Skessuhorn - 26.07.2017, Síða 7
Kynslóðirnar saman 3. – 7. ágúst
Líkt og síðustu ár verður fjölskylduhátíðin Sæludagar
haldin í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina. Síðustu
ár hefur fjöldi fólks sótt hátíðina en þar skemmta kyn-
slóðirnar sér saman á kvöldvökum, úti á vatni og á íþrótta-
vellinum. Hátíðin hefst fimmtudaginn 3. ágúst og er hún
vímuefnalaus.
Dagskráin í ár er fjölbreytt og spennandi að venju. Í
Vatnaskógi er frábær aðstaða fyrir unga sem aldna og er
hún nýtt á skemmtilegan og fjölskylduvænan máta á Sælu-
dögum.
Boðið verður upp á: Tónleika, varðeld, íþróttir, fjöl-
breyttar fræðslustundir, stórar vatnaskógarkvöldvökur,
heilt hoppukastalaþorp, báta- og vatnafjör, fjölskyldu-
guðsþjónustu, kyrrðarstundir, unglingadagskrá, göngu-
ferðir og fleira.
Stórtónleikar: Friðrik Dór og Jón Jónsson•
Brúðuleikhús: Íslenski fíllinn – stórkostleg sýning úr smiðju Bernd Ogrodnik•
Bíbí og Björgvin Franz•
Unglingadagskrá – Mission Impossible•
Frábær tjaldstæði og möguleiki að tengjast rafmagni á flestum flötum•
Forsala og nánari upplýsingar á skrifstofum
KFUM og KFUK í síma 588-8899, frá kl. 9:00
til 17:00 og á kfum.is
Hjartanlega velkomin(n) í Vatnaskóg um
verslunarmannahelgina.
Sæludagar
í Vatnaskógi