Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2017, Side 60

Skessuhorn - 27.09.2017, Side 60
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 201760 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Pennagrein Pennagrein Pennagrein Nú er komið haust. Það kólnar í lofti, haustlægðirnar koma yfir landið hver á fætur ann- arri, gróðurinn tekur á sig sinn fal- lega lit sem einkennir árstíðina og börnin fara aftur í skólann sinn. Já og svo eru auðvitað líka kosningar. Þegar ganga á til kosninga í þriðja sinn á aðeins fimm árum hlýtur að vera kominn tími til þess að staldra aðeins við og velta vöngum. Af hverju stafar þessi óstöðugleiki í stjórnmálunum? Enn á ný hefur almenningur ris- ið upp og látið í sér heyra og skila- boðin eru skýr. Við viljum breyta stjórnmálamenningunni. Við viljum betri vinnubrögð í stjórnmálunum, meira gagnsæi í stjórnsýslunni og við gerum þá kröfu að stjórnmála- menn starfi með hag almennings að leiðarljósi. Þjóðin á skilið að stjórn- málamenn starfi af heilum hug að því að byggja brú á milli hennar og stjórnmálanna, að stjórnmálamenn vinni af heilum hug að því að auka traust hennar til Alþingis. Að skipta út stjórnmálamönnum eða stjórnmálaflokkum mun ekki breyta miklu nema grunngildum stjórnmálanna sé breytt, stjórnmála- menningunni sé breytt. Allir flokk- ar gefa fögur loforð í aðdraganda kosninga og flestir gera það af góð- um hug og vilja til þess að bæta sam- félagið. Þegar á hólminn er komið og flokkar jafnvel komnir í ríkis- stjórn virðist oftar en ekki illmögu- legt að standa við gefin loforð ým- ist vegna „pólitísks ómöguleika“ eða einhverrar kerfislægrar tregðu. Það ætti að vera krafa að stjórn- málamenn standi við gefin loforð. Ef það er ekki gert þá ætti almenning- ur að hafa óskoraðan rétt til þess að vera upplýstur um af hverju það er ekki hægt. Gagnsæi er lykilatriðið. Það þarf að eyða þeirri kerfislægu hneigð stjórnvalda að leyna upplýs- ingum fyrir almenningi til þess að vernda eigin hagsmuni. Alþingis- menn starfa í umboði þjóðarinnar og því skal aldrei gleyma. Í framtíðinni munu stjórnmál og stjórnsýsla vera gagnsæ og allar upp- lýsingar og gögn í fórum stjórnvalda munu vera tiltæk án undandráttar. Almenningur mun hafa tryggan að- gang að öllum gögnum sem opin- berir aðilar safna eða sýsla með. Til þess að stuðla að þessari fram- tíð vil ég hvetja alla kjósendur, sér- staklega ungt fólk, til þess að taka framtíð sína í eigin hendur og nýta kosningarétt sinn. Eva Pandora Baldursdóttir Höf. er alþingismaður Pírata í Norðvesturkjördæmi. Óður til kosninga Það var athyglisvert að fylgjast með framgöngu Lilju Rafneyjar, þing- manns Vinstri grænna, á borgara- fundi sem haldinn var í Ísafjarð- arbæ á dögunum undir yfirskriftinni „fólk í fyrirrúmi“. Þar tók hún m.a. til umræðu að leyfa skyldi eldi á frjó- um norskum laxi í Ísafjarðardjúpi hið fyrsta og að náttúran skyldi fá að njóta vafans. Samt veit þingmaðurinn að sá vafi leyfir ekki laxeldið, þar sem fyr- ir liggur áhættumat Hafrannsókna- stofnar. Þar er varað við að slíkt eldi muni vafalaust stefna villtum laxa- stofnum í ám á svæðinu í hættu. Þrátt fyrir þetta krafðist þingmaðurinn þess að leyfi til laxeldis yrði veitt hið snar- asta og virtist þarna alveg hafa gleymt pólitískum uppruna sínum. Það er liðin tíð að stjórmálamenn í atkvæðaleit geti hagað sér eins og umskiptingar eftir því við hverja þeir tala hverju sinni. Það var því óheppi- legt fyrir þing- manninn að fund- inum var streymt í beinni útsendingu og því ómar krafa hennar um frjóan lax í sjókvíum um allt Norðvesturkjördæmi. Því ekki má gleyma að aðrir hagsmunahóp- ar búa í kjördæminu. Þar er að finna verðmætustu laxveiðiár á Íslandi og atvinnuhagsmuni þeim tengda sem þingmaðurinn virðist nú engu skeyta um. VG hefur hingað til gefið sig út fyrir að vera sá stjórnmálaflokkur sem stendur næst náttúrvernd í íslenskum stjórnmálum. Það á bersýnilega ekki lengur við, allavega ekki í Norðvest- urkjördæmi. Þórarinn Halldór Óðinsson. Höfundur er formaður Egils, félags ungra Sjálfstæðismanna í Mýrasýslu. Bara Vinstri, ekki Græn 20% fólks á aldrinum 40 til 60 ára er heyrnarskert og margir gera sér ekki grein fyrir því og halda að sá vandi sem þeir verða varir við stafi af ein- hverju öðru. Sá sem hefur grun um að hann sé ef til vill með heyrnar- skerðingu þarf fyrst að fara í heyrn- argreiningu og ef grunurinn reynist réttur þá er ráðlagt að fá heyrnartæki til reynslu. Gott er að hafa einhvern nákomin með sér því ef aðstandend- ur skilja vel hvers sé að vænta geng- ur betur að venjast tækjunum. Um leið og heyrnartæki eru sett upp þarf maður að læra að heyra á ný. Heilinn fær boð um ný hljóð sem hann hefur ekki fengið í lang- an tíma. Fyrir marga hefst aðlögun- artími sem krefst þjálfunar. Í fyrstu finnst manni sum hljóð hávær og þreytandi. Það er mjög eðlilegt. Heilinn vinnur á fullu við að greina hljóðin. Með þolinmæði og jákvæðu hugarfari næst fljótt árangur og tæk- in verða ómissandi. Heyrnin skerðist venjulega á löngum tíma og maður er oftast nokkur ár að sætta sig við að hún hafi dofnað og að það þurfi að gera eitt- hvað í því. Samkvæmt þessu hefur maður smám saman sætt sig við að lifa í fábreyttari hljóðheimi. Maður heyrði t.d. ekki tif í úri, skrjáf í dag- blaði, glamur í borðbúnaði, nún- ingshljóð í fötum, fótatak, hvin frá bílvél, fuglasöng eða þyt í laufi. Að venjast mismunandi hljóðumhverfi Maður venst heyrnartækjunum fljót- ar að vera með þau heima heldur en í meira krefjandi hljóðumhverfi, svo sem í vinnunni eða á mannamót- um. Þessar aðstæður geta tekið á og maður getur þurft að leggja töluvert á sig í upphafi. Ef eftirfarandi leið- beiningum er fylgt næst fljótlega ár- angur. Ef hávaði er í umhverfinu á að snúa baki í mesta hávaðann. Í miklu skvaldri, s.s. á veitingastað er best að sitja sem næst viðmælanda og andspænis honum, þá gengur samtalið vel. Sitja á tvo til þrjá metra fá sjón- varpinu og hljóðstyrkur þess á að vera hæfilegur fyrir þá sem hafa fulla heyrn. Velja á fjarlægð frá sjónvarp- inu eða breyta styrkstilli á heyrnar- tækjunum þannig að hljóðið sé nota- legt. Það sama gildir um útvarp. Því nær sem er setið þeim mun betur heyrist og umhverfishljóðin trufla minna. Það sem nýjir heyrnartækjanot- endur spyrja oftast um: Munu heyrnartæki endurnýja heyrnina? Heyrnartæki hjálpa upp á heyrnina og bæta hana en þau geta ekki end- urnýjað hana fullkomlega. Algeng- asta heyrnartap stafar af skemmd á örfínum skynhárum í innra eyranu. Þessi skemmd er ólæknandi eins og er. Hversu langan tíma tekur að venjast heyrnartækjum? Sá sem hefur verið heyrnarskertur í mörg ár án þess að nota heyrnar- tæki þarf að fara í gegnum endur- hæfingu sem fellst í því að þekkja á ný hljóð sem eru gleymd. Það er mjög mismunandi hversu langan tíma endurhæfingin tekur. Í hrein- skilni sagt getur hún verið erfið en í flestum tilvikum er hún mjög auð- veld. Mikilvægt er að fara eftir því sem heyrnarfræðingurinn ráðlegg- ur og hafa í hug að um er að ræða þjálfum sem á að skila árangri. Það að ákveða að bæta heyrnina eykur lífsgæði umtalsvert og jafnvel heils- una. Geta heyrnartæki skemmt heyrnina? Nei. Nútíma heyrnartæki vinna þannig að þau draga úr mögnun háværra hljóða þannig að hljóð heyrast vel en ekki of hátt. Heyrn- arfræðingur sníður virkni tækjanna að þörfum þess sem notar þau. Heyrnartæki virkja á ný heyrnar- svæði heilans og við það eykst til muna talskilningur. Hversu lengi endast heyrnar- tæki? Venjulega er gert ráð fyrir að heyrnartæki endist að meðaltali í 5 ár. Sum tæki geta enst lengur. Til að lengja endingartíma tækjanna er nauðsynlegt að fara eftir leið- beiningum sem fylgja með þeim og einnig ábendingum heyrnarfræð- ings um daglega umhirðu. Góð heyrn glæðir samskipti. Þess má geta að rannsóknir sýna að notkun heyrnartækja bætir félags- og tilfinningalíf fólks og hæfni þess til samskipta. Allar nánari upplýs- ingar má finna á www.heyrn.is Ellisif K. Björnsdóttir heyrnarfræðingur Að vera með heyrnartæki og njóta þeirra

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.