Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 201716
Fimmtudaginn 7. desember var
svokallaður jólapeysudagur í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði. Þá mættu kennarar, starfs-
menn og nemendur í jólapeys-
um í skólann. Það var töluvert
meiri þátttaka úr röðum starfs-
manna skólans en þó var einn og
einn nemandi sem skartaði fagurri
jólapeysu í tilefni dagsins. Kenn-
arar og starfsmenn stilltu sér upp
fyrir fréttaritara enda vakti þetta
uppátæki töluverða kátínu á með-
al þeirra.
tfk
Jólapeysu-
dagur í FSN
Umhverfisviðurkenningar Akra-
neskaupstaðar 2017 voru veitt-
ar síðastliðinn fimmtudag. Viður-
kenningarnar eru veittar einstak-
lingum og hópum í fjórum flokk-
um; falleg einbýlishúsalóð, snyrti-
leg fyrirtækjalóð, hvatningarverð-
laun og fyrir tré ársins. Valið fór
þannig fram að óskað var eftir til-
nefningum frá íbúum og valnefnd
fengin til starfa. Hana skipuðu
Helena Guttormsdóttir, lektor og
brautarstjóri umhverfisskipulags
hjá Landbúnaðarháskóla Íslands,
Jón Guðmundsson garðyrkju-
fræðingur og Belinda Eir Engil-
bertsdóttir landslagsarkitekt.
Hvatningarverðlaun komu í
hlut Hallveigar Skúladóttur og
Stefáns Jónssonar fyrir endurbæt-
ur á Mánabraut 9 og Mánabraut
11. „Um er að ræða fallegar og
vel heppnaðar endurbætur tveggja
ólíkra húsa af virðingu fyrir upp-
runalegum byggingarstíl,“ segir
m.a. í rökstuðningi valnefndar.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi veittist viðurkenn-
ing fyrir snyrtilega fyrirtækjalóð.
Segir í rökstuðningi valnefndar að
stofnunin hafi verið framúrskar-
andi þegar kemur að viðhaldi og
umhirðu bygginga og lóða sinn og
sé öðrum fyrirmynd.
Unnur Guðmundsdóttir og
Valur Heiðar Gíslason fengu
viðurkenningu fyrir fallega ein-
býlishúsalóð á Dalsflöt 1. „Unn-
ur og Valur hafa lyft Grettistaki á
skömmum tíma á Dalsflöt 1. Þau
hafa sinnt viðhaldi og umhirðu
húss og lóðar frá upphafi með
miklum sóma og eru öðrum til
fyrirmyndar,“ segir í rökstuðningi.
Þá segir enn fremur að útfærsla
lóðarinnar sé sérlega áhugaverð,
tenging milli einka- og almenn-
ingsrýmis vel heppnuð og fjöl-
breytt val fjölæringa og þekjupl-
antna, runna- og trjágróðurs auki
sjónræn gæði göturýmis.
Að lokum var veitt viðurkenn-
ing fyrir tré ársins og er það í ann-
að sinn sem slíkt er gert. Að þessu
sinni varð fyrir valinu fallegur
hlynur við Vesturgötu 42, en íbú-
ar og eigendur lóðar eru Stein-
þóra Guðrún Þórisdóttir og Bald-
vin Kristjánsson og Magnús Vagn
Benediktsson. Líklegast er um
garðahlyn að ræða og eru tilgátur
um að hann hafi verið gróðursett-
ur árið 1958, en þá bjuggu í hús-
inu hjónin Niels Finsen og Jónína
Finsen. Tréð er einstofna og fyllir
trjákrónan nær alla lóðina og yfir á
þá næstu. „Algjört augnakonfekt,
stórt og kröftugt. Því miður sést
það ekki frá götu en fólk í aðliggj-
andi lóðum baka til við húsið njót-
um fegurðar þess,“ var m.a. sagt
um tréð þegar það var tilnefnt.
Að afhendingu umhverfisviður-
kenninga lokinni var boðið upp á
kaffi og köku og áttu viðtakend-
ur og fulltrúar Akraneskaupstaðar
saman notalega stund.
kgk
Hlutu umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar
Handhafar Umhverfisviðurkenninga Akraneskaupstaðar 2017 ásamt fulltrúum
bæjaryfirvalda og valnefndar að afhendingu lokinni. Ljósm. kgk.
Nefndin telur endurbætur á húsunum við Mánabraut 9 og 11 hafa tekist vel.
Ljósm. mm.
Falleg einbýlishúsalóð við Dalsflöt 1 hlaut verðlaun. Ljósm. er skjáskot af vef ja.is
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi veittist viðurkenning fyrir snyrtilega
fyrirtækjalóð. Ljósm. mm.
Hlynurinn í garði við Vesturgötu 42 er
talinn vera um 60 ára gamall.