Skessuhorn - 26.07.2017, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 2017 15
Á hverju ári sendir Landssamband
hestamannafélaga landslið til þátt-
töku á stórmóti, annars vegar Norð-
urlandamót og hins vegar Heims-
meistaramót íslenska hestsins. Far-
ið er eftir sérstökum lykli við val á
keppendum. Heimsmeistaramót
íslenska hestsins í hestaíþróttum
verður að þessu sinni haldið í Oirsc-
hot í Hollandi vikuna 7. – 13. ágúst,
á sama stað og mótið var haldið fyrir
tíu árum. Mótið er sem fyrr stærsti
vettvangur íslenska hestsins á heims-
vísu. Þar eiga nítján þjóðir keppnis-
rétt og má búast við miklum fjölda
gesta þá sjö daga sem það stendur
yfir. Íslenska landsliðið sem held-
ur á Heimsmeistaramótið að þessu
sinni hefur verið tilkynnt og verður
Borgnesingurinn Máni Hilmarsson
meðal keppenda. Máni, sem verður
tvítugur í haust, mun keppa í fimm-
gangsgreinum á hesti sínum Presti.
Skessuhorn hitti Mána að máli
skömmu áður en þeir félagar halda
utan. Blendnar tilfinningar bærast
með hinum unga knapa því Prestur
á ekki afturkvæmt hingað til lands
fremur en önnur hross sem flutt eru
út.
Fjölskylduhesturinn
Prestur
Segja má að Máni og hesturinn
Prestur séu nokkuð nánir og hef-
ur þeim gengið afar vel í keppn-
um. Þeir hafa unnið til fjölda verð-
launa, m.a. Íslandsmeistaratitil-
inn í ungmennaflokki í fimmgangi
í fyrra. Máni keppir ekki aðeins á
Presti heldur hefur hann og fjöl-
skyldan alið Prest upp frá upphafi.
„Prestur er afkvæmi hryssu sem
við áttum svo hann er mjög tengd-
ur okkur. Mér hefur gengið mjög
vel á Presti hingað til. Ég er rosa-
lega öruggur á honum þar sem hann
hefur aldrei brugðist mér. Hann er
alltaf jafn góður og skilar sínu í öll-
um keppnum. Það er helsti kost-
ur Prests, hann er með mjög jafnar
gangtegundir. Ég tamdi hann og hef
verið að keppa á honum síðustu tvö
ár. Það er eiginlega þannig að það
hafa mjög fáir aðrir en ég riðið hon-
um,“ segir Máni.
Þegar Máni lýkur leik á Heims-
meistaramótinu í ágúst kveða reglur
á um að hann megi ekki taka Prest
með heim aftur. „Það er verst við
þetta að þurfa að skilja Prest eftir.
Það verður skrýtið að koma í hest-
húsið og hitta hann ekki. Ég hef
eytt miklum tíma í að þjálfa hann og
keppa á honum svo það reynir svo-
lítið á að skilja hann eftir.“
Frábær auglýsing
Máni segir Heimsmeistaramótið
geta breytt töluverðu fyrir sig og
ræktun fjölskyldunnar. „Ég ætla
mér að gera eins vel og ég get á
mótinu auk þess er þetta frábær
auglýsing fyrir mig sem knapa og
ræktunina hjá okkur. Þetta er mitt
fyrsta Heimsmeistaramót en von-
andi ekki það síðasta. Það er mikill
heiður fyrir mig að komast á þetta
mót. Það er mikill fjöldi fólks sem
horfir á mótið og fyrir vikið munu
fleiri þekkja mig sem knapa. Prest-
ur er ræktaður hjá okkur sem ger-
ir þetta enn þá skemmtilegra. Þetta
mun því að öllum líkindum hafa
mjög jákvæð áhrif fyrir mitt leyti,“
segir Máni.
Spenntur að takast á við
ný verkefni
Síðastliðinn tvö ár hefur Máni haft
hestamennskuna að atvinnu og
kann vel við starfið. „Ég á það til
að missa aðeins athyglina þegar ég
er að gera eitthvað sem mér finnst
ekki skemmtilegt. Í hestunum næ
ég hins vegar að halda fullri ein-
beitingu alltaf. Líf mitt snýst að nær
öllu leyti um hestamennsku. Ég er
mættur í hesthúsið snemma morg-
uns og oft á tíðum er langt liðið yfir
miðnætti þegar ég sný aftur heim.
Þetta er það skemmtilegasta sem
ég geri og að fá að starfa við áhuga-
málið er stórkostlegt,“ segir Máni.
Nýjar áskoranir
Hann ætlar sér langt í hesta-
mennskuna og hyggst leggja hana
alfarið fyrir sér í framtíðinni. „Það
er alltaf eitthvað nýtt og spenn-
andi framundan í hestamennsk-
unni. Nú er keppnistíð minni með
Presti að ljúka og þó það sé vissu-
lega sárt að missa Prest þá hefur
það líka sína kosti. Ég hef verið að
þjálfa og byggja upp nýja hesta sem
ég mun nú eyða meiri tíma með og
fara svo að keppa á fljótlega. Það
Ásta Hansdóttir
F. 09.04.34 - D. 13.12.08
Þorsteinn Pétursson
F. 22.10.30 - D. 14.06.17
Komið að Hömrum
Hjá Ástu og Steina fljótt maður fann
að fegurðin var þar sönn við lýði.
Þar snart hvert auga og snerti hvenn mann
öll snyrtimennskan og heimilisprýði.
Skólahjónin
Hjá Steina var kennslan kjarnrík og fróð
hann kunni sitt fag á breiðum grunni.
Hjá Ástu var ræstingin afbragðs góð
alúðin sást öll í umhirðunni.
Börnin þeirra
Uppeldisfærni var stórfenglegt starf
þeirra Steina og Ástu, foreldranna.
Börnin sjö fengu þar farsæld í arf
fönguðu gæfuna, dæmin það sanna.
Kveðjur til barnanna,
Selfossi, júlí 2017
Hjörtur Þórarinsson
Ásta og Steini á Hömrum
Minning þeirra
Ól upp hestinn sem hann fer með
á fyrsta Heimsmeistaramótið
verður spennandi að takast á við
það verkefni. Eins og ég sagði er ég
alltaf öruggur á Presti og ég er inni
í ákveðnum þægindaramma þegar
ég keppi á honum. Það verða því
nýjar áskoranir á næstunni,“ segir
Máni og bætir því við að engir tveir
hestar séu eins. „Það sem litar starf-
ið er að maður er alltaf að takast á
við ný hross sem eru ólík. Þau hafa
mismunandi persónuleikar eins og
mennirnir, sum hross eru þæg og
hlýðin eins og Prestur en önnur
er erfiðara að temja. Hrossin eru
svo misgóð keppnishross og þurfa
að bæta sig í mismunandi atriðum.
Það er mjög gefandi þegar mað-
ur sér árangur erfiðisins og hross-
in bæta sig; að sjá að maður sé að
uppskera og ná markmiðum sínum.
Að komast á Heimsmeistaramótið
er nýtt og spennandi fyrir mig og
tel ég að það verði mikil upplifum.
Ég er mjög spenntur að halda út og
taka þátt í mótinu,“ segir Máni að
endingu.
Safnað fyrir ferðinni
Að taka þátt á Heimsmeistara-
mótinu hefur í för með sér mikinn
kostnað og hafa keppendur verið að
safna styrkjum að undanförnu. Máni
var valinn í liðið á síðustu stundu
og hefur því aðeins styttri tíma til
að safna en liðsfélagar hans. Hann
vill því benda á reikningsnúmerið
sitt fyrir þá sem vilja styrkja hann
og þakkar öllum sem hafa nú þeg-
ar gert það. 0326-13-110243 kt.
291097-2789.
bþb
Máni segist alltaf vera öruggur á Presti þar sem hann hefur aldrei brugðist
honum. Ljósm. úr einkasafni.
Máni Hilmarsson hefur unnið til fjölmargra verðlauna á hesti sínum Presti. Hér eru
þeir eftir að Íslandsmetið í fimmgangi var í höfn á síðasta ári í ungmennaflokki.
Ljósm. úr einkasafni.
„Það verður skrýtið að koma í hesthúsið og hitta hann ekki,“ segir Máni en Prestur má ekki snúa aftur til landsins eftir mótið.