Skessuhorn - 08.11.2017, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2017 17
þá ættu þær að vera í fjölskyldu-
hópum, með marga unga en síð-
ustu 30 ár hefur raunin verið önn-
ur,” segir Niall og Rachel dregur
fram graf. „Ungarnir ættu að vera
um 15-20% af hverjum gæsahópi.
Þannig var það á 8. áratugnum og
hér er grátt svæði sem sýnir það
hlutfall unga sem búast mætti við.
En það er ekki þannig, hlutfallið er
miklu lægra og þarf engan fugla-
fræðing til að sjá að eitthvað er að.
Miðað við rannsóknir okkar hér í
sumar sýnist okkur um 4% stofns-
ins vera ungar. Það er bara ekki
nóg til að stofninn geti lifað af til
lengri tíma,“ segir Niall.
„Já, þetta er ástæðan fyrir því
að við kynntumst á Grænlandi,“
segja þau og skella bæði upp úr
þegar þau áttuðu sig á því að sag-
an af þeirra fyrstu kynnum snerist
upp í frásögn af hnignun blesgæsa-
stofnsins. „Það hefur verið farið í
þessa leiðangra síðan á 9. áratugn-
um til að kanna hvað veldur því að
tegundinni gengur svona illa að
koma ungviði sínu á legg,“ segja
þau. „Þetta var sagan af okkur og
gæsunum,“ segir Rachel og bros-
ir. „Hún er sorglegt vegna þess að
það er dapurlegt að horfa upp á
gæsunum fækka með hverju árinu,
en ánægjuleg því hún er líka sagan
af okkur,“ bætir hún við.
Kynna rannsóknina
heimamönnum
Niall og Rachel hafa tekið saman
bráðabirgðaniðurstöður rannsókn-
arinnar í Andakíl og munu þau
kynna hana fyrir heimamönnum
næsta miðvikudag, 15. nóvember
kl. 20:00 í Ásgarði, aðalbyggingu
LbhÍ á Hvanneyri. Aðspurð segj-
ast þau ekki hafa rekið sig á neitt
óvænt, enda hafi það ekki verið
markmið rannsóknarinnar. „Mark-
miðið var í raun að lýsa árinu 2017,
finna út hvað var venjulegt ástand
árið 2017. Það verður ekki fyrr en
gerðar verða aðrar rannsóknir að
hægt verður að sjá eitthvað óvenju-
legt, miðað við það sem við höfum
lýst,“ segir Niall. „En þó við höf-
um ekki rekist á neitt sérstaklega
óvænt þá höfum við skráð ýmis-
legt merkilegt og margt skemmti-
legt. Mestur fjöldi fugla sem við
töldum á einum degi var fimm
þúsund fuglar af hinum ýmsu teg-
undum. Það kom ekki stórlega á
óvart en var bara virkilega gaman
að fá að njóta þess að vera í kring-
um svona marga fugla í einu,“ segir
Rachel. „Ég upplifði svæðið stund-
um eins og færiband og það fannst
mér mjög skemmtilegt. Eina vik-
una var til dæmis rosalega mikið
af hettumáfi, en næstu vikuna voru
þeir farnir og margir bjartmáfar og
hvítmáfar komnir í staðinn. Þeir
voru hér í nokkrar vikur en síðan
voru þeir horfnir líka. Í ágúst var
stór hópur af urtönd í Andakíl en
mánuði síðar var fuglinn á bak og
burt. Það var mjög gaman að upp-
lifa alla þessa fjölbreytni,“ segir
Niall.
Þessum athugunum og fleirum
til munu Rachel og Niall deila á
kynningu þeirra í Ásgarði næsta
miðvikudag. „Okkur finnst Íslend-
ingar vera í meiri tengslum við
náttúruna en það sem við þekkjum
erlendis frá. Flestir hérna þekkja til
dæmis nöfn allra helstu fuglateg-
unda og vita ýmis grunnatriði um
lifnaðarhætti þeirra. Þess vegna
erum við mjög spennt að kynna
niðurstöður rannsóknanna fyrir
heimamönnum, svara spurningum
og eiga gott samtal um fuglalífið í
Andakíl næsta miðvikudag,“ segja
Rachel og Niall að endingu.
kgk/ Ljósm. Rachel Stroud.
Fuglafræðingur að störfum. Þessari mynd smellti Rachel af Niall við
vettvangsrannsóknir á háflóði.
Spóaungi sem Rachel smellti mynd af í sumar. Hér velta Rachel og Niall vöngum yfir nokkrum fuglum sem flugu
hjá þegar Skessuhorn fór í örstutta gönguferð með fuglafræðing-
unum. Ljósm. kgk.
Vínbúðin leitar að þjónustuliprum
einstaklingum sem eru tilbúnir að
veita framúrskarandi og ábyrga
þjónustu í jákvæðu starfsumhverfi.
Skemmtilegur
og lifandi
vinnustaður
ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land.
Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu
þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd
á sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill
að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi
og skemmtilegur þar sem samskipti
einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af
þessum gildum.
Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Símonardóttir – starf@vinbudin.is, 560 7700.
Frábær vinna í jólafríinu
Við leitum einnig að kraftmiklu fólki til starfa í Vínbúðunum og Dreifingarmiðstöðinni í desember.
Aðstoðarverslunarstjóri
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þjónusta við viðskiptavini
• Sala, birgðahald og umhirða búðar
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Eftirfylgni þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins
• Verkstjórn í fjarveru verslunarstjóra
Hæfniskröfur
• Reynsla af verslunarstörfum
• Reynsla af verkstjórn
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
og þekking á Navision kostur
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember nk.
Við leitum reynsluríkum og metnaðarfullum einstaklingi í 100% starf.
á höfuðborgarsvæðinu