Skessuhorn - 26.07.2017, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 2017 13
P
Ó
S
T
U
R
IN
N
/©
2
0
1
7
ÚTBO‹:
Frágangur á Frístundami›stö›
Golfklúbburinn Leynir í samstarfi vi› Fasteignafélag
Akraneskaupsta›ar hyggst reisa Frístundami›stö› á
Gar›avelli á Akranesi. Frístundami›stö›in ver›ur húsnæ›i
fyrir alla aldurshópa sem stefnt er a› opni í byrjun maí 2018.
Húsnæ›i› ver›ur 960 m2 sem skiptist í 660 m2 jar›hæ› me›
veitinga- sal og skrifstofum, 300 m2 kjallara me› innistö›u
fyrir golfæfingar og aðra frístundastarfsemi.
Verktími framkvæmdar er áætla›ur frá 1. október 2017
ennflá mun ni›urrif og jar›vinna hefjast, og í framhaldi
fless mun uppsteypuverktaki reisa einingar og steypa
saman mannvirki›. Frágangsverktaki mun hefja störf um
áramót og ljúka verkinu fyrir 1. maí 2018.
Mannvirki› er gert úr forsteyptum bur›areiningum,
me›álplötum í utanhússklæ›ningu. Meginflak er límtré
ásamt forsmí›u›um flakeiningum. Á jar›hæ› ver›ur innri
frágangur látlaus og smekklegur en einfaldur í kjallara
Golfklúbburinn Leynir í samstarfi vi› Fasteignafélag
Akraneskaupsta›ar óskar eftir áhugasömum verktökum
til a› taka flátt í opnu útbo›i á innri og ytri frágangi
hússins. Verktaki mun taka vi› verkinu uppsteyptu
og skila flví fullkláru›u til verkkaupa.
Útbo›sgögn eru afhent á stafrænu formi me› flví a›
sendatölvupóst á netfangi› akranes.utbo›@mannvit.is,
flar semfram kemur heiti verks, nafn bjó›anda ásamt
netfangi, nafni og símanúmer tengili›s. Tilbo› vi› Gar›avöll
fimmtudaginn 17. ágúst kl. 11.00.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Niðurrif Sementsverksmiðju
á Akranesi
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í
niðurrif á byggingum og búnaði
Sementsverksmiðjunnar á Akranesi.
Helstu stærðir:
Byggingar (brúttórúmmál) 140.000 m3
Rifsvæði 14.000 m2
Fjöldi mannvirkja 16 stk.
Verktími er til 20. ágúst 2018.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvu-
póst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur
heiti verks, nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmer
tengiliðs. Kynningarfundur verður á verkstað fimmtudaginn 27. júlí
2017 kl. 9:30.
Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18,
300 Akranes, miðvikudaginn 30. ágúst 2017 kl. 11.00.
Sviðsstjóri Skipulags- og umhverfissviðs
Aron Jóhannes Leví Kristjánsson
keypti rekstur ferðaþjónustufyrir-
tækisins Snæfellsjökull Glacier To-
urs í maí síðastliðnum. Aron er frá
Rifi og hefur alla sína ævi starf-
að sem sjómaður. Hann ákvað að
breyta til síðasta vor og hasla sér
völl í ferðaþjónustunni. „Ég fór
fyrsta túrinn með pabba þegar ég
var barn en tók fyrsta sumarið mitt
á grásleppu 14 ára gamall. Allar
götur síðan hef starfað sem sjómað-
ur. Undanfarin tíu ár eða svo hef
ég verið á línubátum,“ segir Aron í
samtali við Skessuhorn. En hvernig
kom það til að hann ákvað að reyna
fyrir sér í ferðaþjónustunni?
„Mig langaði að breyta til og
prófa að gera eitthvað bara fyrir
sjálfan mig, að minnsta kosti yfir
sumartímann því ég mun fara aftur
á sjó í vetur,“ segir hann. „Mér líkar
mjög vel í ferðaþjónustunni. Þetta
er frábrugðið sjómennskunni sem
er ágætt. En svo venst maður þessu
örugglega eins og öllu öðru,“ bætir
hann við.
Aðspurður segir hann hafa geng-
ið ágætlega í jöklaferðunum það
sem af er sumri. „Já, þetta hefur
gengið ágætlega þó veðrið hafi ekki
alltaf verið okkur í hag. Síðasti vet-
ur var snjóléttur og svo hefur hrein-
lega ekki komið almennilegt sumar
ennþá. En um leið og það er heið-
skír dagur finnur maður að það
kemur dálítil innspýting í ferðirnar.
Ég vil að það snjói í fjöllin á veturna
og sé heiðskírt á sumrin, það er al-
besta veðráttan fyrir þennan rekst-
ur,“ segir hann.
Ekkert stress að fara
niður
Ferðir Snæfellsjökull Glacier Tours
eru áætlunarferðir upp á jökulinn.
Farið er frá Litla-Kambi í Breiðu-
vík, þar sem fyrirtækið er til húsa.
Að jafnaði segir Aron að farnar séu
tvær ferðir upp á jökul á dag á snjó-
troðaranum. „En stundum eru þær
fleiri, allt upp í fjórar ferðir á dag
á góðum dögum,“ segir hann. „Það
er farið á bíl upp á Jökulhálsaleið
og að snjótroðurunum sem bíða við
jökulröndina. Síðan er farið upp á
jökulinn að austanverðu og alveg
upp á topp,“ segir Aron. Hverja
ferð segir hann taka á bilinu tvær
til tvær og hálfa klukkustund. „Ef
það er gott veður og heiðskírt þá
vill fólk gjarnan taka sér tíma uppi
á jöklinum. Þá er ég ekkert stress
að leggja af stað niður aftur, sér-
staklega ekki ef þetta er síðasta ferð
dagsins,“ segir hann.
Sömuleiðis eru í boði sleðaferð-
ir upp á jökulinn með Snæfellsjök-
ull Glacier Tours. Aron segir þær
farnar að morgni dags. „Á morgn-
ana er snjórinn þéttari og auðveld-
ara að keyra upp. Þegar sólin er
búin að skína á jökulinn allan dag-
inn þá verður snjórinn laus í sér og
erfiðara að aka í honum, hvort sem
er á sleða eða snjótroðara. Jökull-
inn er glettilega brattur og flestir
gesta okkar eru óvanir snjósleðum
og hafa jafnvel aldrei séð svoleiðis
tæki áður. Því teljum við ráðlegast
að fara sleðaferðirnar eingöngu að
morgni, þegar aðstæður eru best-
ar,“ segir hann.
Ferðir fram á haust
Aron segist ætla að halda ferð-
um áfram fram á haustið, svo lengi
sem veður og aðstæður leyfi. Síðan
fer hann aftur á sjóinn. „Það er lít-
ið um ferðir á veturna vegna veð-
urs. Ég er að spá í að byrja svo með
sleðaferðir í mars næsta vor og fara
síðan fyrstu ferðirnar á troðurun-
um í maí. Ég ætla að minnka við
mig í sjómennskunni frá því sem
verið hefur til að geta sinnt þessu
fyrirtæki almennilega. Veturinn
hér mun fara í viðhald á tækjum og
fleira slíkt tilfallandi. Kannski dett-
ur okkur í hug að breyta einhverju
eða bæta en það kemur þá bara í
ljós fyrir næsta sumar,“ segir Aron
að endingu. kgk
Gengið hefur vel í jöklaferðum
þrátt fyrir óhagstætt veður
Fullur snjótroðari Snæfellsjökull Glacier Tours á toppi Snæfellsjökuls.
Aron Jóhannes Leví Kristjánsson á Snæfellsjökli.