Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 201714
Um 650 nemendur af elsta stigi
grunnskólanna á Vesturlandi fjöl-
menntu til Tæknimessu í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi síðastliðinn fimmtudag. Var
þetta í annað sinn sem Tæknimessa
er haldin en markmið hennar er að
kynna fyrir nemendum elsta stigs
grunnskólanna það nám sem er í
boði í Fjölbrautaskóla Vesturlands
á sviði iðn- og verkgreina og hvaða
tækifæri eru til atvinnu hjá iðn- og
tæknifyrirtækjum í landshlutanum
að námi loknu.
Á Tæknimessu er lögð áhersla
á að kynna starfsemi fyrirtækja á
Vesturlandi sem byggja tilveru sína
á starfsfólki með iðn- og tækni-
menntun. Dagskrá Tæknimessu
hófst á ratleik þar sem gestir leit-
uðu svara við ýmsum spurning-
um. Iðn- og tæknifyrirtæki víða af
Vesturlandi kynntu starfsemi sína
auk þess sem nemendum bauðst að
fara í kynningarferð í Skagann 3X
á Akranesi. Þá var einnig kynning
á véltækninámi um borð í ferjunni
Akranesi og farið í siglingu með
skipinu.
Allt miðar þetta að því að kynna
unga fólkið fyrir iðn- og tækni-
námi. Samtök sveitarfélaga á Vest-
urlandi styðja verkefnið í gegnum
Sóknaráætlun Vesturlands.
Skessuhorn leit við í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands við upphaf
Tæknimessu síðastliðinn fimmtu-
dag og var ekki annað að sjá en að
krakkarnir væru áhugasamir um
starfsemi fyrirtækjanna og iðnnám
í Fjölbrautaskóla Vesturlands.
kgk
Kynntu sér iðnnám á Tæknimessu
Emil Kristmann Sævarsson frá Blikksmiðju Guðmundar kynnti starfsemi fyrirtækisins og útskýrði fyrir krökkunum hvernig
loftræstikerfi virkar.
Hér fær ungur piltur kennslu í rafsuðu á Tæknimessu í FVA.
Hægt var að fylgjast með kennslu á málmiðnaðardeild FVA.
Áhugasamir krakkar kynna sér starfsemi Elkem Ísland.
Á kynningu Norðuráls mátti m.a.
sjá gínu í hlífðarklæðnaði eins og
notaður er í álveri fyrirtækisins á
Grundartanga.
Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skóla-
meistari FVA og Páll S. Brynjarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi, ræða saman á
Tæknimessu.
Hlédís Sveinsdóttir verkefnisstjóri við Tæknimessu tók á móti hópunum og fór yfir
dagskrána með þeim í upphafi heimsóknarinnar.
Krakkarnir kynna
sér starfsemi vél-
smiðjunnar Hamars.
Hægt var að fylgjast með kennslu á tréiðnadeild FVA. Hér ráðfærir nemandi sig
við kennara sinn.
Piltar prófa kennslubúnað í megatróník.
Í grunndeild rafiðna stóð krökkunum til boða að spreyta sig í rafvirkjun, undir
handleiðslu nemenda í grunndeild rafiðna við FVA.