Skessuhorn - 08.11.2017, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2017 15
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
1263. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 14. nóvember
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að
hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn •
11. nóvember kl. 10.30.
Björt framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn •
13. nóvember kl. 20.00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, •
laugardaginn 11. nóvember kl. 11.00.
Frjálsir með Framsókn í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut, •
mánudaginn 13. nóvember kl. 20.00.
Bæjarstjórnarfundur
Valdimar Hallgrímsson íbúi á Akra-
nesi vakti í síðustu viku athygli á að
mikið vantar upp á að fólk beri end-
urskinsmerki í umferðinni nú þeg-
ar rökkva tekur. Þá segir hann jafn-
vel enn verra ástand á ljósabúnaði
á reiðhjólum. „Ég bjó lengi í Dan-
mörku og þar var einfaldlega sektað
um þúsund krónur danskar ef ljósa-
búnað vantaði á reiðhjól í umferð-
inni. Hér á landi eru engin slík við-
urlög og það er nánast undantekn-
ing ef fólk notar ljós að framan og
aftan á reiðhjól sín og sést því ekki
úti í umferðinni. Þetta hefur valdið
slysum og mér finnst ég alltaf vera
að upplifa þetta á Akranesi.“
Valdimar segist fara í sundlaug-
ina snemma á hverjum morgni og
nánast daglega sjái hann reiðhjóla-
fólk án ljósa og jafnvel dökkklætt
að auki. Hann segir jafnframt að
það veki honum ugg hversu fá börn
eru á ferð á götum úti án endur-
skinsmerkja eftir að skyggja tekur.
„Þessir krakkar átta sig greinilega
ekki á hversu illa ökumenn sjá þá.
Þá er ábyrgðarhluti foreldra þeirra
mikill,“ segir hann. Valdimar tel-
ur að eðlilegt væri að endurskins-
merki væru gefin í öllum skólum
og að skólastofnanir verði að sýna
frumkvæði að bæta úr ástandinu. Þá
skoraði hann á tryggingafélög, lög-
reglu og aðra sem láta sig öryggi og
velferð vegfarenda varða, að sýna
frumkvæði í að allir sjáist í umferð-
inni. „Að öðrum kosti erum við að
bjóða hættunni heim, það verða
slys,“ segir Valdimar.
Brugðist hratt við
Hluti af þessu viðtali við Valdimar
var birt á vef Skessuhorns miðviku-
daginn 1. nóvember. Svo skemmti-
lega vill til að sama dag dreifði
Slysavarnadeildin Líf á Akranesi
endurskinsmerkjum í skóla á Akra-
nesi. En fleiri brugðust við. „Það
sló okkur að lesa þetta viðtal á vef
Skessuhorns og viljum leggja okk-
ur af mörkum til að koma í veg fyr-
ir slys í umferðinni,“ sagði Sigrún
A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur í
forvörnum hjá VÍS. „Trygginga-
félaðið VÍS hefur ákveðið að taka
áskorun Valdimars og býður öll-
um Skagamönnum að koma á skrif-
stofu félagsins að Kirkjubraut 40
og fá gefins endurskinsmerki fyrir
börn og fullorðna sem og áberandi
endurskinsvesti fyrir hjólreiðafólk
en með endurskini sjást einstak-
lingar fimm sinnum fyrr í umferð-
inni. „Opið er á skrifstofu VÍS alla
virka daga til kl.16:30,“ segir í til-
kynningu frá félaginu. mm
Endurskinsmerki vantar
og ljóslaus reiðhjól á ferð
VÍS býður öllum sem vilja að nálgast endurskinsmerki á skrifstofu og hjólreiða-
fólki að ná í endurskinsvesti.
Svo skemmtilega vildi til að daginn eftir að Valdimar vakti máls á endurskinsmerkjaskorti á yfirhöfnum á Akranesi á vef
Skessuhorns færði Slysavarnadeildin Líf á Akranesi öllum nemendum og starfsmönnum skólanna endurskinsmerki að gjöf. Á
meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa félagsins, þær Kristínu Ármannsdóttur og Rósu Sigurðardóttur, afhenda nemendum þessa
góðu og mikilvægu gjöf. Ljósm. Grundaskóli.
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM STURTUTÆKI SPEGLAR OG LJÓS
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
BAÐHERBERGISINNRÉTTINGAR
HÁGÆÐA DANSKAR
OPIÐ:
BLÖNDUNARTÆKI