Skessuhorn - 27.09.2017, Blaðsíða 43
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017 Matarauður 43
„Við erum með kúabúskap og
framleiðum mjólkurvörur, auk þess
sem við bjóðum upp á gistingu fyrir
fólk í húsi hér á bænum, svo það er
nóg að gera,“ segir Þorgrímur Ein-
ar Guðbjartsson, mjólkurfræðingur
og bóndi á Erpsstöðum í Miðdöl-
um í Dalasýslu, þegar blaðamað-
ur heyrði í honum. Þorgrímur og
Helga Elínborg Guðmundsdóttir
opnuðu Rjómabúið á Erpsstöðum
vorið 2009 en fram að því voru þau
með hefðbundinn kúabúskap. Þau
byggðu nýtt fjós á bænum, komu
sér upp heimavinnslu og fóru að
framleiða rjómaís. „Þetta hefur að-
eins undið uppá sig og í dag fram-
leiðum við skyr, osta, skyrkonfekt
og ís í mörgum bragðtegundum,“
segir Þorgrímur. „Gestir sem koma
til okkar, bæði þeir sem eru í gist-
ingu og aðrir, hafa kost á að skoða
fjósið og heimavinnsluna okkar og
fá fræðslu um vinnsluferlið og ís-
lenskan búskap og búskaparhætti í
Dölunum,“ segir Þorgrímur.
„Ég hef yfirumsjón með fram-
leiðslunni en hef góða starfsmenn
með mér. Það er ein kona hér úr
sveitinni sem sér alveg um að búa
til ísinn og önnur sem sér um skyr-
konfektið. Ég fæ svo mjólkurfræð-
ing til mín tvisvar í mánuði til að
sjá um ostagerðina. Svo hjálpast
allir heimilismeðlimir að,“ segir
Þorgrímur aðspurður hvort þau
Helga sjái ein um framleiðsluna.
„Ég sé svo um að pakka vörunni,
geri hana klára fyrir sölu og skila
henni af mér í verslanir eða veit-
ingastaði. Vörurnar okkar eru bæði
seldar í versluninni Frú Laugu í
Reykjavík og Ljómalind í Borgar-
nesi,“ bætir hann við.
Opna sýningu um skyr
Þau Þorgrímur og Helga hafa staðið
í framkvæmdum undanfarna mán-
uði þar sem þau eru að breyta búð
sem þau hafa verið með í öðrum
endanum á fjósinu. „Við erum með
búð hér þar sem gestir geta kom-
ið og keypt vörurnar okkar. Hing-
að hefur fólk einnig getað komið,
sest niður og fengið sér ís og komist
í návígi við dýrin,“ segir Þorgrím-
ur og bætir því við að nokkur minni
húsdýr og gæludýr séu á staðnum
fyrir gesti að skoða og kynnast. „Við
erum að breyta öllum innréttingum
og skipulagi í búðinni og setja upp
litla sýningu um skyrgerð, hvernig
skyrið var gert áður fyrr og hvern-
ig það er gert í dag,“ segir Þorgrím-
ur. „Stefnan var að opna sýninguna
í október en það er óvíst að það ná-
ist,“ bætir hann við. Þorgrímur seg-
ir búðina venjulega bara vera opna
yfir sumartímann en að þau reyni
alltaf að taka á móti gestum allt
árið ef haft er samband við þau
fyrst. arg/ Ljósm. Rjómabúinu
Erpsstöðum
Rjómabúið
Erpsstöðum
Þorgrímur Einar
Guðbjartsson og Helga
Elínborg Guðmundsdóttir
eru með heimavinnslu
mjólkurafurða og bjóða
gesti velkomna.
Hluti af því vöruúrvali sem framleitt er á Rjómabúinu Erpsstöðum.
Skyrkonfektið frá Rjómabúinu Erpsstöðum hefur notið mikilla vinsælda.
Mýranaut og fleiri
verða með smakk fyrir
gesti og gangandi
þann 14. október.
„Ljómalind sérhæfir sig í að bjóða upp á vörur frá heima-
vinnsluaðilum á Vesturlandi, allt frá ýmis konar handverki
til búvara beint frá býli. Meðal þess sem við bjóðum upp á
eru sultur, söl, ostar, ís, mysa, lax, lamba og nautakjöt. Einnig
egg, sælgæti og grænmeti. Erum sem sagt með fjölbreytt úr-
val og allt unnið í héraðinu. Fáum nýjan varning í hverri viku.
Opnunartími í september 10-18, alla daga
Vetraropnunartími (frá 1. október.) frá 12-17
Opnum fyrir hópa
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7