Skessuhorn - 26.07.2017, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201726
„Hvað ætlar þú að gera um
verslunarmannahelgina?“
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Kári sigraði í
dramatískum leik
AKRANES: Það var mikil drama-
tík í leik Kára og Berserkja í elleftu
umferð þriðju deildar karla í knatt-
spyrnu föstudaginn 21. júlí. Kári fékk
víti á 35. mínútu, Andri Júlíusson
fór á punktinn en brenndi af. Fimm
mínútum síðar missti Kári mann af
velli þegar Aron Ýmir Pétursson fékk
rautt spjald eftir glórulausa tækl-
ingu. Kári fékk aðra vítaspyrnu á 75.
mínútu og fór þá Jón Vilhelm Ákason
á punktinn og skoraði. Dramatíkin
var ekki búin því á 86. mínútu var
Sindri Snæfells Kristinsson rekinn
af velli eftir að hafa fengið tvö gul
á þriggja mínútna kafla. Káramenn
voru því tveimur færri síðustu mín-
úturnar. Þeir náðu að halda markinu
hreinu og uppskáru 1-0 sigur. Sigur-
inn var mikilvægur fyrir Kára sem er
á toppi deildarinnar þegar sjö leikir
eru eftir. Næsti leikur Kára er útileik-
ur gegn Þrótti Vogum næstkomandi
föstudag. -bþb
Víkingur Ó. tap-
aði gegn Selfossi
SNÆF: Víkingur Ólafsvík er í harðri
botnbaráttu í fyrstu deild kvenna.
Liðið mætti Selfossi á útivelli síð-
astliðinn föstudag. Víkingur náði
ekki að fylgja eftir góðum 3-0 sigri
Hömrunum frá Akureyri í síðustu
umferð og töpuðu 2-0 gegn Selfossi.
Mörk Selfoss skoruðu Magdalena
Anna Reimus og Alex Nicole Alugas.
Víkingur situr eftir leikinn í næst-
neðsta sæti með sjö stig og þurfa
þrjú stig til að komast upp úr falls-
æti en þær eiga leik til góða. Næsti
leikur Víkings er föstudaginn 28. júlí
á heimavelli gegn HK/Víkingi. -bþb
Ragnar Már Lár-
usson í Kára
AKRANES: Í síðustu viku lánaði ÍA
Ragnar Már Lárusson til Kára. Ragn-
ar Már er tvítugur og getur leyst all-
ar stöður fremst á vellinum. Ragnar
fór ungur að árum til Englands og
spilaði með unglingaliðum Brighton
& Hove Albion en kom aftur heim á
síðasta ári. Ragnar hefur fengið fá
tækifæri með Skagamönnum í sum-
ar og aðeins leikið samtals um 15
mínútur í tveimur leikjum en náði
á þeim skamma tíma að leggja upp
eitt mark gegn ÍBV. Ragnar lék sinn
fyrsta leik í sumar með Kára gegn
Berserkjum síðastliðinn föstudag.
-bþb
Skallagrímur
blandar sér í
toppbaráttuna
BORGARNES: Síðastliðinn mánu-
dag lék Skallagrímur við lið Léttis í
tíundu umferð C-riðils fjórðu deildar
karla. Leikurinn var nokkuð mikil-
vægur fyrir Skallagrím ætlaði liðið
að halda sér í toppbaráttu riðilsins.
Skallagrímur vann leikinn 2-0 með
mörkum frá Guðna Alberti Kristjáns-
syni og Viktori Má Jónssyni. Bæði lið
fengu rautt spjald í leiknum í síðari
hálfleik. Með sigrinum komst Skalla-
grímur í þriðja sæti riðilsins og er
nú aðeins stigi frá öðru sætinu sem
gefur farseðil í úrslitakeppni fjórðu
deildar. Næsti leikur er gegn Úlfun-
um þriðjudaginn 1. ágúst. -bþb
Aðalheiður Dröfn Gísladóttir:
„Ég ætla að fara eitthvað að
skemmta mér og skoða mig
um.“
Þráinn Sigurðsson:
„Fara á Norðurlandið.“
Davíð Kristjánsson:
„Við hittumst alltaf á verslunar-
mannahelgi 1951 árgangurinn af
Skaganum og eigum saman góð-
an dag og góða kvöldstund.“
Nína Áslaug Stefánsdóttir:
„Ég verð erlendis í bændaferð,
15 daga ferð um Tatra-fjöll,
Prag og fleiri staði. Það verður
æðislega gaman.“
Annar hluti keppni eldri borg-
ara frá Akranesi og Borgarbyggð-
ar í pútti fór fram á golfvellin-
um Nesi í Reykholtsdal síðastlið-
inn fimmtudag. Fjörutíu keppend-
ur mættu til leiks, en leikið var í
blíðskaparveðri. „Við endurskoðun
fyrsta hluta keppninnar á Akranesi
29. júní sl. kom í ljós að hún fór
519:520 Borgarbyggð í vil,“ segir
í tilkynningu frá forsvarsmönnum
keppninnar. Munurinn varð meiri
í Nesi. Þar fóru leikar þannig að
Borgarbyggð sigraði Akraens með
514 stigum gegn 488. Lokamót-
ið í þessari þriggja daga keppni fer
síðan fram að Hamri í Borgarnesi
fimmtudaginn 24. ágúst.
mm
Einn leikur fór fram í 1. deild
kvenna í knattspyrnu á fimmtudag
þegar ÍA og ÍR mættust á Akranes-
velli. Leikurinn var nokkuð fjör-
legur í upphafi og eftir 15 mínútur
hefðu bæði lið getað verið komin
yfir. ÍR fékk dauðafæri á 11. mínútu
þegar Dagmar Mýrdal Gunnars-
dóttir fékk sendingu inn fyrir vörn
Skagakvenna. Hún lyfti boltanum
yfir Guðrúnu Valdísi Jónsdóttur í
markinu og ætlaði að skalla boltann
í netið en skallaði hann yfir.
Skömmu síðar voru Skagakon-
ur nálægt því að skora fyrsta mark
leiksins. Unnur Ýr Haraldsdótt-
ir var þá með boltann úti á kanti,
sendi góða sendingu fyrir markið á
Heiðrúnu Söru Guðmundsdóttur
en skot hennar var varið á línunni.
Skagakonur voru heldur sterkari
það sem eftir lifði hálfleiks, sköp-
uðu sér ágæt færi en tókst ekki
að nýta þau. ÍR var nálægt því að
lauma inn marki rétt fyrir hlé þeg-
ar Monika Hlíf Sigurhjartardóttir
slapp ein í gegn en Guðrún varði
vel í markinu.
Síðari hálfleikur byrjaði fjör-
lega. ÍR fékk dauðafæri á 47. mín-
útu þegar boltinn barst fyrir mark-
ið á Móniku sem var í dauðafæri en
aftur varði Guðrún. Skömmu síð-
ar bjargaði hún Skagakonum síð-
an aftur þegar hún var hársbreidd
á undan sóknarmanni ÍR í góða
sendingu góð sending kom innfyrir
vörn ÍA.
Fyrsta mark leiksins kom síðan
á 52. mínútu og það var af dýrari
gerðinni. Bergdís Fanney Einars-
dóttir lék á þrjá varnarmenn ÍR fyr-
ir utan teig og skoraði með laglegu
skoti. Virkilega snyrtilegt mark hjá
Bergdísi og ÍA komið yfir.
En gestirnir voru ekki lengi und-
ir. Á 60. mínútu átti Andrea Magn-
úsdóttir frábæra sendingu inn fyrir
vörn ÍA á Móniku sem lagði bolt-
ann framhjá Guðrúnu í markinu.
Leikurinn datt örlítið niður eftir
jöfnunarmark ÍR og næstu tíu mín-
útur voru í rólegri kantinum. Á 84.
mínútu fékk Heiðrún Sara dauða-
færi eftir að Bergdís komst upp að
endamörkum en hún hitti boltann
illa. Maren Leósdóttir hefði sömu-
leiðis geta skorað fyrir ÍA þegar
hún fékk góða sendingu inn fyrir
vörnina. Hún afréð hins vegar að
reyna að lyfta boltanum yfir mark-
vörð ÍR sem varði frá henni. Fleiri
urðu mörkin því ekki og leiknum
lauk því með 1-1 jafntefli og liðin
hljóta stig hvort að launum.
ÍA situr í 5. sæti deildarinnar
með 14 stig eftir ellefu leiki. Næst
leika Skagakonur föstudaginn 28.
júlí næstkomandi þegar þær mæta
Keflavík suður með sjó.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
knattleik undirbýr sig þessa dag-
ana fyrir Evrópumótið í körfu-
knattleik sem hefst í Finnlandi
31. ágúst næstkomandi. Liður
í undirbúningi liðsins eru tveir
vináttulandsleikir gegn Belg-
um hér heima. Sá fyrri fer fram
í Kópavogi á fimmtudag en
Seinni leikurinn verður spilað-
ur í á Akranesi laugardaginn 29.
júlí næstkomandi. Leikið verð-
ur í íþróttahúsinu við Vesturgötu
kl. 17:00. Aðgangseyrir er 1.500
kr. fyrir 16 ára og eldri en 500 kr.
fyrir þá sem yngri eru.
Vestlendingar eiga að sjálf-
sögðu sína fulltrúa í landsliðinu.
Grundfirðingurinn Hlynur Bær-
ingsson og Borgnesingurinn Pa-
vel Ermolinskij eru með reynslu-
mestu leikmönnum liðsins og
Borgfirðingurinn Arnar Guð-
jónsson er sem fyrr aðstoðar-
þjálfari. kgk
Svipmynd frá fyrstu keppni sumarsins. Ljósm. bþb.
Borgfirðingar sigruðu í annarri
púttkeppni sumarsins
Karlalandslið Íslands þakkar áhorfendum veittan stuðning þegar liðið þreytti
frumraun sína á Evrópumótinu fyrir tveimur árum síðan. Ljósm. KKÍ.
Landsleikur á Akranesi á laugardaginn
ÍA tókst ekki að stela sigrinum