Skessuhorn - 27.09.2017, Blaðsíða 56
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 201756
Vísnahorn
Einn ágætur vinur minn
sagði að mesta vandamál
mannkynsins væri að hafa
of mikið af of góðum mat.
Má vera að það gildi um
hluta af hinum vestræna heimi en fráleitt held ég
nú að það sé algild regla. Svo er líka alltaf spurn-
ingin hvað er góður matur og hvað ekki en Ólaf-
ur Gunnarsson lýsti sinni mestu veislu svo:
Þeir sem hafa allsnægtir og auð
eta mat í salarkynnum fínum
en ég hef aldrei smakkað betra brauð
en bita sem ég át úr vasa mínum.
Á bæ einum í Skagafirði hafði verið dreginn
að fiskur í nokkru magni að vorlagi en eitthvað
þótti húsfreyju heimilisfólkið vera aðfaralítið við
hann þegar hann fór að taka geymslubragðinu
enda var þetta fyrir tíma allra frystigeymslna.
Þegar frúin hafði orð á þessu við bónda sinn
sagði hann; „Það er ekki von góða mín. Þú ert
með indælt ket og allslags mat.“ Saltkjötstunn-
an hafði að vísu lekið pæklinum örlítið og kjöt-
ið orðið framsóknargrænt þó trúlega væri þetta
fyrir tíma Framsóknarflokksins. Af þessu tilefni
kvað Gísli Gíslason í Hjaltastaðahvammi:
Konan grét við krásarfat,
karlinn lét á diskinn
indælt ket og allslags mat.
Enginn étur fiskinn.
Á þeim tímum sem góðbændur í Borgarfirði
gerðu út vinnumenn sína á vertíð suður á Suð-
urnes voru þeir að sjálfsögðu nestaðir til ferðar-
innar. Frá einu góðbúi héraðsins fór vinnumað-
ur til sjóróðra en ekki entist nú nestið lengra
en í Hafnarskóginn. Nestið í þessu samhengi
var gjarnan kallað útgerð en af þessu tilefni var
kveðið:
Útgerðin var ekki nóg,
einhver gerði spara.
Brauðið var hrátt og bringan mjó,
brot af mjaðmarspaða.
Mér er ekki grunlaust að það hafi verið sami
hagyrðingur sem var staddur á hreppsnefndar-
fundi og þótti nóg um kvartanir hreppsnefndar-
innar yfir ómögum sveitarinnar:
Heyrast mundi vol og víl,
víst má nærri geta,
ef andskotinn í Andakíl
yrði niðurseta.
Sagt var um sum heimili að ekki væri þar
of góð matarvist og á einum sómabæ andað-
ist vinnumaður aldraður og sagt að ekki hefði
hann verið neitt ofhaldinn af matarvistinni en þó
hefði verið settur askur með mat hjá honum eft-
ir að hann var skilinn við svo sjá mætti að hann
hefði gengið frá leyfðu. Er ekki alveg viss um
hvor þeirra feðga Eyjólfur Jóhannesson eða Jón
sonur hans orti eftirfarandi en hef séð eignað
þeim báðum:
Illa fór hann Gvendur grey
þó gamalt æti hann ketið.
Þeir eru til, sem þrífast ei,
þótt þeir geti étið.
Að hann dáið hafi úr hor,
held ég rengja megi,
en hitt er satt hann var í vor
vel fram genginn eigi.
Eyjólfur Jóhannesson sem lengst bjó í
Hvammi í Hvítársíðu var ástarbarn foreldra
sinna en faðir hans hét Jóhannes Lund Jónsson.
Ættaður úr Eyjafirði en var eitt ár vinnumaður á
Gilsbakka. Bjó síðar á Rangárvöllum á nokkrum
bæjum. Jóhannes var blótsamur nokkuð og lét
sér æði tíðrætt um myrkrahöfðingjann sem hann
nefndi ankota. Eitt sinn í Reykjavíkurferð hittir
Jóhannes mann og spyr að heiti. Einhvern grun
mun sá aðspurði hafa haft um spyrjandann því
svarið var á þessa leið:
Minn hórfaðir mig forlét
myrkra nærri skoti.
Ég man ekki, jú hann hét
Jóhannes ankoti.
Þetta var semsagt Eyjólfur Jóhannesson sem
spurður var. Nú er ekki vitað um trúmál Eyjólfs
eða hvað hann tók þá hluti alvarlega en Sigurður
Björgólfsson taldi sig allavega eiga góðs von og
sendi einhverjum þessa kveðju:
Þó státir þú af sterkri trú
og stiklir þrönga veginn.
mun ég eiga eins og þú
athvarf hinu megin.
Karl Ágústsson í Litlagarði sendi góðvini sín-
um eftirfarandi vísu á þeim árum sem umræddir
höfðingjar voru á dögum en þarna mun væntan-
lega átt við Benjamín Eiríksson bankastjóra og
Bjarna Benediktsson (ekki þann sem nú er í rík-
isstjórn):
Verði þér aldrei veröld myrk.
Veití þér Drottinn Marsjalstyrk.
Benjamíns ráðdeild blessist þér.
Bjarni þá fyrir hinu sér.
Nú á síðustu dögum sem höktir öndin í bless-
aðri ríkisstjórninni væri kannske við hæfi að rifja
upp gamla vísu um allt aðra ríkisstjórn enda hafa
þær sjaldnast verið vinsælar fyrr en eftir andlát
sitt:
Stjórnin bæði stirt og vilt
stýrir dýrum knerri.
Fátt er svo með öllu illt
að ekki sé hún verri.
Það hefur lengi verið siður okkar að yrkja eft-
irmæli hvort heldur er um hross eða ríkisstjórnir
og um þá ríkisstjórn sem nú er í andarslitrunum
orti Hjálmar Freysteinsson:
Illa tókst að axla skyldur
enda í heldur þröngum stakk.
Hún var svoddan hrófatildur
að heyrðist varla þegar hún sprakk.
Og Ragnar Önundarson kvað einnig í minn-
ingu sömu stjórnar:
Andvana var hún ugglaust fædd,
andvana hlaut hún framann.
Andvana starfað´ún ósköp mædd,
andvana féll hún saman.
Ekki man ég betur en það hafi verið Gunn-
laugur Pétursson frá Selhaga sem kvað um sitj-
andi ríkisstjórn á þeim tíma:
Skeiðar til ég hef og hnífs
en hvergi má við fórninni.
Af öllu hjarta eilífs lífs
óska ég ríkisstjórninni.
Svo verður hver að gera upp við sig hvernig
vísan á að skiljast. Yfirleitt er það svo með þá
sem hafa einhver völd, hvort sem það eru ríkis-
stjórnir eða aðrir að allir vita miklu betur en þeir
hvað ætti að gera og hvað er landi og þjóð fyrir
bestu enda orti Kristján Ólason:
Aðdáun og undrun hafa
aukið hjá mér jafnt og þétt
þeir sem aldrei eru í vafa
og alltaf vita hvað er rétt.
Í síðasta þætti birti ég nokkrar haustvísur eftir
Ingólf Ómar en einhverra hluta vegna aflagað-
ist ein vísan og því rétt að birta hana hér aftur
rétta:
Langa rekja leitarmenn
leið um hraun og fláa.
Heillar þeirra hugi enn
heiðin fjallabláa.
Líklega hafa þeir ágætu menn verið að leita að
lambakjötsfjallinu í einhverri mynd enda sýnist
það torfundið og alls ekki af þeirri stærðargráðu
sem reiknimeistarar höfðu séð fyrir sér. Guð-
mundur Halldórsson orti um þann eltingaleik
við ,,Fata morgana“:
Tálsýnir og talnabrall
við tíðum megum þola,
lambakjöts er farið fjall
nú finnst þar bara hola.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Fátt er svo með öllu illt - að ekki sé hún verri
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Auk þess birtum við lausn
á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á
netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið
að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut
56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið
verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá
Skessuhorni.
Alls bárust 85 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin
var: „Uppsalir.“ Vinningshafi er Ína Sif Stefánsdóttir, Vesturgötu 40, 300
Akranesi.
Máls-
háttur
Sam-
þykki
Gramur
Kveikja
Skaut
Spann
Blaður
1050
Mjaka
Galsi
Þófi
Vær
Stormur
Geð
Hvíldi
Skaði
Svoli
Gæði
Geymsla
Áhald
Hætta
Lykkja
For
Grjót
Pabbi
Stafina
Mat
Tónn
Víma
Örlæti
Hólf
Hljóta
1
Harð-
indi
Heill
Ágæti
Drykkur
Æst
3
Dynur
Batt
Móska
8
Flói
Óhræsi
Lánaði
Fæði
Sefar
Laust
Trjá-
mylsna
Annir
Skrá
Innyfli
Rugga
5
Mögl
Pota
Mamma
Frið-
söm
Flan
Ílát
Von
7 Núna
Egnir
Utan
Leynd
Felur
Mont
Forsk.
Eilíf
Ró
Eink.st
Fiskur
Hýði
Reim
Þrek
Þreytan
Sk.st.
Væekill
Leðja
Öf.röð
Upp.hr.
Nisti
Mjöður
Þegar
Vitund
Lík
Karl
Kusk
Fen
Fugl
Ambátt
Samhlj.
Vann
Önugur
6 Fugl-
inn
Næg
4
Skák
Spyr
Keyra
Hlífa
Alúð
Ofn
Sál
2 Ras
Tvíhlj.
Rödd
Lín
Dvína
Árbók
Annríki
Korn
Ennþá
Logn-
alda
100
Rösk
Svall
1 2 3 4 5 6 7 8
S K Ý J A M Y N D
L J Ó S Y L A I L
Á A R K L I F R A
R Ú V A L N A F N
H Á T Á T A N R I M
J Á T A R S V E R F L A S
A L Á L Á T E L Ú R E L T O
R A R D R J Ú G Ð N A R R
T R Ú R Æ Ð A R U M S L A G
A R Ð A E R R Á R T Ó F A
N Æ R Ð I S T M V A N T R
L A U G L Á S V Ö K A F
E F R A U S N Ó A R Á R I
G L E R P A U F N U S L A P
O F A Ö V O Ð S N E M M A
S T A K K U R R E I S N L Æ
K S U L L T A G L N Ó A R
Ý T R A Ð I R G Á F A Ð R A
U P P S A L I R
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I