Skessuhorn - 27.09.2017, Blaðsíða 28
Matarauður - Veisla á Vesturlandi MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 201728
Prímus Kaffi er staðsett á Hellnum við rætur
Snæfellsjökuls með fallega sjávarsýn.
“Við leggjum áherslu á að fólki finnist notalegt að
koma til okkar. Boðið er upp á hefðbundinn íslensk-
an mat (heimilismat). Má þar nefna plokkfisk, kjötboll-
ur, kjöt- og fiskisúpu og fleira. Einnig er boðið upp á
heimabakað brauð og tertur.
Prímus kaffi tekur þátt í Súpuhring um Snæfellsnes
sem hefst í október.
Prímus Kaffi á
Hellnum
„Veitingastaðurinn Rjúkandi býður upp á freistandi úr-
val af mat úr héraði. „Við höfum lagt vinnu í samstarf við
bændur í nágrenninu til að geta alltaf boðið uppá besta
og ferskasta hráefnið eftir árstíðum. Allt á matseðlinum
okkar er búið til á staðnum úr fyrsta flokks hráefni og
standa frábærir kokkar á bak við hvern og einn rétt og
úr verður óvænt upplifun matargesta þar sem nútíminn
og íslensk matarhefð mætast í tíma og rúmi.
Við á Rjúkanda leggjum mikla áherslu á staðbundin
matvæli og erum í samstarfi við bændur í kring sem
eru með fjölbreyttan búskap. Þegar að matargerðinni
kemur þá eru ekki neinar reglur sem stjórna heldur er
það framleiðsla bænda sem stjórnar því hvað er í boði
hverju sinni. Þrátt fyrir viljann um sjálfbærni þá kom-
umst við ekki undan því að þurfa að versla einnig utan
héraðs. Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval af mat til þess
að koma til móts við sem flesta, má þar nefna kjöt, fisk
og grænmetisrétti. Allar kökur og eftirréttir eru bakaðir
á staðnum af mikilli ást og umhyggju. Nýmalað rjúk-
andi kaffi er alltaf á boðstólnum.“
Rjúkandi tekur þátt í Súpuslóð um Snæfellsnes sem
hefst í október.
Veitingastaðurinn
Rjúkandi Viðvík er lítið fjölskyldurekið veitingahús sem var
opnað í júlí síðastliðnum. „Staðurinn er á besta stað
við Hellissand, með útsýni upp á Snæfellsjökul og
yfir Breiðafjörð. „Að okkar mati gerir útsýnið ótrúlega
mikið fyrir matarupplifunina, þá sérstaklega túristann.
Við leggjum mikla áherslu á gæði, góða þjónustu og
bjóðum upp á góðan mat í hlýlegu og fallegu umhver-
fi. Matseðilinn okkar er lítill og hnitmiðaður með gæði
hráefna í fyrirrúmi.“
Viðvík tekur þátt í verkefninu Súpuslóð um Snæfell-
snes sem hefst í október.
Viðvík við Hellissand
Sjávarpakkhúsið er fjölskyldurekinn sjávarréttastaður
við höfnina í Stykkishólmi.
“Við ætlum að setja bláskelina hans Símonar á veislu-
borðið í október.”
Sjávarpakkhúsið í
Stykkishólmi
Í Hrísakoti á Snæ-
fellsnesi eru ræktað-
ar geitur og hross.
Sif Matthíasdóttir
er einnig formaður
Geitfjárræktarfélags
Íslands og framleiðir
afurðir úr geitakjöti
til að mynda grafið
geitakjöt og svokall-
aðar geita-partýboll-
ur.
Sif Matthíasdóttir í
Hrísakoti
Ræktunarstöðin Lágafell á Snæfellsnesi ræktar salat,
krydd og blóm og selur til kaffi- og veitingahúsa á Snæ-
fellsnesi.
Það sem er í boði í október og allan ársins hring:
Lágafell verður með á matarmarkaði Breiðabliks sunnu-
daginn 29. október en býður einnig heim laugardaginn
14. október kl. 14 - 17.
Ræktunarstöðin
Lágafell á Snæfellsnesi
Á Ytra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit er heimavinnsla á kjöt-
afurðum beint frá býli. Þar er framleitt úrval af vörum
eins og sveitabjúgu, grafinn ærvöðvi, tvíreykt hangi-
kjöt, krydduð lambalæri, lambaskanki, lamba prime og
lambahakk.
Viðburðir í október:
Ytri-Hólmur verður á Sveitamarkaði í Æðarodda
laugardaginn 7. október frá klukkan 13-17.
Opnun á heimasölumarkaði að Ytra-Hólmi 1 verður
laugardaginn 14. október frá klukkan 13-17.
Einnig framleiðir Ytri-Hólmur vörur fyrir Hjarðarfell á
Snæfellsnesi og er hægt að nálgast þær í Búsæld á
Breiðabliki á Snæfellsnesi.
Sauðfjárbúið
Ytra-Hólmi