Skessuhorn - 15.11.2017, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2017 13
Sýning í félagsheimilinu Logalandi
í Borgarfirði fimmtudaginn
23. nóvember klukkan 20:30
Laugardaginn 11.11. á slaginu
klukkan 11:11 var fyrsta skóflu-
stungan tekin að nýju iðnaðarhúsi
Fanntófells ehf. við Gylfaflöt í Graf-
arvogi. Fanntófell er innréttingafyr-
irtæki sem upphaflega var stofnað í
Reykholti í Borgarfirði fyrir þrjátíu
árum og er enn í dag rekið af Borg-
firðingum, öðrum stofnandanum
og bróður hans. Það eru bræðurn-
ir Sigurður Bragi og Jóhannes Sig-
urðssynir sem eiga fyrirtækið og
reka ásamt Kristbjörgu Guðmunds-
dóttur eiginkonu Sigurðar. Annar af
stofnendum Fanntófells var Þórir
Jónsson húsasmíðameistari í Reyk-
holti en hann seldi sinn hluta þeg-
ar starfsemin var flutt frá Reykholti.
Fanntófell dregur nafn sitt af sam-
nefndu fjalli efst í Lundarreykjadal,
sunnan við Ok og vestan við Lykla-
fell. Fyrirtækið hefur eftir flutning-
inn úr Reykholti verið í eigin hús-
næði við Bíldshöfða í Reykjavík, á
tæplega þúsund fermetra gólffleti.
Nýja húsið við Gylfaflöt verður
1500 fermetrar og byggt úr eining-
um frá Loftorku í Borgarnesi ehf.
Það er svo Arionbanki í Borgarnesi
sem fjármagnar byggingu hússins.
Sigurður Bragi Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri segir í samtali við
Skessuhorn að ekki hafi verið umflú-
ið að flytja starfsemina í stærra hús-
næði. Starfsmenn Fanntófells eru nú
ellefu talsins og næg verkefni fram-
undan. Fyrirtækið er það eina á land-
inu sem sérhæfir sig í framleiðslu á
sólbekkjum og borðplötum. Nýja
húsið verður byggt af verktakanum
Akrafelli sem átti lóð við Gylfaflöt.
Sigurður Bragi segir að stefnt sé að
flutningi um miðjan mars á næsta
ári. „Ég las það úr görnum í slátur-
tíðinni í haust að veturinn yrði góð-
ur til byggingaframkvæmda,“ svar-
ar hann aðspurður um hvort það
sé ekki stuttur byggingartími. „Við
fáum Akrafell til að byggja húsið
og fáum það afhent fullbúið í mars.
Verkefnastaðan hjá okkur er einfald-
lega með þeim hætti að við getum
ekki byggt húsið sjálfir. Enda erum
við bestir í að smíða borðplötur en
Akrafell í að byggja hús,“ sagði Sig-
urður Bragi Sigurðsson hjá Fanntó-
felli.
mm
Fanntófell kaupir nýtt iðnaðarhúsnæði
Sigurður Bragi Sigurðsson hjá Fanntófelli og Almar Gunnarsson hjá Akrafelli tóku
fyrstu skóflustunguna. Ljósm. kg.
Mánudaginn 13. nóvember hófst
Norræna bókasafnavikan, sem
Samband norrænu félaganna stend-
ur fyrir um öll Norðurlönd og ná-
grenni. Í Snorrastofu í Reyk-
holti komu góðir gestir frá Klepp-
járnsreykjum og Hnoðrabóli, sem
hreiðruðu um sig í ljósaskiptun-
um og hlýddu á sögu Mauri Kunn-
as, Fjársjóðseyjuna, sem Ingibjörg
Daníelsdóttir á Fróðastöðum las.
Að lestri loknum áttu börnin næðis-
stund á safninu, nutu hressingar frá
Hönnubúð, skoðuðu bækur, teikn-
uðu og meltu söguna.
Óhætt er að hrósa þessum kær-
komnu gestum fyrir hve vel þau þáðu
stundina, komu prúðmannlega fram
og hlustuðu af athygli. Nú hefur
svona morgunstund í bókasafnavik-
unni verið haldin um nokkurra ára
skeið víða á bókasöfnum Norður-
landa og hefur sannað gildi sitt fyrir
alla sem að henni koma. Snorrastofa
stendur í þakkarskuld við nágranna
sína, Grunnskóla Borgarfjarðar og
Hnoðraból sem þegið hafa boð um
að flytja nemendur sína til móts við
sögustundina í Reykholt og fylgja
þeim. Þá er einnig að þakka þeim
fjölmörgu sem hafa í gegnum árin
ljáð krafta sína og rödd til þessara
notalegu samverustunda.
Jónína Eiríksdóttir
Lesið fyrir yngstu kynslóðina
Ingibjörg Daníelsdóttir les fyrir börnin á Hnoðrabóli.
Síðastliðinn laugardag héldu
félagsmenn í Félagi eldri borgara
á Akranesi og nágrenni árshátíð
sína í salnum við Kirkjubraut 40.
Að þessu sinni voru gestir frá vina-
félaginu í Kópavogi. Um hundr-
að manns voru saman komnir og
skemmtu sér yfir mat, skemmtiat-
riðum og danstónlist fram til mið-
nættis. ki
Árshátíð FEBAN
Svipmynd af framleiðslu Fanntófells.