Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201724 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi Ari Grétar Björnsson Sími: 864-2100 Email : taxar@simnet.is Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR GARÐAÚÐUN REYNIS SIG SÍMI: 899-0304 Pennagrein LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Góðir lesendur! Það dylst engum sem hefur kynnt sér og prófað á eig- in skinni, að byggðastefna á Íslandi er í molum. Það stendur ekki steinn yfir steini og handahófskennd vinnubrögð leiða til stórkostlegra breytinga á byggð og skerðingar á mannlífi út um landið. Fjölskyldur leita í ríkari mæli á mölina enda ekki skrítið miðað við þá mismunun sem viðgengst í þessu ríkasta landi heims. Hvað veldur og hvað er til ráða? Í stuttu máli er stað- an þannig að íbúar á köldum svæðum greiða himinhátt verð til að kynda hús sín, margir hafa ekki aðgang að við- unandi ljósleiðaratengingum og njóta ekki vegasambands eða snjómoksturs svo mannsæmandi sé. Einnig stend- ur einfasa rafmagn mörgum fyrir þrif- um. Póstdreifing til sveita og þorpa er þverrandi. Kvótakerfi í sjávarútvegi er meingallað og skilur eftir byggðir í sárum, alger andhverfa þess sem til var ætlast að það myndi tryggja byggð í landinu. Þar verður að gera róttæk- ar breytingar ef ekki á að fara illa. Svo ekki sé minnst á brottkastið gegnum árin. Smáplástrar Byggðastofnunar, byggðakvóti og verkefnið brothættar byggðir eru góðra gjalda verðar, en duga engan veginnn því ekki er ráð- ist gegn rótum vandans. Það verður að jafna kjörin í landinu og leyfa fólki að bjarga sér. Þetta tel ég vænlegt til árangurs: Ívilnanir í gegnum skattkerfið.• Breytt fiskveiðistjórnun. Allur afli • á markað. Frjálsar krókaveiðar. Stórátak í vegagerð. Metnaðar-• full áætlun fyrir jarðgöng. Ljósleiðari og þriggjafasa raf-• magn um allt land. Jöfnun flutningskostnaðar.• Ívilnunum má beita gegnum skatt- kerfið samkvæmt norrænni fyrir- mynd. Norðmenn hafa um árabil styrkt byggðir gegnum skattkerfið með góðum árangri. Ekki síst hafa þeir hugað vel að frjálsum fiskveiðum á harðbýlum svæðum. Hví lítum við ekki til reynslu frænda okkar og gyrð- um okkur í brók í byggðamálum? Ég get sem skattgreiðandi vel unnt góðu fólki í Árneshreppi á Ströndum (svo dæmi sé tekið) þess að greiða lægri tekjuskatt, enda njóta þeir ekki þeirra lífsgæða sem við hér við Faxaflóann teljum sjálfsögð mannréttindi. Það leggur ekki þjóðfélagið á hliðina, en verður hvati til þess að íbúar lands- ins sitji við sama borð. Það verður einnig hvati til þess að stjórnvöld setji fram áætlun hvernig skuli jafna kjörin svo allir greiði sama tekjuskatt. Hægt er að gera sáttmála um hvað lífsgæði liggja að baki ákvörðun um skatt- greiðslur. Það má gera með aðkomu stéttarfélaga, sveitarfélaga og ráðu- neyta. Svona gæti sáttmálinn litið út í grófum dráttum. Skoði nú hver fyrir sig. Þetta má telja til þess sem við höfum byggt upp sem þjóðfélag og ríflega helm- ingur þjóðarinnar telur vera sjálfsögð mannréttindi núna árið 2017. Það er fádæma aumingjaskapur að hafa ekki sama verð á orku til húshitunar um allt land. Þessi gæði voru byggð upp fyrir daga kvótakerfis og skortveiði- stefnu. Það ætti því að vera forgangs- atriði að breyta fiskveiðistjórnuninni og afla tekna. Margar þessar byggðir sem höfðu lagt ógrynni fjár til samfélagsins eru nú rjúkandi rústir því innviðir voru ekki byggðir upp. Uppbyggingu var hætt og heilu byggðirnar skildar eft- ir í myrkrinu og kuldanum. Ljósið í myrkrinu er metnaðarfull áætlun Ra- rik að leggja allt rafmagn í jörðu og þriggja fasa. Það er vel, en þarf að ger- ast miklu hraðar með aðkomu stjórn- valda. Vel er hægt að leggja ljósleiðara með rafstrengjum og spara stórfé líkt og gert var í Öræfasveit. Jöfnun flutningskostnaðar er ein- föld framkvæmd. Sé ekki tollhöfn inn- an 100 km er hægt að beita ívilnunum gegnum skattkerfið. Það er tímabært að innlend fyrirtæki í eigu Íslendinga njóti ívilnana líkt og stór erlend fyrir- tæki í stóriðju. Næg er kvöðin af vaxta- okri fyrirtækja að þurfa ekki að glíma við himinháan flutningskostnað. Það er nauðsynlegt að horfa í bak- sýnisspegilinn og læra af mistökun- um, en það þarf að spyrna við fótum og bjarga byggðunum. Horfa fram á veginn. Bjóða út á EES svæðinu, þessi 20-25 jarðgöng sem á eftir að bora hér innanlands. Gera áætlun um að eyða einbreiðum brúm. Þarna verða þing- menn að setja sig í spor kjósenda sinna, líka þeir sem lifa við öll þessi kjör í Garðabænum (svo dæmi sé tekið). Ef gamli söngurinn kemur um kostnað við verkefnin má benda á stóra tekju- pósta í vannýttum fiskistofnum kring- um landið sem eru varðir af skortveiði kvótakerfisins. Vilji er allt sem þarf til að breyta mannanna verkum. Stefán Skafti Steinólfsson, Akranesi. Höf. er nemi og áhugamaður um byggðamál. Stundum velti ég því fyrir mér hvort sumir upplifi lífið sitt í gegnum snapchat, hvort sem það er í mat, drykk eða bólförum. Stórviðburð- ir hjá fólki eru teknir inn í gegnum þetta smáforrit og sendir út í kos- mósið fyrir aðra að sjá. Til dæm- is finnst mér afar skemmtilegt að fá að vera hleypt inn í líf fólks á þenn- an máta. Þegar hreyft myndskeið af tónleikunum með bjagaðri hljóðrás- inni rennur af stað í þessar 10 sek- úndur streymir um mig vellíðan og ég lifi í voninni að fá að sjá meira. Ég fæ auðvitað að sjá meira, miklu meira en ég kæri mig um að sjá. Ég sjálfur er ekki mikið virkur á snapc- hat, fylgist með vinum mínum og Bubba mínum (ég elska Kjósina). En þetta er ekki það sem ég ætl- aði bara að ræða um í þessum pistli, heldur langar mig líka að deila ást minni á Nickelback með lesendum. Í alvöru, mér líður líkt og ég sé að koma úr skápnum með eitthvað sem hefur þótt beinlínis skammarlegt og óviðeigandi. Vinir mínir hafa samt alltaf vitað, grunar mig, að ég hef þóst „fílað‘etta“ á fyndinn hátt; „hey! setjum´anna lagið Photograph á fóninn strákar það er svo fyndið, HA!“ Í raun þráði ég að heyra lagið en vildi ekki gefa upp hversu mikið ég elskaði það lag. Sama á við um hljómsveitina Creed en það er efni í annan pistil. Já, ég er líka laumu- aðdáandi Bold & the Beautiful. Nickelback er hljómsveit frá Kan- ada og hefur alltaf þurft að berjast fyrir tilverurétti sínum meðal gagn- rýnenda þrátt fyrir að hlustendatöl- ur hafi sýnt fram á annað. Fólk ein- faldlega dýrkar þessa röspuðu rödd hjá Chad og óaðfinnanlega kjálkal- ínu Kroeger bræðra. Ég hef samt mikið svag fyrir hinum gítarleikar- anum, Ryan Peake, hann sinnir ba- kröddum af stakri snilld og á stór- an þátt í lögum á borð við Someday og Missin You. Seinfeld aðdáendur vita kannski ekki af því að sjálfur Jas- on Alexander, sem lék hinn ódauð- lega George Costanza, lék í mynd- bandinu við lagið Trying Not To Love You, ágætis pub quiz fróleik- ur þar á ferðinni, HA! Svo eitt enn, sem er megakúl. Besta hljómsveit í heimi: Pantera. Þeir elska Nickel- back, þá sérstaklega bræðurnir Vin- nie Paul og Dimebag Darrel heit- inn. Svo mikil var vinátta þeirra að þegar Dimebag var skotinn niður á sviði þá samdi Chad Kroeger lagið Side of a Bullet tileinkað vini sínum Dimebag, fékk hann að nota sóló sem Dimebag hafði samið. Talandi um vináttu. Í þessum töluðu orðum er ég að hlusta á playlista sem kallast Nic- kelback discography á Spotify og skammast mín ekkert fyrir það, ég veit að vinir mínir sjá það á Spo- tify að ég er hlusta á Nickelback af áfergju á meðan einhverjum finnst ég þurfa að kafa betur í Immortal, Agalloch, Decapitated og Slayer. Málið er að ég er búinn að gera það og bý að því ævilangt, svona eins og þegar menn segjast vera öruggir með kynhneigð sína, þá sé í lagi fyrir þá að skúra gólf og elda heimilismat – á meðan þeir halda í sín bringu- hár og þriggja daga skegg þá er allt í lagi. Þetta tónar reyndar svolítið við hómóerótíska karlmennsku sem átti sér stað á 9. áratugnum (80´s) þegar menn á mínum aldri fengu að sjá ol- íuborinn Dolph Lundgren lumbra á ófétum í hasarmyndum. Allavega, ég varð bara að koma þessu frá mér. Nickelback er æði og ég hef fílað þá síðan ég heyrði fyrst This is how you remind me (reiknið út hvað það er langur tími). Eitt enn með snapchat; ég ásamt fleirum bíðum eftir fleiri grills- nöppum, nærmyndum af hundakúk og fjallgöngusnöppum. Þrjár fleiri ástæður fyrir fólk að hata sjálft sig og ímynda sé hvers vegna það sé vinur fólks sem gerir slíkt, meina hver grillar svona oft. Kveðja, Axel Freyr PISTILL Sá það á snapchatByggðastefna í molum, en það er von! Lífsgæði Já/Nei Lækkun tekjuskatts Heitt vatn til kyndingar/neyslu 10% Ljósleiðaratenging 100 Gb 5% Tvíbreiður vegur/slitlag/snjómokstur daglega 5% Þriggja fasa rafmagn. 5% Póstþjónusta dagleg/pósthús innan 50 km radíus 2% Annað. (t.d. samgöngur frá eyjum, ferjur, flug o.fl.) (3%)

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.