Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2017, Side 43

Skessuhorn - 27.09.2017, Side 43
 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017 Matarauður 43 „Við erum með kúabúskap og framleiðum mjólkurvörur, auk þess sem við bjóðum upp á gistingu fyrir fólk í húsi hér á bænum, svo það er nóg að gera,“ segir Þorgrímur Ein- ar Guðbjartsson, mjólkurfræðingur og bóndi á Erpsstöðum í Miðdöl- um í Dalasýslu, þegar blaðamað- ur heyrði í honum. Þorgrímur og Helga Elínborg Guðmundsdóttir opnuðu Rjómabúið á Erpsstöðum vorið 2009 en fram að því voru þau með hefðbundinn kúabúskap. Þau byggðu nýtt fjós á bænum, komu sér upp heimavinnslu og fóru að framleiða rjómaís. „Þetta hefur að- eins undið uppá sig og í dag fram- leiðum við skyr, osta, skyrkonfekt og ís í mörgum bragðtegundum,“ segir Þorgrímur. „Gestir sem koma til okkar, bæði þeir sem eru í gist- ingu og aðrir, hafa kost á að skoða fjósið og heimavinnsluna okkar og fá fræðslu um vinnsluferlið og ís- lenskan búskap og búskaparhætti í Dölunum,“ segir Þorgrímur. „Ég hef yfirumsjón með fram- leiðslunni en hef góða starfsmenn með mér. Það er ein kona hér úr sveitinni sem sér alveg um að búa til ísinn og önnur sem sér um skyr- konfektið. Ég fæ svo mjólkurfræð- ing til mín tvisvar í mánuði til að sjá um ostagerðina. Svo hjálpast allir heimilismeðlimir að,“ segir Þorgrímur aðspurður hvort þau Helga sjái ein um framleiðsluna. „Ég sé svo um að pakka vörunni, geri hana klára fyrir sölu og skila henni af mér í verslanir eða veit- ingastaði. Vörurnar okkar eru bæði seldar í versluninni Frú Laugu í Reykjavík og Ljómalind í Borgar- nesi,“ bætir hann við. Opna sýningu um skyr Þau Þorgrímur og Helga hafa staðið í framkvæmdum undanfarna mán- uði þar sem þau eru að breyta búð sem þau hafa verið með í öðrum endanum á fjósinu. „Við erum með búð hér þar sem gestir geta kom- ið og keypt vörurnar okkar. Hing- að hefur fólk einnig getað komið, sest niður og fengið sér ís og komist í návígi við dýrin,“ segir Þorgrím- ur og bætir því við að nokkur minni húsdýr og gæludýr séu á staðnum fyrir gesti að skoða og kynnast. „Við erum að breyta öllum innréttingum og skipulagi í búðinni og setja upp litla sýningu um skyrgerð, hvernig skyrið var gert áður fyrr og hvern- ig það er gert í dag,“ segir Þorgrím- ur. „Stefnan var að opna sýninguna í október en það er óvíst að það ná- ist,“ bætir hann við. Þorgrímur seg- ir búðina venjulega bara vera opna yfir sumartímann en að þau reyni alltaf að taka á móti gestum allt árið ef haft er samband við þau fyrst. arg/ Ljósm. Rjómabúinu Erpsstöðum Rjómabúið Erpsstöðum Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir eru með heimavinnslu mjólkurafurða og bjóða gesti velkomna. Hluti af því vöruúrvali sem framleitt er á Rjómabúinu Erpsstöðum. Skyrkonfektið frá Rjómabúinu Erpsstöðum hefur notið mikilla vinsælda. Mýranaut og fleiri verða með smakk fyrir gesti og gangandi þann 14. október. „Ljómalind sérhæfir sig í að bjóða upp á vörur frá heima- vinnsluaðilum á Vesturlandi, allt frá ýmis konar handverki til búvara beint frá býli. Meðal þess sem við bjóðum upp á eru sultur, söl, ostar, ís, mysa, lax, lamba og nautakjöt. Einnig egg, sælgæti og grænmeti. Erum sem sagt með fjölbreytt úr- val og allt unnið í héraðinu. Fáum nýjan varning í hverri viku. Opnunartími í september 10-18, alla daga Vetraropnunartími (frá 1. október.) frá 12-17 Opnum fyrir hópa SK ES SU H O R N 2 01 7

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.