Skessuhorn - 08.11.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 201720
Það var frekar rólegt og afslapp-
að andrúmsloft sem mætti blaða-
manni þegar hann rak inn nefið á
starfsstöð Hafrannsóknastofnun-
ar í Ólafsvík á dögunum. Þar hitti
hann fyrir fjóra starfsmenn sem
þar sinna ýmsum störfum. Það var
síðastliðinn vetur sem Hafrann-
sóknastofnun og Sjávarrannsókna-
setrið Vör skrifuðu undir sam-
starfssamning um að hafa fram-
vegis samstarf um að reka rann-
sóknasetur í Ólafsvík. Í framhaldi
af því var svo starfsstöð Hafrann-
sóknastofnunar flutt í húsnæði
Varar. Í kjölfar þessara breytinga
voru auglýstar tvær nýjar stöður
og í byrjun sumars voru ráðin þau
Jónína Herdís Ólafsdóttir, stöðv-
arstjóri og sjávarvistfræðingur á
botnsjávarlífríkissviði og Jóhann
Garðar Þorbjörnsson, sjávarvist-
fræðingur á umhverfissviði. Gina
S. Sapanta sér eftir sem áður um
greiningar svifþörunga auk þess
sem hún kemur að öðrum verk-
efnum starfsstöðvarinnar. Jóhann-
es Ragnarsson sér um gagnasöfn-
un úr afla fyrir stofnmat Hafrann-
sóknastofnunar. Eru þau því stafs-
menn sýnatöku- og gagnavinnslu-
sviðs.
Stefnt er að því að halda áfram
vöktun og sýnatöku um samspil
umhverfisþátta og svifþörunga í
Breiðafirði en sjávarrannsókna-
setrið Vör hefur sinnt því undan-
farinn áratug. Aðspurð um hvað sé
framundan sagði Jónína að langur
undirbúningstími væri á verkefn-
um sem þessum en hún mun taka
þátt í stofnmati ígulkera á næsta
ári og einnig er hafin undirbún-
ingsvinna til að auka rannsóknir á
fiskungviði, vistfræði strandsvæða
og líffræði hryggleysingja í Breiða-
firði. Fimmtudaginn 9. nóvember
ætlar starfsfólk starfsstöðvarinn-
ar í Ólafsvík að hafa opið hús til
að kynna starfsemina. Hefst opna
húsið klukkan 15:30 og eru allir
velkomnir. Vona þau að samstarf-
ið milli Hafrannsóknastofnun og
Varar verði farsælt og til þess að
efla sjávar- og ferskvatnsrannsókn-
ir í Breiðafirði.
þa
Nú standa yfir framkvæmdir við
Grundargötu í Grundarfirði en Al-
menna umhverfisþjónustan ehf. er
að leggja rafmagnsstreng fyrir Rarik.
Verkið mun taka einhverja daga en á
meðan er hjáleið upp Borgarbraut og
niður Hlíðarveg. Einnig eru starfs-
menn Steypustöðvar Skagafjarðar
uppi í hlíðunum fyrir ofan Grundar-
fjörð þar sem verið er að tengja nýju
spennistöðina við hringtenginguna
um Snæfellsnes. tfk
Framkvæmdir á
Grundargötu í
Grundarfirði
Kynna starfsemi Hafró og Varar í Ólafsvík
Íslandpóstur ohf. hefur tilkynnt
Póst- og fjarskiptastofnun að fyr-
irtækið hygðist breyta því fyrir-
komulagi sem verið hefur hingað
til á póstdreifingu í þéttbýli. Áætl-
ar fyrirtækið að fækka dreifing-
ardögum bréfapósts frá 1. febrú-
ar 2018 þannig að hvert heimili í
þéttbýli fái til sín bréfapóst annan
hvern dag, með þjónustustigi sem
kallað er D+3. Það þýðir að póstinn
skuli bera út innan þriggja daga frá
því hann er póstlagður. Í tilkynn-
ingu Íslandspósts er vísað til ný-
legrar breytingar á reglugerð um
alþjónustu þar sem kveðið er á um
að heimilt sé að fækka dreifingar-
dögum niður í allt að tvo virka daga
í viku ef kringumstæður eða land-
fræðilegar aðstæður hindri hag-
kvæma dreifingu. Með kringum-
stæðum í skilningi reglugerðarinn-
ar er m.a. átt við að eftirspurn al-
mennings og fyrirtækja á þjónustu
innan einkaréttar hafi minnkað
verulega og sé ekki í samræmi við
framboð þjónustunnar.
Helstu rök Íslandspósts fyrir
breytingum þessum eru að rekstr-
arumhverfi fyrirtækisins hafi breyst
mikið á síðustu árum. Íbúðum hafi
fjölgað og þar með kostnaður af
dreifingu aukist. Á sama tíma hafi
minnkandi eftirspurn valdið mikl-
um samdrætti í magni almenns
bréfapósts. Þessi þróun hafi valdið
sífellt hærri einingarkostnaði.
Eftir breytinguna 1. febrúar nk.
verður póstur flokkaður og unninn
daginn eftir póstlagningu, næsta
dag þar á eftir er dreift til helmings
heimila og á þriðja degi eftir póst-
lagningu er dreift í hinn helming
heimila. Í dreifikerfi Íslandspósts í
dag er stærstum hluta bréfa dreift
sem B pósti í þéttbýli og að öllu
leyti sem B pósti í dreifbýli. Eftir
þessa breytingu mun Íslandspóstur
einungis bjóða upp á eitt þjónustu-
stig innan alþjónustu í almennum
bréfapósti.
mm
Íslandspóstur boðar
fækkun dreifingardaga
pósts í þéttbýli
Starfsfólkið í Ólafsvík.
Svipmynd af rannsóknum á lífríki Breiðafjarðar.
Biskup Íslands dró síðast-
liðinn þriðjudag til baka
ákvörðun sína um skipun
séra Evu Bjarkar Valdimars-
dóttur í starf sóknarprests í
Dómkirkjunni, en hún átti
að hefja störf daginn eftir.
Eva Björk hefur þess í stað
verið skipuð héraðsprestur
í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra. „Tildrög eru þau að
komið hafa fram athuga-
semdir um að ekki hafi ver-
ið réttilega staðið að kosn-
ingu kjörnefndar presta-
kallsins, en kjörnefnd hefur m.a.
það hlutverk að kjósa prest úr hópi
umsækjenda. Sóknarnefnd Dóm-
kirkjusóknar valdi í kjörnefndina
en kjósa skal kjörnefnd á aðalsafn-
aðarfundi eða safnaðarfundi,“ seg-
ir í tilkynningu frá Biskupsstofu. Þá
segir að þessi annmarki á málsmeð-
ferðinni sé það mikill, að mati bisk-
ups, að endurtaka verður skipunar-
ferli sóknarprests í Dómkirkjunni.
„Til að greiða fyrir því hefur sr. Eva
Björk orðið við málaleitan biskups
um að skipun hennar verði aftur-
kölluð. Með þessu sé í senn litið
til hagsmuna allra umsækjenda um
embættið og til stjórnsýslulaga.“
Embætti Dómkirkjuprests verður
því auglýst að nýju. Eins og ítar-
lega kom fram í umfjöllun Skessu-
horns í liðnum mánuði taldi séra
Elínborg Sturludóttir, sóknarprest-
ur í Stafholti og einn af umsækjend-
um um embætti Dómkirkjuprests,
að verulegir ágallar hafi ver-
ið á málsmeðferð og ákvörð-
un kjörnefndar í Dómkirkj-
unni við val á nýjum presti.
Því má segja að biskup hafi
tekið tillit til athugasemda
Elínborgar.
Þá hefur af svipuðum
ástæðum verið frestað kosn-
ingu vígslubiskups í Skál-
holtsumdæmi. Kjörnefnd-
armenn sókna í Skálholts-
umdæmi hafa kosningarrétt
við kjör vígslubiskups, sem
stendur nú yfir. „Í ljósi ofan-
greinds hefur kjörstjórn við vígslu-
biskupskjörið ákveðið að fresta
seinni umferð kosninganna, sem
hefjast áttu 6. nóvember nk. Kjör-
stjórn hefur óskað eftir því að Bisk-
upsstofa afli upplýsinga um það
hvernig staðið hefur verið að kjöri
allra kjörnefnda í Skálholtsumdæmi.
Þegar þær upplýsingar liggja fyrir
mun kjörstjórn taka ákvörðun um
framhald málsins,“ segir í tilkynn-
ingu frá Biskupsstofu. mm
Biskup dró skipun Dómkirkjuprests
til baka og frestaði vígslubiskupskjöri
Staða dómkirkjuprests verður auglýst að nýju.