Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2017 25 Áttu Megas? Kaupi efni með eða eftir Megas, sér- staklega spólur/kassettur/snæld- ur. Hef einnig áhuga á grafiskum blöðum, teikningum og mynd- um eftir hann. Hafið samband á gunnidabb@gmail.com eða síma +479-167-6990. Eignarspilda við sjóinn Óska eftir að kaupa litla jörð, örfáa hektara, alveg við sjóinn á Suður- eða Vesturlandi eða Reykjanesi. Hef í hug að byggja mér þar lítið hús (að hámarki 60 fm) til að búa í. Endilega sendið mér línu á 67dagny@gmail. com. Bestu þakkir fyrirfram! Borgarnesdagatalið 2018 Veggdaga- tal með 13 myndum úr Borgarnesi. Skoða má myndirnar, fá nánari upp- lýsingar og panta daga- talið á slóð- inni: www.hvitatravel.is/dagatal. Bíll til sölu Til sölu Subaru Forester árgerð 2014 ekinn 46 þús. km. Hvítur að lit. Ásett verð er 3,5 milljónir króna. Upplýsingar í síma 431-1866. Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar ÓSKA KEYPT Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna Frítt á www.SkeSSuhorn.iS Fyrir kl ukkan 12.00 á þriðjudöguM 23. október. Stúlka. Þyngd: 4.218 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Elaine Ni´ Cuana og Sigurbjörn Björnsson, Akranesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Nafn stúlkunnar er Eldey Hrafntinna Éiru Sigurbjörnsdóttir. 5. nóvember. Drengur. Þyngd: 3.358 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Gunnhildur Gunnarsdóttir og Óskar Hjartarson, Stykkishólmi. Ljósmóðir: Elísabet Harles. 9. nóvember. Stúlka. Þyngd: 3.128 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Björg Björgvinsdóttir og Friðfinnur Kristjánsson, Grundarfirði. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. Á döfinni Borgarbyggð - miðvikudagur 15. nóvember Dagur íslenskrar tungu er á fimmtudaginn og í tilefni hans boðar Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum til samkomu daginn áður, miðvikudaginn 15. nóvember, í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. Dagskráin hefst kl. 14:00. Góðir gestir mæta til hátíðarhaldanna, þar á meðal fulltrúar ungu kynslóðarinnar. Akranes - fimmtudagur 16. nóvember „Munið eftir smáfuglunum“. Sýning Kolbrúnar S. Kjarval, bæjarlistamanns Akraness 2017, verður opnuð á Bókasafni Akraness kl. 17:00. Sýningin stendur til 22. desember og verður opin á afgreiðslutíma bókasafnsins. Sjá nánar í auglýsingu í Skessuhorni vikunnar. Borgarbyggð - fimmtudagur 16. nóvember Fyrirlestur í Safnahúsi Borgarfjarðar. Heiðar Lind Hansson sagnfræðingur flytur erindið „Tíu afleggjarar úr sögu Borgarness“ í Safnahúsi. Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00. Borgarbyggð - fimmtudagur 16. nóvember Skallagrímur tekur á móti Vestra í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19.15 í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Akranes - fimmtudagur 16. nóvember Upplestur á Bókasafni Akraness í tilefni af Norrænni bókasafnaviku, Guðbjörg Árnadóttir handhafi Menningarverðlauna Akraness 2017 les kafla úr sögunni Ís eftir finnska höfundinn Ulla-Lena Lundberg. Kaffi og kleinur í boði Norræna félagsins á Akranesi - allir velkomnir. Upplesturinn hefst kl. 20:00. Grundarfjörður - fimmtudagur 16. nóvember Pub Quiz til styrktar K ö r f u k n a t t l e i k s d e i l d a r Grundarfjarðar á Kaffi Emil. Í tilefni af Degi íslenskrar tungu er þemað „Íslenska og alls kyns því tengt“. Spurningahöfundur er Loftur Árni Björgvinsson. Keppnin hefst klukkan 20:30 og aðgangseyrir er 1.000 kr. sem renna til styrktar körfuknattleiksdeildinni. Grundarfjörður - föstudagur 17. nóvember Grundfirðingar mæta Keflavík b í 3. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19:00 í íþróttahúsinu í Grundarfirði. Akranes - föstudagur 17. nóvember ÍA tekur á móti FSu í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Stykkishólmur - laugardagur 18. nóvember 80´s partý Hjalta og Gogga í Skúrnum í Stykkishólmi. Veitt verða verðlaun fyrir flottasta 80´s klæðnaðinn og besti dansarinn verður valinn af leynilegri dómnefnd. Fjörið byrjar kl. 23:00 og aðgangur er ókeypis. Stykkishólmur - sunnudagur 19. nóvember Snæfell mætir Breiðabliki í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 15:00 í íþróttamiðstöð Stykkishólms. Dalabyggð - mánudagur 20. nóvember Opinn vinnufundur um ferðamál í Dölum verður haldinn kl. 17:00 til 20:00 í Dalabúð í Búðardal. Rædd verður staða og framtíðarsýn fólks varðandi ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Hvað hefur verið vel gert og hvað má betur fara. Allir þeir íbúar Dalabyggðar sem hafa skoðanir á ferðaþjónustu eru hvattir til að mæta og leggja sitt að mörkum til að atvinnugreinin geti blómstrað á svæðinu í sátt við íbúa og umhverfi. Súpa verður í boði sveitarfélagsins. Borgarbyggð - miðvikudagur 22. nóvember Skallagrímur mætir Njarðvík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. 11. nóvember. Stúlka. Þyngd: 3.780 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Svava Mjöll Viðarsdóttir og Andri Geir Alexandersson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. TIL SÖLU Á fundi hreppsnefndar Eyja- og Miklaholtshrepps þann 21. September sl. var ákveðið að auglýsa skipulagslýsingu á deiliskipulagi fyrir Vegamót í Eyja- og Miklaholtshreppi. Er það gert í samræmi við gr. 5.2.4. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Lýsingin er aðgengileg á vef sveitarfélagsins www.eyjaogmikla.is. Athugasemdum skal skila til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyja- og Miklaholts- hrepps á netfangið bygg@eyjaogmikla.is til og með 24. nóvember nk. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyja- og Miklaholtshrepps Skipulagslýsing á deiliskipulagi fyrir Vegamót, Eyja- og Miklaholtshreppi SK ES SU H O R N 2 01 7                 11. nóvember. Stúlka. Þyngd: 3.658 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Margrét Egilsdóttir og Guðjón Birgir Tómasson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.