Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2017, Side 25

Skessuhorn - 08.11.2017, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2017 25 Kvenfélagskonur í Kvenfélagi Hell- issands afhentu í síðustu viku Leik- skólanum Kríubóli á Hellissandi vettlinga. Fengu þær þá hugmynd frá öðru kvenfélagi á Snæfells- nesi að prjóna vettlinga fyrir leik- skólabörnin og nefna þær verkefnið „Hlýjar hendur.“ Prjónuðu þær yfir 20 pör sem Helga Guðrún Sigurð- ardóttir og Lísa Dögg Davíðsdóttir afhentu svo Ingigerði Stefánsdótt- ur leikskólastjóra. Ætlar Ingigerður að leyfa kvenfélagskonum að fylgj- ast með hvernig þetta gengur og þær auðvitað tilbúnar að bæta við þegar þess þarf. Hugmyndin á bak við verkefnið er sú að börnin geti fengið lánaða hlýja vettlinga hjá leikskólanum. Foreldrar þurfi ekki að hafa áhyggj- ur af því að þau hafi gleymt að setja vettlinga í hólfið eða að börnin týni vettlingunum sínum og hafi þá enga. Oft fara börnin líka tvisvar út yfir daginn og þá er alltaf gott að eiga þurra vettlinga fyrir litla fing- ur í kuldanum. Ætlar leikskólinn að sjá um að þvo vettlingana og vera með tilbúna vettlinga í körfu fyrir þau börn sem þurfa. þa Kvenfélagskonur gáfu Kríubóli vettlinga „Það er stillt og stjörnubjart laugar- dagskvöld í byrjun nóvember. Fullt tungl ásamt fyrsta snjó vetrarins hjálpast að við að gefa litla þorpinu bjartari ásýnd ásamt lýsingu frá ör- fáum bæjarljósum. Maður stendur rétt við heimili sitt þegar fljúgandi verur koma æðandi að úr myrkum háloftunum, taka stefnuna að hon- um og ná lendingu skammt frá fót- um hans.“ Þessi frásögn gæti allt eins verið byrjun á skáldsögu, en svo er ekki. Það var vissulega fullt tungl laugar- dagskvöldið 4. nóvember og lýsing- in hér að framan segir frá því þeg- ar þrjár gæsir ásamt einni álft tóku flugið inn í Búðardal úr myrkrinu þegar Guðmundur Líndal Pálsson var úti að viðra hundinn sinn. Guð- mundur segir þetta hafa verið stór- undarlega upplifun sem hann muni seint gleyma. Í fyrstu leit út fyrir að fuglarnir stefndu beint á hann en svo tóku þeir lendingu örfáa metra frá honum. Álftin og gæsirnar komu sér fyrir á Búðarbrautinni og voru hinar spökustu. Glöggir menn komu fljótt með þá skýringu að ný- legar fréttir í fjölmiðlum um björg- un sela og vistun í Búðardal hafi laðað þessa góðu gesti að og því deginum ljósara að um bókstaflega selskapsferð hafi verið að ræða. Síðar um kvöldið kom í ljós að hin fjögur fræknu höfuð laumast að heiman frá Dýragarðinum að Hól- um í Hvammssveit og komu bænd- ur þaðan að sækja dýrin fyrir nótt- ina. sm Þegar fljúgandi verur birtust í kvöldmyrkrinu Íbúar í Brákarhlíð í Borgarnesi héldu árlegan basar sinn á laug- ardaginn. Seldir voru munir sem framleiddir eru í félagsstarfinu og iðjunni. Sem fyrr var margt um manninn en menningarviðburður þessi á sér langa hefð. Hægt var að setjast niður, fá sér vöfflur og ræða við íbúa og aðra gesti. Meðfylgj- andi myndir voru teknar við þetta tækifæri. mm Fjölmenni á basar í Brákarhlíð Að venju býður Snorrastofa í Reyk- holti til fjölbreyttrar dagskrár um miðjan nóvember. Tilefnið er norræna bókasafnavikan 13.-19. nóvember sem og Dagur íslenskr- ar tungu. Boðið verður til sögu- stunda með ungu kynslóðinni og þeim sem eldri eru. Friðrik Erlings- son rithöfundur leggur fram veg- legan skerf til vikunnar, heimsækir nemendur Grunnskóla Borgarfjarð- ar, eldri borgara í Brún og prjóna- bóka-kaffið auk þess sem hann held- ur fyrirlestur þriðjudagskvöldið 14. nóvember, sem hann nefnir, „Eins og þruma úr heiðskíru lofti – eru fornsögur nothæfar í nútíma?“ Í Prjóna-bóka-kaffinu á Degi ís- lenskrar tungu les Friðrik einleik sinn, „Uppgjör við smán: Mörður Valgarðsson segir frá.“ Vikan hefst með sögustund í ljósaskiptunum að morgni með yngstu nemendum frá Kleppjárnsreykjum og þeim eldri á Hnoðrabóli í Bókhlöðu Snorra- stofu. Þar les Ingibjörg Daníelsdótt- ir kennari á Fróðastöðum bókina Fjársjóðseyjan eftir Mauri Kunn- as. Hönnubúð býður hressingu og börnin fá næði til að skoða sig um og melta stutta stund upplifun stund- arinnar. Þá má ekki gleyma kvöldi Kvæðamannafélagsins Snorra í Reykholti, sem einnig verður í þess- ari viðburðaríku viku. „Eyjar á Norðurlöndum“ er yf- irskrift vikunnar að þessu sinni og myndskreyting hennar eftir eist- nesku listakonuna Regina Lukk- Toompere gefur innsýn í eyjabú- skapinn, sem víða einkennir lífið á Norðurlöndum. Um framlag sitt til vikunnar segir rithöfundurinn, Friðrik Erlingsson: „Ef höfundur þekkir sitt erindi þá er honum vandalaust að velja hvað honum hentar; að setja frásögnina í nútíð, framtíð eða fortíð. Velji hann fortíðina þá er honum jafnfrjálst að velja hvaða persónu sem er að fyr- irmynd og steypa saman, ef honum þóknast, persónum og sögusviðum úr hvaða verkum öðrum sem hon- um og efninu hentar best. Það er hið skilyrðislausa frelsi sem höfund- ur verður að gefa sér. Rekist hann á heilaga kú ber honum að slátra henni miskunnarlaust. Rekist hann á óbifanlegan almennt viðurkennd- an sannleik skal hann kalla það allt lygi, þvaður og hjóm og snúa upp á það einsog honum sýnist og að síð- ustu skyldi hann brenna allar brýr að baki sér. Aðeins þannig og ekki öðruvísi verður höfundur að vinna ef hann ætlar að skapa eitthvað nýtt úr fornu efni.“ Friðrik hefur reynslu af því að vinna sögur úr norrænum goð- sögnum, meðal annars í alþjóðlegu teiknimyndinni um Þór og í bókinni Þór - Leyndarmál guðanna, auk þess að fjalla um nýtt sjónarhorn á hinn alræmda Mörð Valgarðsson, en Friðrik hefur skrifað einleik byggð- an á persónu Marðar. ”Var Mörður kannski góði gæinn í sögunni, eftir allt,” spyr Friðrik að lokum. Það er vel við hæfi að Snorra- stofa þar sem norrænn andi svífur yfir vötnum haldi þeirri góðu hefð á lofti, sem fylgir Norrænu bóka- safnavikunni, og hvetji með ofan- greindum hætti til iðkunar frásagn- arlistarinnar, sem við Íslendingar höfum fóstrað um langa hríð. -fréttatilkynning Norræna bókasafnavikan í Snorrastofu Friðrik Erlingsson. Ingibjörg Daníelsdóttir.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.