Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 201722 Jólaljúfmetismarkaður Stykkis- hólmz Bitter var haldinn í Nýrækt- inni í Stykkishólmi um liðna helgi, á öðrum sunnudegi í aðventu. Þar gafst gestum og gangandi kostur á að bragða á ljúfmeti frá veitinga- mönnum og matvælaframleiðend- um í Stykkishólmi og nágrenni. Markaðurinn var afar vel sóttur, að því er fram kemur á Facebook- síðu Stykkishólmz Bitter. Er það mat aðstandenda hans að stað- setning og einstök aðventustemn- ing hafi gert hann að einum best heppnaða markaðnum til þessa, en markmiðið með Stykkishólmz Bit- ter er einmitt að efla andann og gera eitthvað skemmtilegt. kgk/ Ljósm. sá. Einstök stemning á jólaljúfmetismarkaðiTónlistarskóli Grundarfjarðar hélt árlega jólatónleika sína í Grundar- fjarðarkirkju miðvikudaginn 6. des- ember síðastliðinn. Þá sýndu krakk- arnir fjölbreyttan afrakstur æfinga haustsins. Fullt var út úr dyrum á tónleikunum og þurfti að bæta við stólum í kirkjunni svo allir fengju sæti. Jólalögin fengu svo að óma hvert af öðru og tónleikagestir yf- irgáfu salinn í sannkölluðu hátíðar- skapi. tfk Jólatónleikar Tónlistarskóla Grundarfjarðar Trommusveitin stóð sig með mikilli prýði og var fagnað með dynjandi lófaklappi. Þessar þrjár ungu og efnilegu söngkonur fluttu fallegt jólalag að hætti hússins. Gítarsveitin var einbeitt á svip í sínum flutningi. Þessar glæsilegu söngkonur komu fólki í jólagírinn. Fjöldi fólks var samankominn við opnun Smávina hagleikssmiðju að Aðalgötu 20 í Stykkishólmi á fimmtu- dagskvöld og afmæli Leirs 7 við sama tilefni. Smávinir urðu þá formlega hluti af Économusée Network, sem eru alþjóðleg samtök handverksfyr- irtækja sem opna dyr sínar fyrir al- menningi og eru viðurkennd fyrir gæði og sérstöðu. Markmið samtak- anna er að halda handverki og hand- verksþekkingu í heiðri samhliða því að tryggja hagvöxt í dreifbýli. „Þetta er félagsskapur sem varð til í Kandada fyrir um 30 árum síðan og snýst um að hafa opin verkstæði þar sem gestum gefst kostur á að fylgjast með og fræðast um vöruna sem þar er framleidd frá því hún er hráefni og þar til hún er fullunnin. Skilyrði er að varan sé unnin í höndum, hvort sem það er matvara eða hvaðeina sem við köllum vanalega handverk,“ seg- ir Lára Gunnarsdóttir, eigandi Smá- vina, í samtali við Skessuhorn. Hún kveðst ekki síst hafa sótt um inn- göngu vegna þess að Sigríður Erla Guðmundsdóttir í Leir 7, sem deilir húsnæði með Smávinum, hefur ver- ið meðlimur í nokkur ár. „Mér þótti eðlilegt að sækja um inngöngu úr því við erum hér undir sama þaki,“ seg- ir Lára. „Samtökin munu síðan hafa hendur í bagga með að setja hér upp fræðsluplaköt um bæði íslenska leir- inn og skógana, því Sigga vinnur úr leirnum og ég eingöngu úr íslensku birki,“ segir hún og kveðst ánægð að hafa fengið inngöngu í samtökin. „Því fylgir ákveðinn gæðastimpill og að baki er langt umsóknarferli. Það er því afar ánægjulegt að hafa fengið að- ild að samtökunum,“ segir Lára. Áratugsafmæli Leirs 7 Við sama tækifæri var boðið til af- mælisveislu í Leir 7, sem deilir hús- næði með Smávinum eins og fyrr seg- ir. Síðastliðinn fimmtudag voru liðin tíu ár eru síðan Sigríður Erla stofn- aði fyrirtækið með það að markmiði að að framleiða vörur úr íslensk- um leir frá Ytri-Fagradal á Skarðs- strönd. „Fífldirfska og þakklæti eru mér efst í huga þegar ég lít til baka yfir þessi tíu ár frá stofnun Leirs 7,“ segir hún létt í bragði í samtali við Skessuhorn. „Fífldirfska að því leyti að hafa ætlað mér að setja upp gall- erí og lifa af því, með því að vinna eingöngu með ákveðið hráefni sem enginn annar er að vinna með. En þakklæti fyrir að hafa ætt af stað fyr- ir tíu árum síðan og að enn gangi allt vel,“ bætir hún við. „Leir 7 hef- ur vaxið ár frá ári og mér þykir alltaf vænt um að hafa tekið þá ákvörðun í upphafi að selja bara í Stykkishólmi, þó það gæti líka flokkast undir fífl- dirfsku. Það hefur gert það að verk- um að fólk gerir sér ferð til að skoða leirinn og starfsemina,“ segir hún en kjarninn í starfseminni hefur alla tíð verið sá sami. „Kjarninn er að nýta hráefni úr nágrenninu, að það sé stuttur vegur frá hráefni til fullunn- ar vöru og þetta sýnilega ferli í fram- leiðslu. Ég tel mjög verðmætt fyrir lítið bæjarfélag eins og Stykkishólm að hafa svona hagleikssmiðjur, bæði Leir 7 og Smávini,“ segir hún. Aðspurð um framtíðina kveðst Sig- ríður ætla að halda áfram að þróa sína framleiðslu hægt og bítandi. „Leir 7 heitir þessu nafni vegna þess að ég tek alltaf sjö ár í einu. Árið 2014 endur- skoðaði ég líf mitt síðast og hugsaði hvernig ég myndi vilja stefna næstu árin og gera hlutina. Þá kom Lára inn á verkstæðið með Smávini og hefur það verið farsælt samstarf. Sjálf er ég því í algjöru fríi til 2021, það er ekki fyrr en þá sem ég þarf að spá í hvað ég ætla að gera og hvaða stefnu ég ætla að taka,“ segir Sigríður. Góður staður verður enn betri Það var í nóvember síðastliðnum að Stykkishólmur Slowly færði starfsemi sína undir þak með Smá- vinum og Leir 7 við Aðalgötu 20. Að fyrirtækinu standa frænkurn- ar Mæsa og Theó og sérhæfa þær sig í matar- og menningartengdum gönguferðum í sátt við samfélag og náttúru. Göngurnar eru farnar um Stykkishólm og nágrenni, um troðnar en helst ótroðnar slóðir. Gestir fá að kynnast daglegu lífi og fræðast um mat og menningu og lögð er áhersla á „slow“ hug- myndafræðina, þar sem markmiðið er að njóta í stað þess að þjóta. Lára í Smávinum hefur á orði að henni þyki fara vel á að fá Stykkishólm Slowly undir sama þak og Smávini og Leir 7. „Sambúðin er góð og ég sé fram á að hún verði aðeins til að laða enn fleira fólk inn til okkar. Fyrirtækin eiga góða samleið, öll leggja þau áherslu á notalegt and- rúmsloft. Að fá stelpurnar í Stykk- ishólmur Slowly hingað inn verð- ur aðeins til þess að fjölga gestum og gera góðan stað enn betri,“ seg- ir Lára að endingu. Frænkurnar í Stykkishólmur Slowly tóku virkan þátt í opnun- arhátíð hagleikssmiðju Smávina og afmælisveislu Leirs 7. Boðið var upp á hlýlegar veitingar á sam- komunni og gestir nutu samver- unnar og kynntu sér starfsemi fyr- irtækjanna við Aðalgötu 20. kgk/ Ljósm. sá. Hagleikssmiðja Smávina opnuð í Stykkishólmi Leir 7 fagnaði tíu ára afmæli við sama tækifæri

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.