Skessuhorn - 15.11.2017, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 201710
Svo virðist sem ránfuglar séu farnir
að halda sig meira í þéttbýli. Þeg-
ar ljósmyndari var á ferð um hafn-
arsvæði Ólafsvíkurhafnar í vikunni
rak hann augun í fálka sem sat á
grjótgarðinum upp með ánni. Sat
fálkinn hinn rólegasti meðan hann
var myndaður, færði sig svo úr stað,
en settist aftur á sama steininn. Það
síðasta sem ljósmyndari sá til fálk-
ans var að hann var búinn að koma
sér fyrir á ljósastaur skammt frá.
þa
Fálki heldur til
á hafnarsvæðinu
Íslenska kvennalandsliði í körfu-
knattleik er þessa stundina statt
í Slóvakíu þar sem það mætir
heimakonum í undankeppni Evr-
ópumótsins 2019. Leikur Íslands
og Slóvakíu fer fram síðdegis í
dag, miðvikudaginn 15. nóvember.
Leikurinn er seinni leikur liðsins í
þessu landsleikjahléi í nóvember.
Síðasta laugardag tapaði Ísland
fyrir Svartfjallalandi í Laugardals-
höllinni. Var það fyrsti leikur liðs-
ins í undankeppninni.
Vestlendingarnir Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir, leikmaður Skalla-
gríms og Berglind Gunnarsdóttir,
leikmaður Snæfells, verða í eldlín-
unni með landsliðinu í kvöld, rétt
eins og á laugardaginn var. Leik-
urinn í kvöld hefst kl. 17:00 að ís-
lenskum tíma og verður sýndur í
beinni útsendingu á RÚV2.
kgk
Landsleikur gegn Slóvakíu í kvöld
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir úr Skallagrími er þriðja frá vinstri en Berglind Gunn-
arsdóttir, leikmaður Snæfells, er önnur frá hægri. Ljósm. KKÍ.
Markaðsstofa Vesturlands hefur
ásamt öðrum markaðsstofum lands-
hlutanna skrifað undir samstarfs-
samning við Ferðamálastofu og
Stjórnstöð ferðamála um að vinna
heildstæða stefnumarkandi stjórn-
unaráætlun ferðamála fyrir sitt svæði
eða svokallaðar DMP áætlun (Dest-
ination Managment Plan). Ferða-
málastofa gefur forskrift að verk-
efninu auk þess sem skoskur ráð-
gjafi kemur að því á þeirra vegum.
Heima í héraði er tíu manna stýri-
hópur sem skipaður er fólki af öllu
svæðinu sem leggur línurnar fyr-
ir verkefnið á Vesturlandi. Auk þess
eru vinnuhópar sem vinna að verk-
efninu á hverju svæði innan Vestur-
lands og svo verður kallað eftir að-
komu bæði heimamanna og hag-
aðila til að leggja verkefninu lið.
Margrét Björk Björnsdóttir ráðgjafi
hjá SSV þróun & ráðgjöf er verk-
efnisstjóri fyrir Áfangastaðaáætlun
DMP á Vesturlandi. Að auki koma
að verkefnisstjórn Kristján Guð-
mundsson framkvæmdastjóri Mark-
aðsstofu Vesturlands og Signý Ósk-
arsdóttir hjá Creatrix, sem ráðin er
til að halda utan um skipulagningu
og framkvæmd funda sem framund-
an eru á fjórum stöðum á Vestur-
landi.
Hvað er DMP?
„DMP áætlanagerð er heildstætt
stefnumótunarferli þar sem litið er
til stöðu, skipulags og samræmingar
í þróun og stýringu þeirra þátta sem
geta haft áhrif á uppbyggingu og
upplifun varðandi ferðamál,“ segir
Margrét Björk í samtali við Skessu-
horn. „Þessi vinna lýtur að greiningu
á stöðu ferðamála á hverju svæði,
þ.e. þörfum og þolmörkum jafnt
umhverfis, samfélags, fyrirtækja og
gesta auk framtíðarvæntinga innan
greinarinnar. Vinnan byggir á gögn-
um og styðst við aðrar áætlanir og
verkefni sem snúa að ferðamálum
á hverju svæði, svo sem skipulag-
sáætlunum sveitarfélaganna, lands-
áætlun, auðlindakorti Ferðamála-
stofu og fleira. Auk þess sem mik-
ið er lagt upp úr að fá heimamenn
að borðinu, bæði hagsmunaaðila og
almenning til að leggja sitt af mörk-
um í þessari vinnu, því stefnumótun
ferðamála kemur öllum við.“
Afurðin verður heild-
stæð áfangastaðaáætlun
Margrét Björk segir að afurð verk-
efnisins verði heildstæð áfanga-
staðaáætlun DMP sem hefur það
að markmiði að stýra á ábyrgan hátt
uppbyggingu og þróun ferðamála á
Vesturlandi í framtíðinni. „Þetta er
áætlun sem byggir á sameiginlegri
sýn, stefnumótun og aðgerðaáætlun
samfélagsins, skipulagsyfirvalda og
hagaðila ferðaþjónustunnar, þann-
ig að allir sammælist um að stefna í
sömu átt og vinna að málum sam-
an.“
Fjögur svæði
Vesturlands
Áfangastaðáætlun DMP á Vestur-
landi er unnin á fjórum svæðum
með samstarfi við DMP verkefna-
hópa sem starfa á hverju svæði þ.e:
#1. svæði: Akranes og Hvalfjarð-
arsveit, #2. Svæði: Borgarbyggð
og Skorradalshreppur, #3. Svæði:
Snæfellsnesi – sveitarfélögin fimm
og #4. Svæði: Dalabyggð. Heild-
ar áfangastaðaáætlun DMP fyrir
Vesturland verður svo unnin upp úr
gögnum og vinnu frá þessum fjór-
um svæðum. Margrét Björk segir að
nú hafi verið unnið að undirbúningi,
söfnun gagna og gagnavinnslu auk
þess sem fundað hefur verið með
DMP vinnuhópum á öllum svæðum
til að leita svara við spurningunum:
Hvað hefur verið vel gert í ferða-
málum? – og hvað má betur fara í
ferðamálum? „Næst á dagskrá er að
kalla alla sem áhuga hafa að borð-
inu til að ræða hlutverk ferðaþjón-
ustu í samfélaginu og framtíðarsýn
ferðamála á Vesturlandi. Það verður
gert á opnum súpufundum á öllum
svæðum núna í nóvember og vonast
er eftir virkri þátttöku heimamanna,
þar sem ferðamál snerta allt sam-
félagið. Síðan varða aftur boðaðir
opnir fundir á öllum svæðum í janú-
ar þar sem unnið verður að mark-
miðasetningu og aðgerðaráætlun.
Viðfangsefni janúarfundanna mun
þá byggja á þeirri vinnu sem hefur
verið unnin í verkefninu og á opnu
fundunum núna í nóvember. Þessi
vinna markar stefnuna fyrir framtíð-
arþróun ferðamála á Vesturlandi,“
segir Margrét Björk.
Tímasetning fundanna
Fundirnir sem hér um ræðir eru
opnir öllum sem áhuga hafa á ferða-
málum, en mikilvægt er að skrá sig
til þátttöku á www.west.is svo hægt
sé að elda súpu sem dugir fyrir alla
fundargesti án þess að hafa áhyggjur
af matarsóun. Fundirnir í nóvember
verða á eftirtöldum dögum og stöð-
um. Allir fundirnir hefjast kl. 17:00
og munu standa til kl. 20:00.
20. nóv. Opinn fundur fyr-•
ir Dalabyggð verður haldinn í
Dalabúð í Búðardal.
23. nóv. Opinn fundur fyrir •
Snæfellsnes verður haldinn á
Breiðabliki í Eyja- og Mikla-
holtshreppi.
28. nóv. Opinn fundur fyrir •
Borgarbyggð og Skorradals-
hrepp verður haldinn í Land-
búnaðarháskólanum á Hvann-
eyri.
29. nóv. Opinn fundur fyr-•
ir Akranes og Hvalfjarðarsveit
verður haldinn í Garðakaffi
safnasvæðinu á Akranesi.
Margrét Björk hvetur íbúa á Vestur-
landi til að mæta á súpufundina á sínu
svæði sem framundan eru og leggja
sitt af mörkum varðandi stefnu-
mótun um uppbyggingu ferðamála
á Vesturlandi. „Það er mjög mikil-
vægt að gott samtal og samstarf allra
aðila verði um framgang þessarar
vinnu við áfangastaðaáætlun DMP
á Vesturlandi svo hún geti skilað
raunhæfri og góðri stefnumótun og
aðgerðaráætlun sem byggir á vilja
heimamanna og stuðlar að ábyrgri
þróun ferðamála öllum til hagsbóta
á Vesturlandi.“
mm
Kynna Áfangastaðaáætlun DMP -
samstarfsverkefni um ábyrga þróun ferðamála
„Það er mjög mikilvægt að gott samtal og samstarf allra aðila verði um framgang þessarar vinnu við áfangastaðaáætlun
DMP á Vesturlandi svo hún geti skilað raunhæfri og góðri stefnumótun og aðgerðaráætlun sem byggir á vilja heimamanna
og stuðlar að ábyrgri þróun ferðamála öllum til hagsbóta á Vesturlandi.“ Svipmynd frá Hraunfossum í Borgarfirði.
Margrét Björk Björnsdóttir er verk-
efnisstjóri í Áfangastaðaáætlun DMP á
Vesturlandi.