Skessuhorn - 27.09.2017, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 201714
Endurgerð Vesturgötu á Akranesi,
milli Stillholts og Merkigerðis,
hefur verið eitt stærsta verkefni
Akraneskaupstaðar á þessu ári.
Vegna umfangs verksins var því
skipt upp í tvo áfanga en er komið
langt á leið, að því er fram kemur
í tilkynningu á vef Akraneskaup-
staðar.
Malbikun fyrsta áfanga lauk síð-
astliðinn mánudag, 25. september
og áætlað er að ljúka gerð gang-
stétta í sama áfanga 18. október
næstkomandi. Malbikun annars
áfanga á síðan að vera lokið 26.
október og áætlað er að gangstétt-
ir í síðari áfanga verði tilbúnar 10.
nóvember.
Nokkrar tafir hafa orðið á verk-
inu miðað við upphaflegar áætlan-
ir. Undir lok ágústmánaðar ræddi
Skessuhorn við Guðmund Guð-
jónsson, eiganda Skóflunnar hf.
sem sér um verkið. Hann sagði
tafir eiga sér eðlilegar skýring-
ar. „Það hefur verið nokkur mag-
naukning á verkinu, m.a. með fleiri
lögnum og ýmsar breytingar hafa
orðið á verkinu meðan á því stóð.
Klöppin í götunni er til að mynda
fimmfalt meiri en búist var við.
Þegar unnið er í eldri hverfum er
eðlilegt að það komi upp ófyrirséð
vandamál,“ sagði Guðmundur.
Verktaki hefur eftir fremsta
megni reynt að bregðast við breyt-
ingum í verkinu með lengri vinnu-
dögum og vinnuviku. Á einhverj-
um tímapunkti eigi óvissuþættir
verksins síðan að vera að baki og
því gert ráð fyrir því að tímaáætl-
un verksins komi til með að stan-
dast í meginatriðum.
kgk
Búið að malbika fyrsta áfanga Vesturgötu
Svona leit fyrsti áfangi út fyrir helgi, milli Stillholts og Háholts. Fyrsti áfangi Vesturgötu var malbikaður á á mánudaginn. Horft frá horni Háholts
í átt að Stillholti.
Um þessar mundir er í byggingu
fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi, svo vit-
að sé, sem byggt er alfarið úr kross-
límdum timbureiningum. Um er að
ræða parhús á tveimur hæðum við
Seljuskóga á Akranesi. Hvor íbúð-
in um sig rétt tæpir 200 fermetr-
ar að stærð. Það eru þeir Bjarni
Ingi Björnsson og Jón Þór Jóns-
son sem byggja húsið. Skessuhorn
hitti Bjarna Inga að máli síðastliðinn
fimmtudag og ræddi við hann um
bygginguna.
„Húsið er smíðað úr krossvið-
areinginum sem eru framleiddar í
Austurríki af fyrirtækinu Binderholz
og fluttar inn af Strúktúr ehf. Ein-
ingarnar eru léttar og meðfærilegar
og því hefur gengið mjög hratt að
byggja,“ segir hann. „Fyrsta skóflu-
stungan var tekin með handskóflu
19. júlí og svo var byrjað að byggja
í ágúst. Fyrst var steypt gólfplata og
síðan slegið upp flekum og kjallari
steyptur. Seinni part miðvikudagsins
í síðustu viku [13. september, innsk.]
kom Óli Þórðar á kranabíl frá ÞÞÞ
og fyrstu einingarnar voru hífðar á
sinn stað. Morguninn eftir var byrj-
að að reisa á fullu og við vorum bún-
ir að reisa á fimm virkum dögum,“
segir hann.
Smiðirnir Sturla og Fannar Magn-
ússynir sjá um smíði hússins fyrir þá
félaga Bjarna og Jón. Á meðan reisn-
ingunni stóð kom maður frá Binder-
holz og leiðbeindi smiðunum við
byggingu krossviðarhúsa frá fyrir-
tækinu. Sturla lætur afar vel af þess-
ari byggingaraðferð. „Þetta er algjör
snilld. Efnið gott og meðfærilegt
sem gerir það fljótlegt í uppsetningu.
Allt er einangrað utan frá og maður
þarf aldrei að einangra upp fyrir sig.
Öll eftirvinna er þægileg og verður
snyrtilegri fyrir vikið,“ segir Sturla.
„Svo er þetta bara svo skemmti-
legt. Þetta er eiginlega draumur tré-
smiðsins, að fá loksins að byggja hús
úr viði,“ bætir hann við.
Virkt eftirlit
Sem fyrr segir er parhúsið á Selju-
skógum fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi
sem byggt er úr krossviðareining-
um. Bjarni man eftir tveimur hús-
um á landinu sem eru byggð úr sama
efni; Hótel á Hnappavöllum og Lava
Centre á Hvolsvelli. Því skyldi eng-
an undra að framkvæmdin hafi vakið
töluverða athygli vegfarenda á Akra-
nesi á framkvæmdatímanum. „Það
er búinn að vera stöðugur straumur
gesta eftir að við byrjuðum að reisa.
Fólk er forvitið um þessa nýjung,
sem eðlilegt er. Flestir, ef ekki allir,
iðnaðarmenn á Akranesi hafa kom-
ið við hjá okkur og síðan haldið uppi
mjög virku eftirliti með framkvæmd-
inni,“ segir Bjarni léttur í bragði.
Sáu einingarnar á
sýningu í Þýskalandi
Spurður hvernig þeim datt í hug
að reisa íbúðarhús úr krossviði seg-
ir Bjarni að Jón hafi átt hugmyndina
að því. „Jón var staddur á bygging-
arsýningu í München í Þýskalandi í
fyrra og þar kemst hann í fyrsta sinn
í kynni við þessar einingar, á sýn-
ingarbásnum hjá Binderholz. Það
var reyndar á þessari sömu sýningu
sem Ingólfur Sigþórsson hjá Strúkt-
ur, sem flytur einingarnar inn, rakst
á þetta í fyrsta skipti,“ segir Bjarni.
„Jóni fannst þetta strax mjög sniðugt
en ég skal alveg viðurkenna að mér
leist ekkert á þetta í fyrstu,“ bæt-
ir Bjarni við og brosir. „Upphaflega
ætluðum við að byggja úr forsteypt-
um einingum og ég vildi bara að við
héldum okkur við þær áætlanir. En
eftir að hafa farið út til Austurríkis,
skoðað verksmiðjuna hjá Binderholz
og nokkur hús sem eru byggð úr
svona einingum þá snerist mér hug-
ur. Eftir ferðina var aldrei spurning í
mínum huga að fara þessa leið.“
Ódýrara en að
staðsteypa
Bjarni segir að með því að byggja
úr krossviði sé hægt að ná kostnað-
inum töluvert niður. „Þetta er tölu-
vert ódýrara en hefðbundið stað-
steypt hús og ég mæli hiklaust með
því að fólk kynni sér krossviðarein-
ingar ef það ætlar að byggja sjálft,“
segir hann. Aðspurður kveðst hann
ekki vilja skjóta á neinar tölur en tel-
ur víst að fólk geti sparað sér nokkr-
ar milljónir í heildarkostnað við
byggingu á einbýlis- eða parhúsi,
miðað við aðrar byggingaraðferð-
ir. „Ég myndi því telja þetta raun-
hæfan kost sem fólk ætti að kanna
ef það er í byggingarhugleiðingum.
Þetta er talsvert ódýrara og munar
gríðarlega í byggingartíma,“ seg-
ir hann. Og hvenær er stefnt að því
að byggingu hússins ljúki? „Jón ætl-
ar að flytja inn um páskana en ég og
konan mín stefnum að því að flytja
inn í desember. Miðað við hvern-
ig gengur held ég að það sé alveg
raunhæft. En það verður bara að
koma í ljós hvort það gengur eftir,“
segir Bjarni Ingi Björnsson að end-
ingu.
kgk
Íbúðarhús úr krosslímdum
viði risið á Akranesi
Hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi
Félagarnir Bjarni Ingi Björnsson og Jón Þór Jónsson tóku fyrstu skóflustunguna
seinni hluta júlímánaðar. Í síðustu viku var húsið risið.
Parhús Bjarna og Jóns við Seljuskóga á Akranesi er fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi
sem eingöngu er byggt úr krosslímdum viðareiningum.
Sturla Magnússon smiður vopnaður límbandi.
Sáttir og sælir að lokinni reisningu í síðustu viku.