Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 20176 Afmælisdagatal Gamla vitans AKRANES: Gamli vitinn á Suðurflös á Akranesi var byggður árið 1918 og verð- ur því 100 ára á næsta ári. Í tilefni þess hefur verið gefið út dagatal með myndum frá ýmsum ljósmyndurum, þar sem myndefnið er einmitt Gamli vitinn. Til stendur að friða vitann á næstunni,“ segir í tilkynningu frá Hilm- ari Sigvaldasyni vitaverði. „Dagatalið er veglegt og til sölu hjá Pennanum Ey- mundsson á Akranesi, Versl- uninni Bjargi, á Heilbrigðis- stofnun Vesturlands og einn- ig í afgreiðslu Akranesvita. Þá er einnig hægt að panta það í síma 894-3010,“ seg- ir Hilmar. Dagatalið kostar kostar 1.500 kr. og mun allur ágóðinn af sölu þess renna til Vesturlandsvaktarinnar, sem eru Hollvinasamtök Heil- brigðisstofnunar Vestur- lands. „Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komu að útgáfu þessa daga- tals,“ segir Hilmar Sigvalda- son. -kgk Rekstur tjaldsvæðis boðinn út AKRANES: Bæjarráð Akra- neskaupstaðar samþykkti á fundi sínum 1. nóvem- ber síðastliðinn að bjóða út rekstur tjaldsvæðisins í Kal- mansvík. Bærinn hefur ann- ast reksturinn undanfarin þrjú ár og hefur hann geng- ið vel, að því er fram kem- ur í tilkynningu á vef Akra- neskaupstaðar. Tjaldsvæðið var opnað 15. maí síðastlið- ið vor og var opið til 1. októ- ber sl. Ráðist var í nokkrar framkvæmdir á tjaldsvæð- inu í sumar, útbúinn vegur á neðra svæðinu og rafmagns- mál bætt með nýrri heim- taug og fjölgun tengla. Þjón- ustuhúsið var málað að utan, skipt um pall fyrir framan það og reist þjónustuskýli við hlið þess, þar sem ferða- menn geta grillað mat eða borðað nesti. Aðstaða starfs- manna var bætt og tekið upp nýtt greiðslukerfi. Á vef Akraneskaupstaðar segir að undirbúningur útboðs um rekstur tjaldsvæðisins hefj- ist fljótlega og stefnt sé að því að bjóða hann út í janú- ar á næsta ári. Á sama tíma er unnið að deiliskipulagi svæð- isins og vænta má þess að það liggi fyrir um mitt næsta ár. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að smáhýsi verði reist á nærliggjandi svæði, nær Akrafjalli. -kgk Samþykkja skipulag vegna þjónustuhúss BORGARBYGGÐ: Í funda- gerð Sveitastjórnar Borgar- byggðar frá 9. nóvember kem- ur fram að samþykktar hafa verið tillögur að deiliskipulagi fyrir svæði ætlað fyrir verslun- ar- og þjónustustarfsemi ferða- þjónustufyrirtækisins Into the glacier ehf. í landi Húsafells 3 við Kaldadalsveg. Tillagan var auglýst og er athugasemda- frestur liðinn. Athugasemdir bárust frá Umhverfisstofnun og hafa uppdrættir og greina- gerð verið uppfærð með tilliti til þeirra. -arg Opnar sýningu á Bókasafninu AKRANES: Kolbrún S. Kjar- val, bæjarlistamaður Akraness árið 2017, opnar sýningu á leir- munum á Bókasafni Akraness fimmtudaginn 16. nóvember klukkan 17. Sýningin stendur yfir til 22. desember og verður opin á afgreiðslutíma safnsins. Kolbrún hóf leirlistarnám áður en hún varð tvítug og stund- aði nám á ýmsum stöðum um margra ára skeið, bæði í Dan- mörku og á Bretlandi. Kol- brún vinnur aðallega í leir en teikningar hennar og vatnslita- myndir bera einnig sérstæðan stíl hennar, sem er undir sterk- um áhrifum frá náttúru Íslands og dýralífi landsins. Kolbrún er búsett að Kirkjubraut 48 á Akranesi, þar sem hún er einn- ig með vinnustofu sína. Þar hefur hún tekið á móti gestum á undanförnum árum og mun gera áfram en það er vissara að hringja á undan sér, segir í til- kynningu. -arg Tekið var á móti fyrstu gest- um Krauma, náttúrulauganna við Deildartunguhver, fimmtudag- inn 2. nóvember síðastliðinn þegar staðurinn var opnaður. Jónas Frið- rik Hjartarson, framkvæmdastjóri Krauma, er að vonum ánægður að staðurinn hafi verið opnaður og seg- ir viðbrögðin góð. „Við höfum fengið rosalega góð viðbrögð við opnuninni, það gengur vel og gestir okkar hafa verið rosa- lega ánægðir,“ segir Jónas í sam- tali við Skessuhorn. Sem stendur er búið að opna ofan í náttúrulaugarn- ar en veitingastaðurinn við Krauma verður opnaður í næstu viku. Þar verður lögð rík áhersla á hráefni úr héraði við alla matargerð. Jónas segir markaðsstarf Krauma ekki hafið að ráði. Ákveðið hafi ver- ið að fara þá leið að hleypa rekstrin- um af stokkunum og fá smá reynslu á hann áður en farið verður af full- um þunga í markaðssetningu stað- arins. Hann kveðst þó bjartsýnn á að markaðsstarfið muni ganga vel. „Ferðaskrifstofurnar eru spenntar og finnst Krauma spennandi kost- ur þannig að öll viðbrögð hafa verið jákvæð. Það hjálpar okkur helling,“ segir hann. „Að mínu mati erum við frábært nýtt fyrirtæki í Borgarfirði sem verður aðeins til að efla ferða- þjónustu á svæðinu og mun vonandi auka enn frekar ferðamannastraum um Vesturland,“ segir Jónas Friðrik Hjartarson að endingu. kgk Krauma hefur verið opnuð Gestir Krauma baða sig á sólríkum degi skömmu eftir opnunina. Ljósm. Krauma. Uppskeruhátíð hestamanna var hald- in laugardaginn 30. október. Á hátíð- inni voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í hestaíþróttum á árinu 2017. Stærsta viðurkenning kvöldsins kom í hlut Jakobs Svavars Sigurðs- sonar úr Hestamannafélaginu Dreyra á Akranesi, en hann var valinn Knapi ársins 2017. Jakob var einnig valinn íþróttaknapi ársins og tilnefndur til verðlauna í tveimur öðrum flokkum. Það var síðan Máni Hilmarsson úr Hestamannafélaginu Skugga í Bor- garnesi sem var valinn efnilegasti knapinn árið 2017. kgk/ Ljósm. úr safni. Jakob Svavar valinn knapi ársins og Máni efnilegastur Verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni. Jakob Svavar Sigurðsson og Máni Hilmars- son krjúpa í fremri röð. Ljósm. Landssamband hestamannafélaga. Jakob Svavar Sigurðsson á baki Júliu frá Hamarsey á Fjórðungs- móti Vestur- lands í sumar. Þau sigruðu opna flokkinn í tölti á því móti. Máni Hilmarsson keppir hér á Presti frá Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.