Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201718 „Vona að við þurfum ekki að ganga Druslugöngu í framtíðinni“ „Druslugangan er alþjóðleg bar- áttuhreyfing sem berst gegn því óréttlæti sem þolendur kynferðis- glæpa þurfa að lifa við. Í göngunni kemur saman fjöldinn allur af fólki sem eru ýmist þolendur, aðstand- endur og/eða aðilar sem styðja mál- staðinn og taka afstöðu. Gangan var upphaflega gengin í Toronto í Kan- ada árið 2011 vegna umdeildra um- mæla lögreglustjórans í borginni. Hann sagði á háskólafyrirlestri að konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki fórnalömb kynferðisglæpa. Þetta sama ár, þann 23. júlí, var gengið í fyrsta sinn á Íslandi,“ segir Skaga- konan Vera Líndal Guðnadóttir í samtali við Skessuhorn. Hún er einn af skipuleggjendum Druslu- göngunnar sem gengin verður í Reykjavík laugardaginn 29. júlí næstkomandi. „Yfirlýst markmið Druslugöng- unnar er að uppræta kynferðis- ofbeldi og allar birtingarmynd- ir þess, kalla eftir bættri úrvinnslu mála í þessum málaflokki og binda enda á fordóma sem þolendur kyn- ferðisofbeldis verða fyrir, en það er afar mikilvægt að skömminni og ábyrgðinni sé skilað þangað sem hún á í öllum tilfellum heima, hjá gerendum. Á hverju ári höfum við síðan ákveðna áherslu sem teng- ist og styður við þessi mikilvægu markmið okkar,“ segir Vera. Hún segir að á síðasta ári hafi kastljós- inu verið beint á fyrirbyggjandi að- gerðir eins og forvarnir og fræðslu. „Við bjuggum til örskýringar- myndbönd þar sem við tókum fyrir ákveðin hugtök sem hafa vafist fyr- ir sumu fólki, en þessi hugtök hafa oft og tíðum verið mistúlkuð og þar með ekki náð sessi í umræðunni. Með þessum myndböndum var markmiðið að skipta skaðlegri orð- ræðu út fyrir uppbyggilega og opna þannig umræðu sem vonandi breyt- ir viðhorfum samfélagsins og kem- ur í veg fyrir að kynferðisofbeldi eigi sér stað,“ segir hún. Stafrænt kynferðisof- beldi „Í ár ákváðum við að halda áfram með mjög þarfa fræðslu um eitt af þessum viðfangsefnum, en það er stafrænt kynferðisofbeldi. Hugtak- ið stafrænt kynferðisofbeldi er frek- ar nýtt af nálinni, sumir þekkja það kannski betur sem ,,hefndarklám”, en það hugtak er ansi skýrt dæmi um það hversu stutt við erum í raun komin í þessum málaflokki. Orðið hefnd á ekki við í öllum tilfellum og klám á aldrei við þegar um staf- rænt kynferðisofbeldi er að ræða. Það þarf að vera skýrt, klám er orð- ið svo hversdagslegur partur af lífi fólks að um leið og dreifing á kyn- ferðislegu myndefni í leyfisleysi er flokkað sem klám, þá er dregið úr alvarleika þess. Þvert á móti á ekki að liggja neinn vafi á því að um of- beldi er að ræða,“ segir Vera. „Við viljum að fólk átti sig á því hvenær það er orðið þátttakandi og þeirri staðreynd að stafrænt kynferðisof- beldi getur haft mjög svipaðar af- leiðingar og annað kynferðisof- beldi. Þolendur þess sitja eftir í sár- um, bæði andlega og líkamlega.“ Vera segir okkur vera komin mjög stutt í þessum málaflokki, þol- endur mæti oft miklum fordómum og dómhörku. „Þeim er hreinlega kennt um að hafa orðið fyrir kyn- ferðisofbeldi. Þeim er kennt um það þegar annar aðili tekur þá ákvörðun að deila kynferðislegu myndefni af því í leyfisleysi. Þeim er kennt um það því þau tóku mynd af sér og sendu hana til einhvers sem þau treysta. Þeim er einnig kennt um það þegar annar aðili rænir mynd- um úr þeirra persónulegu gögnum. Þeim er meira að segja kennt um það þegar einhver tekur upp kyn- ferðislegt myndefni af þeim í leyf- isleysi og deilir með heiminum í óþökk þeirra!“ segir Vera. „Ekki vera gerandi“ Með Druslugöngunni í ár er því kallað eftir viðhorfsbreytingu gagnvart stafrænu kynferðisof- beldi. „Þolandinn á aldrei að bera ábyrgð á því þegar gerandinn brýt- ur á þeim, sama hvort það gerist í lífheiminum eða þeim stafræna. Til þess að þessi breyting geti átt sér stað þurfa að verða breytingar á úr- vinnslu þessara mála og hugarfari okkar gagnvart þeim. Við þurfum að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir til þess að koma í veg fyrir að ofbeld- ið eigi sér stað,“ segir Vera. „Það er mjög mikilvægt að við kennum börnunum okkar snemma í ferl- inu eðlileg samskipti og hvað það þýðir að bera virðingu fyrir hvoru öðru. Mikið af okkar samskiptum fara fram á samfélagsmiðlum og það er mikilvægt að við gerum okk- ur grein fyrir því að ákvarðanir sem við tökum þar inni eru raunveru- legar og geta haft áhrif á okkur og aðra,“ bætir hún við. Hún segir aðstandendur Druslu- göngunnar vinna í að dreifa fræð- andi upplýsingum um það hvenær stafrænt kynferðisofbeldi á sér stað. „Því það eru ekki bara ofbeldis- menn sem eru gerendur. Þetta er í miklu magni líka að gerast beint fyrir framan nefið á okkur. Skila- boðin okkar eru því þessi: „Að deila, horfa á og/eða taka upp kyn- ferðislegt myndefni í leyfisleysi er stafrænt kynferðisofbeldi. Ekki taka þátt. Ekki vera gerandi,“ seg- ir Vera. Alltaf fylgst með göngunni Vera er hluti af tíu manna teymi sem sér í sameiningu um hug- myndavinnu og praktísk atriði er snerta gönguna sjálfa, peppkvöld Druslugöngunnar og samskipti við fjölmiðla. „Í fyrra verkstýrði ég og sá um gerð örskýringa myndband- anna ásamt frábæru fólki í teym- inu og utan þess. Í ár hef ég verið tengiliður við göngur úti á landi, en við erum í góðu samstarfi við Akur- eyri, ásamt því sinni ég hugmynda- vinnu fyrir uppátæki ársins, því við reynum við að finna upp á nýjum leiðum til þess að dreifa boðskapn- um. út frá því verða til hin ýmsu verkefni sem deilast á milli okkar. Druslugangan gaf til að mynda út bók fyrir skömmu síðan, en hana má finna í öllum helstu bókabúð- um landsins,“ segir hún. Vera kveðst hafa fylgst með göngunni og umræðunni í kringum hana frá því hún var fyrst haldin. „Ég gekk síðan mína fyrstu göngu árið 2014 og það er erfitt að lýsa því hvernig tilfinning það er, maður er alveg hræður yfir samstöðunni og kraftinum. Þarna ganga þúsundir manna og segja ofbeldi og óréttlæti að fokka sér, fyrir sig og fyrir alla aðra. Það þykir mér afar fallegt,“ segir hún. „Ég dáðist af þeim sem stóðu fyrir göngunni í nokkur ár áður en ég bauð mig fram í street teymi Druslugöngunnar, en street teymið er hópur fólks sem aðstoðar okkur við alls konar verkefni tengd göngunni. út frá því var mér boð- ið að vera með í skipulagsteyminu. Augljósu ástæðurnar fyrir því að ég ákvað að taka þátt eru þær að mér er afar annt um málstaðinn, hann tengist mér og allt of mörgu fólki í kringum mig með beinum eða óbeinum hætti. Ég vil sjá breyting- ar og því legg ég mitt af mörkum til þess að sjá þær verða að veruleika,“ segir Vera. Druslugangan hefur áhrif. Frá því Vera kynntist göngunni fyrst hefur hún stækkað verulega. „En það sem ég tek helst eftir er hvað samfélagið okkar hefur tekið miklum breytingum. Á hverju ári opnast umræðan um kynferðisof- beldi meira og meira. Samhliða því bætist í hópinn sem kynnir sér mál- efnin, tekur afstöðu með málstaðn- um og gengur gönguna,“ segir hún og er ekki í vafa um að gangan hafi haft og muni halda áfram að hafa áhrif. „Gangan býr til mikilvægan grundvöll fyrir þolendur kynferðis- ofbeldis til þess að segja frá. Sam- staðan og stuðningurinn er mjög mikilvægur þegar fólk ætlar að taka fyrstu skrefin í að skila skömm- inni. Mikil aukning hefur orð- ið í tjáningu þolenda á þessum sjö árum. Viðhorf samfélagsins gagn- vart kynferðisofbeldi hefur breyst til hins betra og það má þakka Druslugöngunni og internetbylt- ingum á borð við free the nipple, gulu og appelsínugulu brosköllun- um og beauty tips byltinginnu sem bar millumerkið #þöggun og/eða #konur tala, að þetta hafi þróast svona,“ segir Vera. Vonar að sem flestir gangi Þegar blaðamaður spyr Veru hvernig hún sjái gönguna fyrir sér í framtíðinni stendur ekki á svör- um: „Ég vona að við þurfum ekki að ganga Druslugöngu í framtíð- inni,“ segir hún. „Þá vona ég að við göngum skrúðgöngu og fögnum því að loksins hafi markmiði okkar verið náð að útrýma því samfélags- lega meini sem kynferðisofbeldi er,“ bætir hún við. Gangan verður með svipuðu sniði og verið hefur í Reykjavík. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan 14 á laugardaginn, niður Skólavörðustíg og endað á Aust- urvelli þar sem kraftmikil dagskrá tekur við. „Við vonum auðvitað að sem flestir gangi með okkur, sama hvar fólk er staðsett á landinu. Í ár höfum við unnið hönd í hönd með druslum á Akureyri, þær eru gríðarlega öflugar og við vonumst til þess að geta nýtt gott samstarf okkar til þess að spegla það yfir á önnur bæjarfélög á næstu árum,“ segir Vera Líndal Guðnadóttir að endingu. kgk Vera Líndal Guðnadóttir, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar 2017. Lagt upp í Druslugöngu frá Hallgrímskirkju árið 2014. Ljósm. Birta Rán. Slagorð hrópuð og boðskapnum dreift. Ljósm. Birta Rán. Druslugangan hefur vaxið ár frá ári og er orðinn mjög fjölmennur viðburður. „En það sem ég tek helst eftir er hvað samfélagið okkar hefur tekið miklum breytingum. Á hverju ári opnast umræðan um kynferðisofbeldi meira og meira,“ segir Vera. Ljósm. Helga Lind.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.