Skessuhorn - 26.07.2017, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201710
Háskólaráð Landbúnaðarháskóla
Íslands hefur ákveðið að auglýsa
að nýju starf rektors skólans laust
til umsóknar. Eftir að háskólaráð-
ið hafði móttekið niðurstöður val-
nefndar, í kjölfar þess að rektors-
staðan var auglýst í vor, kom í ljós
að valnefnd hafði talið einn um-
sækjanda, Hermund Sigmunds-
son, hæfan til starfsins. Alls höfðu
sex sótt um starfið. Hins vegar mun
það hafa komið í ljós í viðræðum
við Sigmund að hann gat ekki kom-
ið til starfa innan viðunandi tíma-
marka, að mati háskólaráðs. „Há-
skólaráð hefur í framhaldi af því
ákveðið að auglýsa starfið að nýju,
en jafnframt leita leiða í samráði
við menntamálaráðherra að manna
stöðu rektors tímabundið með sett-
um rektor.“ Björn Þorsteinsson nú-
verandi rektor hefur þegar óskað
eftir lausn frá starfinu af persónu-
legum ástæðum. mm
Golfklúbburinn Leynir á Akranesi
er nú að undirbúa framkvæmdir
við byggingu nýrrar frístundamið-
stöðvar við Garðavöll. Verkefnið
er unnið í nánu samstarfi við Akra-
neskaupstað. Eins og komið hefur
fram í fréttum Skessuhorns sam-
þykkti bæjarstjórn að fara af stað
með verkefnið í samstarfi við golf-
klúbbinn. „Nú erum við að bjóða
út steypuhluta byggingarinnar, þ.e.
grunn og sökkla, kjallara og jarð-
hæð ásamt forsteyptum einingum.
Síðan er næsta útboð innri frágang-
ur hússins og þakvirki. Þriðja og
síðasta útboðið verður síðan jarð-
vinna og niðurrif á núverandi bygg-
ingum. Áætlanir gera ráð fyrir því
að framkvæmdir hefjist af krafti á
haustmánuðum svo fremi að hag-
stæð tilboð berist í þessa verkhluta
og verkefnið geti þannig rúmast
innan þess fjárhagsramma sem við
vinnum eftir. Áætlanir gera ráð fyr-
ir því að húsið verði tilbúið til notk-
unar í byrjun maí vorið 2018, eða
fyrir næstu golfvertíð,“ segir Guð-
mundur Sigvaldason framkvæmda-
stjóri Leynis í samtali við Skessu-
horn.
Frístundamiðstöðin verður tæp-
ir þúsund fermetrar að flatarmáli,
eins og upphaflega var lagt upp
með. „Það er mikil tilhlökkun hjá
stjórn og öllum félagsmönnum í
Leyni fyrir þessu verkefni. Hús-
ið mun gjörbreyta aðstöðu golf-
spilara en ekki síður mun það nýt-
ast íbúum og gestum í bæjarfélag-
inu. Markmið verkefnisins er að
þarna mun rísa öflug frístundamið-
stöð þar sem hægt verður að rúma
fjölbreytta starfsemi allan ársins
hring,“ segir Guðmundur. Golf-
klúbburinn Leynir hefur með und-
irbúning, hönnun og umsjón með
verkefninu að gera, en Akranes-
kaupstaður leggur til fjármagn, sem
áætlað er að verði um 80-90% af
heildar byggingarkostnaði. mm
Í lok síðasta árs var hafist handa við
framkvæmdir á sundlaugarvæðinu
á Jaðarsbökkum á Akranesi. Fram-
kvæmdirnar snúa að ýmsum þáttum
og hefur m.a. verið skipt um lagn-
ir og nýir miðlunartankar teknir í
notkun. Stærsta breytingin er sú að
heitu pottarnir sem fyrir voru hafa
verið teknir í burtu auk vaðlaugar-
innar. Í staðinn kemur vaðlaug sam-
tengd tveimur nýjum heitum pott-
um, annar hefðbundinn en hinn
með nuddi. Pottarnir tveir verða
fremur stórir og svipar breytingin
til stóra heita pottarins sem tekinn
var í notkun í Vesturbæjarlauginni í
Reykjavík árið 2014.
Stefnt var að því að ljúka fram-
kvæmdum á Akranesi í apríl síðast-
liðnum en þeim er ekki enn lokið.
Hefur verkið því dregist um tæpa
fjóra mánuði. Hörður Kári Jóhann-
esson, umsjónarmaður íþrótta-
mannvirkja hjá Akraneskaupstað,
viðurkennir í samtali við Skessu-
horn að það séu vonbrigði að verk-
ið sé enn ekki klárt. „Við erum búin
að opna vaðlaugina og annan pott-
inn en nuddpotturinn er enn óklár-
aður. Það sem hefur tafið verkið er
mósaíkflísalögnin í pottunum. Það
er töluvert meiri vinna en menn
höfðu búist við. Þeir sem vinna að
verkinu eru að reyna að vinna það
eins hratt og örugglega og kostur
er. Framkvæmdunum er hins vegar
að ljúka en ég held að það sé ekki
ráðlagt að skjóta á nákvæma dag-
setningu verkloka,“ segir Hörður
Kári.
Eins og áður segir átti verkinu
að vera lokið í byrjun apríl. Skessu-
horn leitaði svara hjá Akraneskaup-
stað hvort dagsektir væru vegna
tafanna sem orðið hafa. Í svörum
Sigurðar Páls Harðarsonar, sviðs-
stjóra skipulags- og umhverfissviðs
Akraneskaupstaðar, kemur fram að
heimild til dagsekta sé vissulega
til staðar. Nú standi yfir viðræður
um verkuppgjör og ekki sé hægt að
greina að svo stöddu frá því hvort
eða hvernig þeim verði beitt. Það
komi ekki í ljós fyrr en endanleg
niðurstaða og verkuppgjör liggi fyr-
ir. „Vegna tafa á verkinu hefur það
verið opnað í áföngum þ.e. vaðlaug
og svokallaður friðarpottur. Eftir
er að klára síðasta pottinn. Vonir
standa til þess að það verði fljótlega
í ágúst mánuði,“ segir í svari Sig-
urðar við fyrirspurn Skessuhorns.
bþb
Öll sveitarfélög á Íslandi, 74 tals-
ins, taka þátt í landssöfnuninni Vin-
átta í verki, sem Hjálparstarf kirkj-
unnar, Hrókurinn og Kalak efndu
til vegna hamfaranna á Grænlandi
í júní. Þúsundir einstaklinga og
fjöldi félaga og fyrirtækja hafa líka
lagt söfnuninni lið. Nú hafa safn-
ast næstum 43 milljónir króna, án
nokkurs tilkostnaðar. Söfnuninni
lýkur nú í vikunni, og eru aðstand-
endur í skýjunum yfir viðbrögðum
Íslendinga.
Fjórir fórust og gríðarlegt eigna-
tjón varð þegar flóðbylgja gekk
yfir þorpið Nuugaatsiaq í Uum-
mannaq-firði á Vestur-Grænlandi,
aðfararnótt 18. júní. Íbúar Illorsuit
sluppu naumlega við flóðbylgjuna,
en íbúar þorpanna tveggja fá ekki
að snúa heim í a.mk. eitt ár, vegna
hættu á frekari hamförum. Alls eru
því um 200 manns, þar af um 70
börn, sem eru flóttafólk í Uumma-
annaq og Asiaat, sem eru stórir bæir
á vesturströndinni.
Mikið starf hefur verið unnið á
Grænlandi við að búa flóttafólkinu
sem bestar aðstæður, en verkefnið
er stórt og flókið fyrir litla þjóð í
stóru landi.
Hrafn Jökulsson, aðalskipuleggj-
andi Vináttu í verki, segir viðbrögð
Íslendinga sýna þá djúpu vináttu
sem er milli þjóðanna: ,,Viðbrögð
almennings slógu strax öll fyrri met
í neyðarsöfnunum Hjálparstarfs
kirkjunnar. Þúsundir og aftur þús-
undir hafa hringt í styrktarsímann
eða lagt inn á söfnunarreikninginn.
Fyrirtækin okkar hafa líka, sum
hver, sýnt rausn og myndarskap.“
Hæstu framlög fyrirtækja til
söfnunarinnar komu frá útgerðar-
fyrirtækinu Brim og Eimskip, tvær
milljónir króna. Þá lögðu Air Ice-
land Connect og Landsvirkjun eina
milljón til, og 500 þúsund hafa bor-
ist frá Húsasmiðjunni, Arion banka
og Landsbankanum.
Ýmis félög og samtök hafa sömu-
leiðis komið með myndarleg fram-
lög: Hallgrímssókn lagði fram eina
milljón, Björgunarsveitin Sæbjörg
á Flateyri safnaði rúmlega 500 þús-
und, og styrktarsjóður KIWANIS
og Alþýðusamband Íslands lögðu
fram sömu upphæð. Leikskólar
á Akureyri og Reykjavík efndu til
safnana og hinir 86 íbúar Gríms-
eyjar reiddu fram 200.000 kr.
Síðustu vikur hefur svo verið
leitað til allra sveitarfélaga á Íslandi
um að mynda kærleikskeðju, hring-
inn um landið. ,,Þannig vildum við
bæði sýna grönnum okkar stuðn-
ing og kærleika á erfiðum tímum,
en líka endurgjalda Grænlending-
um sem efndu til landssöfnunar
þegar snjóflóðið mikla féll á Flat-
eyri 1995,“ segir Hrafn. Hæstu ein-
stöku framlögin frá sveitarfélögum
eru frá Reykjavík, fjórar millj.,
Kópavogi tvær millj. og Akureyri
og Hafnarfirði ein milljón. ,,Töl-
urnar eru vissulega ánægjulegar,
en mér finnst ennþá gleðilegra að
hvert einasta sveitarfélag hafi lagt
í þetta vináttunnar púkk, allt eftir
efnum og aðstæðum,“ segir Hrafn
Jökulsson.
Söfnunarreikningur og styrkt-
arsími verða opin næstu vikuna,
en Hrafn segir að endahnúturinn
verði uppboð nú í vikunni þar sem
tveir sannkallaðir dýrgripir verða á
boðstólum. mm
Öll sveitarfélög á Íslandi
sýndu vináttu í verki
Tölvugerð mynd af framkvæmdunum við Jaðarsbakkalaug.
Framkvæmdum við
Jaðarsbakkalaug fer senn að ljúka
Útlitsteikning af nýju frístundamiðstöðinni sem rísa mun á sama stað og nú-
verandi klúbbhús við Garðavöll. Stefnt er að verklokum í maí á næsta ári.
Bjóða út byggingu
frístundamiðstöðvar
við Garðavöll
Auglýsa að nýju
starf rektors LbhÍ