Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201722
Margar hendur komu að undir-
búningi keppninnar í Akrafjalli sl.
sunnudag. Athygli vekur að TKS
er eina aðildarfélag Akstursíþrótta-
félags Íslands með konu í for-
mennsku, Helgu Katrínu Stefáns-
dóttur. Helga Katrín er torfæru-
áhugamönnum að góðu kunni, en
hún hefur komið að keppnishaldi
með einum eða öðrum hætti síð-
asta áratuginn. Í upphafi var hún
hluti af keppnisliði Trölla, sem
fylgdi tengdaföður hennar, en þeg-
ar hann hætti keppni og afskiptum
af félagsstarfinu bauðst henni þátt-
taka í stjórn TKS. Þar tók hún sæti
árið 2012 en frá árinu 2013 hefur
hún verið formaður hans.
Á vefsíðu akis.is er verkefnið sem
Guðný J. Guðmarsdóttir í Borgar-
nesi skrifar meðal annarra. Nefnist
síðan; „Konur í mótorsporti“. Þar
er rætt við systurnar Elvu og Helgu
Katrínu: Aðspurð segist Helga
Katrín hafa gaman að keppnishald-
inu og undirbúningi þess en hún
hefur einnig tekið þátt í undibún-
ingi keppnisferða erlendis. Helga
Katrín einskorðar sig þó ekki ein-
göngu við TKS heldur hefur hún
verið afar liðleg að aðstoða aðra
klúbba, m.a. verið undanfari og
dómnefndarmaður í rallýkeppnum.
Algengt er að virkir einstak-
lingar í mótorsporti heilli vini og
fjölskyldumeðlimi til þátttöku en
Helga Katrín plataði systur sína,
Elvu Stefánsdóttur, til að vinna
við eina keppni í Vestmannaeyjum
fyrir fjórum árum síðan. Skemmst
er frá því að segja að Elva heillað-
ist af sportinu og því fólki sem því
tengist. Tók hún sæti í stjórn TKS
í um tvö ár en frá árinu 2014 hef-
ur hún verið hluti af keppnisliði
Guðbjörns Grímssonar (Bubba) á
Kötlu, tók m.a. þátt í undirbúningi
á USA-ferð sl. haust, en önnur slík
ferð er nú í undirbúningi. Elva hef-
ur einnig verið liðtækur penni en
hún sér um alla fjölmiðlaumfjöllun
fyrir Kötlu og heldur úti síðunni
foiceland.com
Nú um helgina var því lang-
þráður draumur Elvu að rætast því
eftir mikið suð og sannfærandi til-
tal tókst henni að sannfæra Bubba
um að hún væri fullfær um að stríða
strákunum í brekkunum. Hún
keppti því á Kötlu.
gjg/mm
Elva Stefánsdóttir undir stýri á Kötlu í torfærukeppninni sem haldin var að
Fellsenda við Akrafjall sl. sunnudag. Ljósm. jho.
Systur sem lifa og
hrærast í torfærunni
Hörkukeppni og mikil tilþrif í torfærunni
Sjötta og síðasta umferð Íslands-
mótsins í torfæru var haldin í gryfj-
unum við Fellsenda við rætur Akra-
fjalls á sunnudaginn. Fjöldi áhorf-
enda lagði leið sína á keppnina,
enda aðstæður til torfæruaksturs
með besta móti; skýjað og örlít-
il gola. Keppnishald var í höndum
Torfæruklúbbs Suðurlands. Helga
Kristín Stefánsdóttir, formaður
klúbbsins, segir framkvæmd keppn-
innar hafa gengið eins og best verð-
ur á kosið. „Það gekk allt upp. Þátt-
taka var góð og fín mæting. Við
fengum gott veður og hörkukeppni
með miklum tilþrifum því braut-
irnar voru mjög krefjandi og erfið-
ar. Þetta var frábær keppni,“ segir
Helga.
Alls voru 19 bílar skráðir til leiks
og allir luku þeir keppni. Í flokki
sérútbúinna bíla sigraði Magnús
Sigurðsson á Kubbnum með 1168
stig. Í öðru sæti, með 1021 stig,
hafnaði Haukur Viðar Einarsson á
Heklu og Atli Jamil Ásgeirsson á
Thunderbolt lenti í þriðja sæti með
1005 stig.
Skúli Kristjánsson á Pjakknum
hlaut 1428 stig og þar með fyrsta
sætið í flokki götubíla. Í öðru sæti
hafnaði Haukur Birgisson á Þeyt-
ingi með 1260 stig og Steingrím-
ur Bjarnason á Strumpinum lenti í
þriðja sæti með 1235 stig.
Tilþrifaverðlaun í flokki sérútbú-
inna bíla fékk Þór Þormar Páls-
son á Thor fyrir ótrúlega björgun
í fyrstu braut. Í flokki götubíla var
Skúli á Pjakknum sæmdur tilþrifa-
verðlaunum fyrir glæsilegan akstur
í annarri braut.
úrslitin í keppninni um Íslands-
meistaratitlana voru að heita ráð-
in fyrir keppnina á laugardaginn.
Guðmundur Ingi Arnarson á Ljón-
inu hampaði Íslandsmeistaratitl-
inum í flokki sérútbúinna bíla og
Ragnar Skúlason á Kölska er Ís-
landsmeistari í götubílaflokki.
kgk/ Ljósm. Jónas H. Ottósson.
Birgir Sigurðsson á General Doktornum í keppninni á sunnudag.
Hafsteinn Þorvaldsson þeytir moldinni í átt til himins þar sem hann keyrir bílinn
Egó í gegnum hliðið efst í brautinni.
Þór Þormar Pálsson á Thor fékk tilþrifaverðlaun í sérútbúnum flokki fyrir að hafa
bjargað sér frá veltu í fyrstu braut með ótrúlegum hætti.
Svanur Örn Tómasson með bíl sinn Insane lóðréttann í brekkunni.
Guðmundur Ingi Arnarson komst ekki á pall í keppninni um helgina en fagnaði
engu að síður Íslandsmeistaratitlinum í flokki sérútbúinna
Stund milli stríða hjá Núma Aðalbjörnssyni og félögum hans.
Elva Björk Stefánsdóttir í kröppum dansi á Kötlu.