Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 20172
Ál úr þremur sprittkermum dugar til að
búa til eina drykkjardós og aðeins þarf
þúsund sprittkerti til að fá nægt ál í reið-
hjól. Munum að skila álinu úr sprittkert-
unum til endurvinnslu eða setja þær
í grænu tunnurnar. Aðeins þarf 5% af
orkunni sem þarf til að framleiða ál til að
endurvinna það. Með endurvinnslu má
draga úr orkunotkun og losun gróður-
húsalofttegunda í heiminum. Nánar má
lesa um þetta í Skessuhorni vikunnar.
Það er áfram kalt veður í kortunum
næstu daga en hlýnar um og eftir helgi.
Á morgun fimmtudag, spáir 1 til 7 stiga
frosti en harðnar en á föstudag og verð-
ur allt að 15 gráðu frost inn til landsins
um kvöldið. Bjartviðri er spáð víða á land-
inu en éljum með norður- og norðaust-
urströndinni. Hlýnar í veðri með rign-
ingu á suðvesturhorninu á laugardag.
Snjókoma til fjalla. Bjartviðri víðast fyrir
norðan og austan og áfram frost. Snýst í
suðvestan með éljum á suðvesturhorn-
inu um kvöldið. Hiti kringum frostmark.
Áfram suðvestan og él á Vesturlandi á
sunnudag, en léttir til síðdegis. Vaxandi
suðaustanátt með kvöldinu, þykknar upp
og hlýnar. Á mánudag er útlit fyrir hvassa
og hlýja sunnanátt með rigningu víða
um land en suðvestan hvassviðri og skúr-
um á vestanverðu landinu síðdegis.
Lesendur svöruðu spurningunni „ferð þú
til kirkju á aðventunni eða á jólum?“ á
vef Skessuhorns í liðinni viku. Flestir, 37%,
sögðu „nei, örugglega ekki“ en næstflest-
ir, 27%, sögðu „já, örugglega“. „Nei, líklega
ekki“ svöruðu 15%, „já, líklega“ 11% og
„veit það ekki“ sögðu 10%.
Í næstu viku er spurt:
„Tekur þú þátt í vefkönnunum?“
Hólmfríður Tania frá Erpsstöðum í Dölum
er gjafmild stúlka. Þegar forseti Íslands
var í heimsókn í Dölum í vikunni færði
hún honum „buff“ að gjöf, enda forsetinn
mikið fyrir slíkan höfuðbúnað. Vakti upp-
átækið mikla lukku. Hólmfríður er Vest-
lendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Jólablað í
næstu viku
SKESSUHORN: Jólablað
Skessuhorns kemur út næstkom-
andi miðvikudag, 20. desemb-
er. Verður það jafnframt síð-
asta tölublað ársins. Fyrsta blað
á nýju ári kemur svo út miðviku-
daginn 3. janúar. Vegna stærðar
og umfangs Jólablaðs er nauð-
synlegt að auglýsingar og aðsent
efni berist ritstjórn í síðasta lagi
föstudaginn 15. desember. Aug-
lýsingapantanir sendist á auglys-
ingar@skessuhorn.is eða í síma
433-5500, en efni til ritstjórnar
á skessuhorn@skessuhorn.is.
-mm
Vestlendingur
ársins?
VESTURLAND: Skessuhorn
mun nú sem fyrr standa fyrir
vali á Vestlendingi ársins; þeim
sem á einhvern hátt hefur skar-
að fram úr á árinu og verðskuld-
ar sæmdarheitið Vestlendingur
ársins 2017. Skilyrði er að við-
komandi hafi búsetu á Vestur-
landi. Íbúar á Vesturlandi geta
sent ábendingar inn á ristjórn
Skessuhorns, á netfangið skessu-
horn@skessuhorn.is fyrir 20.
desember nk. Einnig er hægt að
senda ábendingar í pósti; merk:
Skessuhorn, Kirkjubraut 56, 300
Akranesi. Gott er að ábending-
um fylgi rökstuðningur í nokkr-
um orðum. -mm
Rán sæmd starfs-
merki UMFÍ
SNÆFELLSBÆR: Rán Krist-
insdóttir hlaut á héraðsþingi
Héraðssambands Snæfells- og
Hnappadalssýslu, sem haldið
var fyrr í vikunni, starfsmerki
UMFÍ fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf fyrir íþróttahreyf-
inguna í Snæfellsbæ. Auður Inga
Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, afhenti Rán starfs-
merkið. Rán hefur verið formað-
ur Umf. Víkings í Ólafsvík síðan
árið 2014. Hún hefur lagt mikla
vinnu í að gera starf ungmenna-
félagsins öflugra og betra. Hún
hefur einnig staðið fyrir Snæ-
fellsjökulshlaupinu ásamt eig-
inmanni sínum, Fannari Bald-
urssyni. Rán er mikil áhuga-
manneskja um heilbrigt líferni
og hreyfingu. Hún hefur stað-
ið fyrir ýmsum viðburðum sem
tengjast hreyfingu og hefur m.a.
átt frumkvæðið að því að stofna
skokkhóp fyrir íbúa bæjarins þar
sem hún fer með þá að hlaupa/
skokka ýmsar vegalengdir um
Ólafsvík. Þá hefur hún líka ver-
ið með gamlárshlaup á gamlárs-
dag.
-mm
Það voru skemmtileg tímamót í at-
vinnulífi Grundfirðinga fimmtu-
daginn 7. desember þegar fram-
kvæmdir hófust við nýtt fiskvinnslu-
hús Guðmundar Runólfssonar hf.
Það var Runólfur Guðmundsson
stjórnarformaður fyrirtækisins sem
hóf framkvæmdirnar. Fyrsta skóflu-
stungan var reyndar tekin um sjó-
mannadagshelgina síðustu þegar öll
börn bæjarins tóku fyrstu skóflu-
stungurnar. Nú var hinsvegar hafist
handa við að moka grunninn og eft-
ir að hafa fengið létta tilsögn um vél-
ina mokaði Runni holu eins og hann
hafi aldrei gert annað. Það verður
svo Almenna umhverfisþjónustan
ehf sem mun halda framkvæmdun-
um áfram. Það verður því í nógu að
snúast í þessu fyrirtæki næstu mán-
uðina og verður forvitnilegt að fylgj-
ast með framgangi verksins.
Nýja fiskvinnnsluhúsið verður
búið fullkomnum tækjabúnaði til
bolfiskvinnslu. Meðal annars var í
sumar gengið frá samningum um
kaup á tveimur nýjum vatnsskurðar-
vélum, nýrri flæðilínu fyrir bolfisk,
pökkunarlínu og vinnslulínu fyr-
ir karfa. Eftir stækkun vinnslunnar
verður hægt að vinna 75-80% meira
en í núverandi vinnsluhúsi, eða 30
til 35 tonn á dag, en með svipuðum
fjölda starfsfólks. Fram kom í frétt
Skessuhorns í sumar að samning-
urinn fæli í sér sölu Marels á full-
komnasta tækjabúnaði sem fyrir-
tækið hefði hannað fyrir íslenska
fiskvinnslu.
tfk
Framkvæmdir hafnar við nýtt fiskvinnsluhús GRun
Fyrsta vélskóflustungan tekin. Runólfur Guðmundsson stjórnarformaður stóð sig fagmannlega við verkið.
Hluti stjórnarmanna G.Run hf og starfsmenn Almennu Umhverfisþjónustunnar
taka moksturinn út.
Fyrstu skóflustungurnar voru teknar að nýja húsinu um sjómannadagshelgina.
Ljósm. úr safni Skessuhorns/sá.
Í síðustu viku voru veittir tveir
öndvegisstyrkir úr Uppbygging-
arsjóði Vesturlands. Komu þeir í
hlut Vínlandsseturs í Búðardal og
Kaju Organic á Akranesi. Á haust-
mánuðum var auglýst eftir hug-
myndum að verkefnum sem hlot-
ið gætu öndvegisstyrk úr sjóðnum.
Alls bárust tíu tillögur. Var það
niðurstaða stjórnar Uppbygging-
arsjóðs Vesturlands að velja þrjú
verkefni sem fengju stuðning til að
vinna viðskiptaáætlanir um frek-
ari útfærslu. Umsókn eins verk-
efnisins var dregin til baka og eftir
stóðu Vínlandssetur og Kaja Org-
anic. Niðurstaða stjórnar sjóðsins
var að veita Vínlandssetri öndveg-
isstyrk að upphæð ellefu milljón-
ir króna og Kaju Organic styrk að
verðmæti fjórar milljónir.
„Vínlandssetur í Búðardal er
verkefni sem hefur verið í undir-
búningi um nokkurt skeið. Setrið
segir í einni sýningu frá landnámi
íslenskra manna í Grænlandi og
af fundi þeirra og ferðum til Am-
eríku. Sýningin verður sett upp
á efri hæð Leifsbúðar, en á neðri
hæð verður minjagripaverslun
og veitingastaður. Vínlandsset-
ur verður n.k. systursetur Land-
námssetursins í Borgarnesi, en
þau hjónin Kjartan Ragnarsson og
Sigríður Margrét Guðmundsdótt-
ir hafa í samstarfi við Dalabyggð
unnið að undirbúning að stofnun
setursins. Markmiðið með Vín-
landssetri er að laða til sín inn-
lenda sem erlenda ferðamenn og
efla þannig Dalabyggð sem ferða-
þjónustusvæði,“ segir í tilkynningu
frá Samtökum sveitarfélaga á Vest-
urlandi.
Kaja Organic á Akranesi hlýt-
ur styrk til framleiðslu á lífræn-
um jurtamjólkurdrykkjum. „Kaja
Organic á Akranesi er orðið þekkt
vörumerki og stendur fyrir lífrænt
vottað, gæði og gott verð. Karen
Jónsdóttir, eigandi fyrirtækisins,
hefur rekið heildsölu, verslun og
kaffihús með lífrænar vörur, auk
þess að framleiða lífrænar kökur
og pasta. Nú hyggst Karen hefja
framleiðslu á jurtamjólk undir
merkjum Kaju organic og fær fyr-
irtækið öndvegisstyrk til að hefja
framleiðslu á lífrænni jurtamjólk.“
kgk
Vínlandssetur og Kaja Organic
hlutu öndvegisstyrki
Stjórn sjóðsins og fulltrúar styrkþega. Ljósm. ssv.