Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2017 23 Söngkonan Guðrún Árný Karls- dóttir heldur jólatónleika í Stykkis- hólmskirkju sunnudaginn 17. des- ember klukkan 17 ásamt kirkju- kór Stykkishólmskirkju. Hægt er að nálgast miða á tix.is. „Ég á ætt- ingja í Stykkishólmi og mig hef- ur lengi langað að halda þar tón- leika. Ég söng með kirkjukórnum þar núna í október og eftir það lang- aði mig bara að syngja meira með þeim og ákvað því að láta verða af því að halda jólatónleika í Stykkis- hólmi,“ segir Guðrún Árný í samtali við blaðamann. Guðrún Árný hefur sungið í fjöl- mörg ár við ýmis tilefni en er þetta fyrsta árið sem hún ætlar að halda jólatónleika ein? „Ég hef í mörg ár sungið á jólatónleikum en þá með öðrum, ég söng t.d. með Frostrós- um í mörg ár. Ég er mikið jólabarn og þetta er það sem ég vil gera í des- ember. Í mínum huga er ekkert jóla- legra en að syngja jólalög með kór. Ég mun syngja alveg ný lög sem ég hef sjálf gefið út í bland við mín uppáhalds lög sem hafa fyllt mér alla tíð, mætti þar t.d. nefna Þín fyrstu jól, Jólin allsstaðar og eitt af mínum uppáhalds lögum; Það eru að koma jól, en það er einmitt yfirskriftin á tónleikunum.“ arg Heldur jólatónleika í Stykkishólmskirkju Guðrún Árný Karlsdóttir heldur jólatónleika í Stykkishólmskirkju sunnudaginn 17. desember. Hinu árlega tónlistarverkefni á Akra- nesi; Ungir gamlir, lauk að venju með tvennum tónleikum fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni síðastliðinn miðvikudag. Þetta er tólfta árið í röð sem verk- efni þetta fer fram. Markmið þess er að gefa yngra tónlistarfólki á Akra- nesi tækifæri til að vinna með reynd- ara fólki og auka þannig líkurnar á að áhugi kvikni fyrir að halda lengra á sviði tónlistarinnar. Áhugasamir nemendur taka í Ungir - Gamlir þátt í stuttum námskeiðum með þekktum tónlistarmönnum sem ráðnir eru til verksins hverju sinni. Að endingu er svo slegið upp tónleikum. Í ár var það Páll Óskar Hjálmtýsson sem kom fram með unga tónlistarfólkinu. Á efnisskránni voru að mestu leyti lög eftir Palla. Kynnir var Samúel Þor- steinsson og um undirspil í lögun- um sá húsbandið auk blásarasveitar og fjölda hljóðfæraleikara einkum úr grunnskólunum. Meðfylgjandi mynd er frá flutningi á lokalagi á seinni tón- leikunum. Óhætt er að segja að tón- listarfólkið allt hafi staðið sig með sóma enda var stemningin stórgóð í höllinni. mm Tvennir tónleikar í verkefninu Ungir - Gamlir Það var mikið um dýrð- ir í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit síðastliðinn miðvikudag þegar Félag aldraðra í Borgarfjarðar- dölum blés til sinnar ár- legu sviðaveislu. Veislan er haldin hvert haust sem næst allra heilagra messu, einni af stærstu hátíðum kirkjunnar. Að þessu sinni vildi einmitt svo heppi- lega til að sviðaveisluna bar upp á daginn. Veisluborðið svignaði af kræsingum. Bæði voru á boðstólunum köld svið og heit, kjammar og lapp- ir ásamt öllu tilheyrandi; rófustöppu, karftöflumús, rúgbrauði með smjöri og síld með. Veislan var vel sótt að vanda og gestir skemmtu sér vel undir þéttri skemmtidagskrá. Guðrún Jónsdóttir, forstöðumað- ur Safnahúss Borgarfjarð- ar, var sérstakur gestur í veislunni og flutti stutt er- indi á skemmtidagskránni. Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri og Þorvald- ur Jónsson í Brekkukoti stjórnuðu söng og léku undir af sinni alkunnu snilld við góðar undirtekt- ir félaga sem sumir hverjir stigu léttan dans. kgk Glatt á hjalla í sviðaveislu í Brún Sviðaveislan var afar vel sótt að vanda. Þorvaldur Jónsson í Brekkukoti og Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri stjórnuðu fjöldasöng. Þær stóðu vaktina í eldhúsinu og eiga heiður skilinn fyrir glæsilega veislu. Vigdís Sigvaldadóttir á Brennistöðum og Ragnheiður Kristófersdóttir frá Gils- bakka. Elsa Þorsteinsdóttir á Úlfsstöðum.Hjónin Haukur Júlíusson og Ingibjörg Jónasdóttir á Hvanneyri ásamt Ragnheiði Ásmundardóttur á Sigmundarstöðum. Heit svið og köld, kjammar og lappir með öllu tilheyrandi voru á boðstólu- num.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.