttum æfingum og leikjum á 50 stöð- um á landinu. Nú stendur til að halda leiðbeinendanámskeið 14. ágúst nk. Að þessu sinni verður haldið námskeið fyrir leiðbein- endur eldri borgara og áhuga- fólk um hreyfingu í Iðu, íþrótta- húsi Fjölbrautaskóla Suður- lands og Sundhöllinni á Selfossi 14. ágúst nk. frá kl. 10.00. til 16.00. Á dagskrá verða leikfimi og dans fyrir sitjandi og stand- andi, skyndihjálp, ringó, boccía, sund og sundleikfimi. Skrán- ing og upplýsingar eru hjá neð- antöldum stjórnarmönnum og skal lokið fyrir 4. ágúst: Þórey S. Guðmundsdóttir thoreysg@ hi.is / 694-4216 og Kolfinna Sigurvinsdóttir kolfinnasig@ gmail.com / 893-8949. Fréttatilk. frá stjórn FÁÍA Annað apótek ekki á döfinni AKRANES: Sá almannaróm- ur hefur gengið manna á milli á Akranesi að fyrirtækið Lyf og heilsa hafi í hyggju að opna að nýju lyfjaverslun í verslun- arkjarnanum við Dalbraut 1. Sú fiskisaga komst á kreik eftir að boðað var að snyrtistofunni Dekur yrði lokað, en áfram- leigusamningi Lyfja og heilsu við fyrirtækið hafði þá verið sagt upp. Lyf og heilsa gerði á sínum tíma langtímaleigusamning um húsnæðið við Dalbraut. Fyrir- tækið opnaði þar lyfjaverslun undir merjum Apótekarans árið 2009 en þeirri verslun var lokað árið 2012. Síðan þá hefur Lyf og heilsa áframleigt húsnæðið til ýmissa fyrirtækja sem þar hafa haft starfsemi sína, nú síðast Dekur. Enn eru nokkur ár eftir af leigusamningi Lyfja og heilsu vegna húsnæðisins. Kjartan Örn Þórðarson, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, segir fyrirtækið hins vegar ekki hafa uppi nein áform um að opna lyfjaverslun á Akranesi á nýjan leik. Ekkert slíkt hafi verið ákveðið og verði því að minnsta kosti ekkert á næstunni. -kgk Viðbúnaður vegna reyks úr bíl HVALFJ: Hvalfjarðargöng voru lokuð um tíma síðdegis á miðvikudaginn í liðinni viku eftir að rjúka tók úr bíl sem ekið var upp göngin að sunn- anverðu. Talsverður viðbúnað- ur var eins og ætíð þegar eld- ur er talinn laus í jarðgöngum. Slökkvilið var sent á vettvang frá Akranesi, af Kjalarnesi, Mos- fellsbæ og Tunguhálsi í Reykja- vík, ásamt sjúkrabílum og lög- reglu. Greiðlega gekk að rýma göngin, ráða niðurlögum elds og draga hinn skemmda bíl út. Enginn slasaðist og var hægt að hleypa umferð á að nýju rúmri klukkustund eftir lokun. -mm Verkfræðistofan EFLA hefur lok- ið úttekt á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Markmið skoðunar- innar var að meta umfang raka- vandamála og mögulega greina aðra þætti sem haft geta áhrif á loftgæði og innivist í skólanum. Einnig var ástand ytra hjúps húss- ins metið og tillögur gerðar að úr- bótum. Eins og fram kom í frétt- um fyrr í sumar greindist mygla í húsnæði skólans og var þá þegar ákveðið að ráðast í ítarlega skoð- un á húsinu og bregðast við þeim vanda sem til staðar er. „Húsnæð- ið var nú skoðað ítarlega að inn- anverðu, farið var yfir rýmin með snertirakamælum til að kanna möguleika á raka í byggingarefn- um og raki þannig kortlagður um rýmin. Tekin voru samtals 23 sýni úr byggingarefnum á rakasvæðum til að ganga úr skugga um hvort örveruvöxtur fyrirfyndist. Að ut- anverðu var ástand á veggjum, gluggum, hurðum og þaki metið. Við rakamælingar, sjónræna skoð- un og sýnatöku kom í ljós að raka- vandamál eru til staðar víðs veg- ar um húsið. Niðurstöður sýna- töku staðfestu að örveruvöxtur er kominn í byggingarefni sumsstað- ar innandyra á rakasvæðum,“ seg- ir Gunnlaugur A Júlíusson sveitar- stjóri. Ástand hússins er misjafnt eft- ir aldri byggingahluta. „Ástandið er verst í elsta hlutanum en best í þeim yngsta. útveggir í tveimur elstu hlutunum eru orðnir lélegir, búið er að klæða þá að hluta með múrkerfi. Fyrirhuguð viðbygg- ing við norðurhlið skólans mun leysa lekavandamál á aðliggjandi eldri útveggjum, en eftir stendur suðurhliðin sem þyrfti að lagfæra helst með loftræstri klæðningu yfir vatnsvarða veggi. Búið er að end- urnýja stóran hluta af gluggum og til stendur að klára útskipti glugga í elstu húshlutum í sumar, en leki með gluggum er stærsta örsök raka innanhúss,“ segir hann. Þak skólans er á mörgum stöll- um sem eykur hættu á þakleka. Skoðun leiddi í ljós að rakavanda- mál eru til staðar, sérstaklega í eldri húshlutum. „Komið er að heildar endurnýjun á elsta hlutanum bæði á klæðningum og sperrum. Búið er að skipta um bárujárn á næstelsta hlutanum en timburklæðning va r ekki endurnýjuð, að öllum líkind- um hefði það verið skynsamlegt. Á þriðja áfanganum er trapisuklæðn- ing sem er farin að láta á sjá og væri ráðlegt að skipta henni út fyrir bárustál. Við endurnýjun á þaki er mælt með að allt bárustál sé fest á lektað þak,“ segir Gunnlaugur. Falla að framkvæmdum við viðbyggingu „Til að tryggja góð loftgæði og bæta innivist í húsnæðinu er mikil- vægt að stöðva rakaupptök og fjar- lægja allt rakaskemmt byggingar- efni. Mikilvægt er að fylgja ströng- um verkferlum varðandi hreinsun á raka- og myglusvæðum. Lagfæra og þétta þarf leka byggingarhluta og eftir fremsta megni mynda yf- irþrýsting í íverurýmum með loft- ræsingu. Samhliða framkvæmdum gæti þurft að opna byggingarhluti og framkvæma nánari sýnatöku til að meta heildar umfang raka- skemmda. Bráðabirgðaskýrsla var birt í vor og hefur þegar verið brugðist við þeim niðurstöðum sem þar voru settar fram. „Smíði glugga í suður- hlið skólans er hafin og verður skipt um þá í ágústmánuði. Umhverfis- og skipulagssvið mun vinna við- bragðs- og framkvæmdaætlun vegna niðurstaðna skýrslunnar til skemmri og lengri tíma. Kostnað- armeta verður nauðsynlegar að- gerðir og setja þær í tímaröð,“ seg- ir Gunnlaugur. „Mikið af nauðsyn- legum viðbrögðum við þeirri stöðu sem kemur fram í skýrslunni fellur vel að framkvæmdum við fyrirhug- aða viðbyggingu en undirbúningur að henni er á lokastigi.“ kgk Úttekt lokið á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.