Skessuhorn - 26.07.2017, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201712
Tíðindamaður Skessuhorns rakst
nýverið á hjónin Gala og Just-
in Judge frá Belfast á Írlandi þar
sem þau voru stödd í Álftafirði
á Snæfellsnesi. Þar voru þau við
sýnatöku vegna rannsóknar Just-
ins sem er hluti af doktorsverk-
efni hans við Queens Háskólann
í Belfast. Í rannsókn sinni ætl-
ar Justin að athuga hvort hækk-
andi hitastig hafsins; súrnun sjáv-
ar og tap búsvæða hafi sömu áhrif
burtséð frá því hvort sýnin komi
frá Íslandi, Írlandi eða Portúgal.
Hafa þau hjón safnað sýnum frá
þessum löndum. Þau komu fyrst
til Stykkishólms í mars á þessu
ári og settu út búnað meðfram
ströndinni í firðinum. Var búnað-
urinn látinn liggja í fimm mánuði
í sjónum það er frá mars til júlí.
Í Queens háskólanum í Belfast
mun Justin svo rannsaka og gera
tilraunir til að sjá hvort sýnin sem
hann hefur safnað frá Íslandi, Ír-
landi og Portúgal bregðist eins
við þessum umhverfisþrýstingi.
Ef niðurstaða rannsókna hans
gefa til kynna að sýnin frá öllum
þremur löndunum bregðast eins
við þarf að taka tillit til þessara
hluta á stórum strandsvæðum í
Norður - Atlandshafi. Aðspurð-
ur hvers vegna hann hefði val-
ið þessi þrjú lönd sagði Justin að
ef þau væru skoðuð á korti, væri
næstum hægt að draga beina línu
í gegnum þau sem næði yfir stór-
ann hluta Norður - Atlandshafs-
ins og ætti því að gefa nákvæm-
ari og betri niðurstöður úr rann-
sókninni. Ísland væri frábært land
til að safna sýnum frá efst úr At-
landshafinu og stæði fyrir lægsta
hitann í sjónum á skalanum, Ír-
land með meðalhitann og Portú-
gal þann hæsta. Voru þau hjón
spennt fyrir landinu en tíminn
leyfði því miður ekki mikið af
skoðunarferðum að þessu sinni.
þa
Veitingastaðurinn Viðvík Restur-
ant var formlega opnaður síðast-
liðinn laugardag á Hellissandi. Við-
vík er við þjóðveginn þegar ekið er
frá Sandi og suður fyrir jökul. Hús-
næðið sem hann er í hefur verið
mikið endurbætt og er staðurinn
allur hinn glæsilegasti. Opnuninni
var fagnað kvöldið áður og gestum
boðið að skoða húsnæðið og fagna
með eigendum. Eigendur staðar-
ins eru þau Sigurður V. Sigurðs-
son, Kristín Björk Gilsfjörð ásamt
sonum þeirra, þeim Gils Þorra og
Magnúsi Darra og tengdadætrum
Anítu og Helgu.
Í Viðvík er boðið upp á smárétti
sem leika bæði við bragðlaukana
og augu. Stefnt er að hafa opið frá
klukkan 17:30 til 22:00 þriðjudaga
til sunnudaga. þa
Skessuhorn hefur fram til þessa
ekki gert mikið af því að fjalla um
kóngafólk, en stenst nú ekki mát-
ið. Þessi myndarlegi piltur, Ge-
org Vilhjálmsson, varð fjögurra
ára fyrr í vikunni. Hann er þriðji í
röð ríkisarfa Bretlands, en Elísa-
bet er langamma hans, Karl er af-
inn og faðir hans er Vilhjálmur
Karlsson.
mm
Hafnasamband Íslands og Vega-
gerðin hefur sent hlutaðeigandi
sveitarfélögum beiðni um umsagn-
ir þar sem lagt er til að lagðir verði
niður sjö vitar við strendur lands-
ins. Hér á Vesturlandi er lagt til að
Kirkjuhólsviti á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi verði aflagður. Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggðar nýver-
ið var erindinu svarað á þá lund að
Borgarbyggð teldi ekki tímabært
að slökkva á ljósum vitans. „Í dag
er lýsing í landi töluverð, og litlar
sem engar siglingar frá Borgarfirði
upp með ströndinni eða að strönd-
inni sem gerir vitann óþarfan til að
staðsetja siglingu,“ segir í umsögn
Hafnasambandsins. Upphaflega var
Kirkjuhólsviti reistur fyrir siglingar
frá Þormóðursskeri í mynni Borg-
arfjarðar til Malarrifs svo að sjófar-
endur gætu haft viðmið um stað-
setningu þegar siglt var meðfram
ljóslausri strandlengjunni.
Byggðarráð taldi á fundi sínum
ótímabært að leggja niður Kirkju-
hólsvita þar sem siglingar um
Borgarfjörð eru ekki aflagðar og
sigling um fjörðinn þar að auki tal-
in hættuleg. Var sveitarstjóra falið
að svara erindinu.
mm
Nú er unnið að því að skipta um
gervigras í Akraneshöllinni en
stefnt er að því að ljúka verkinu síð-
ari hluta ágústmánaðar. Í vor sam-
þykkti Akraneskaupstaður 38 millj-
óna króna tilboð Metratron í verk-
ið. Gervigrasið er vottað af FIFA
og stenst staðalinn Fifa Quality
pro field test. Gúmmímotta verð-
ur undir gervigrasinu sjálfu og ofan
á gervigrasið verður svo lagður sili-
calsandur og hreint gúmmíkurl,
en ekki dekkjakurl. Nánar má lesa
um verkið í aðsendri grein Einars
Brandssonar og Þórðar Guðjóns-
sonar í Skessuhorni vikunnar.
Stefnt er að því að skipta um
ljósabúnað í Akraneshöllinni eftir
gervigrasskiptin og koma þá fyrir
LED-ljósabúnaði sem bæta á lýs-
inguna innanhúss.
bþb
Georg fjögurra ára
Hafna því að slökkt verði
á Kirkjuhólsvita
Framkvæmdir standa nú yfir. Búið er að fjarlægja gervigrasið sem áður var og nú
unnið að því að setja nýtt á.
Nýtt gervigras
lagt í Akraneshöllinni
Bera saman ástand sjávar í
nokkrum löndum
Sigurður V og Kristín Björk ásamt sonum og tengdadætrum.
Búið að opna Viðvík