Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 201724 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Þegar bátarnir liggja við bryggju í landlegum er oft eitthvað sem þarf að ditta að í þeim. Þannig var stað- an þegar Hringur SH lá í Grundar- fjarðarhöfn á dögunum og nokkr- ir iðnaðarmannabílar voru uppi á bryggjunni. Það voru starfsmenn frá Vélsmiðju Grundarfjarðar sem voru að vinna við skut skips- ins á meðan starfsmenn frá Mar- eind voru við vinnu í brúnni í sigl- ingatækjunum. Þarna þarf að hafa hröð handtök því ekki má dragast að fara á sjóinn aftur enda þarf að sjá vinnslunni fyrir hráefni. tfk Landlegan notuð til aðhlynningar Endurvinnsluátakinu „Gefum jóla- ljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertunum“ var ýtt úr vör í lið- inni viku af Guðmundi Inga Guð- brandssyni umhverfis- og auðlinda- ráðherra. Tilgangurinn með átakinu er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá fyrirtækjum. Ætla má að á ári hverju séu notuð um þrjár milljónir sprittkerta hér á landi. Til að setja hlutina í samhengi, þá dug- ar álið úr þremur sprittkertum í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund sprittkerti til að búa til reiðhjól. Skila má sprittkertum á um 90 endurvinnslu- og móttökustöðvar um allt land. Þá gefst fólki kostur á að setja kertin í grænu tunnurnar sem eru í boði hjá Gámaþjónust- unni og Íslenska gámafélaginu. Að átakinu standa: Endurvinnslan, Fura málmendurvinnsla, Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið, Málmsteyp- an Hella, Plastiðjan Bjarg, Samál – Samtök álframleiðenda, Samtök iðn- aðarins og Sorpa. Ráðist hefur verið í sambærileg átaksverkefni í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og á Írlandi og er þetta til- raunaverkefni hér á landi. Álið sem safnast verður pressað hjá Furu og endurunnið hér á landi, en nán- ar verður tilkynnt um útfærslu þess þegar söfnunarátakinu lýkur í lok janúar. Ál hefur þá sérstöðu að það má nýta aftur og aftur án þess að það tapi upprunalegum eiginleikum sín- um. Einungis þarf um 5% af orkunni sem fór upphaflega í að framleiða álið til að endurvinna það. Það þýðir að mikil verðmæti leysast úr læðingi við endurvinnslu álsins og færir það stoðir undir rekstur endurvinnslufyr- irtækja víða um Evrópu. Þá dregur orkusparnaðurinn við endurvinnslu áls verulega úr losun gróðurhúsaloft- tegunda, enda verður almennt mest losun frá orkuvinnslunni við fram- leiðslu áls í heiminum. Átakið hófst í síðustu viku og stendur til 31. janúar næstkomandi. mm Vilja gefa jólaljósunum lengra líf Á myndinni eru f.v: Óskar Örn Þórhallsson sem sér um viðskiptastjórnun og gæða- mál hjá Endurvinnslunni, Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls, Birgir Ásgeir Kristjánsson framkvæmdastjóri umhverfissviðs Íslenska Gámafélagsins, Líf Lárus- dóttir verkefnastjóri sölu- og markaðsmála Gámaþjónustunnar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. Um miðjan nóvembermánuð lögðu konur úr Kvenfélagi Stafholts- tungna í Borgarfirði land undir fót og héldu til Barcelóna á Spáni. Þó dagarnir væri ekki margir reynd- ist konunum unnt að sjá marga fal- lega staði og ótrúlegar bygging- ar. Má þar nefna hið fagra klaustur Monserrat. Þá heimsóttu þær vín- ekru og vínframleiðslu, skoðuðu Sagrada Familia kirkjuna og Güell garðinn þar sem Gaudi - byggingar eru. Nutu þær þess einnig að snæða framandi rétti og einhverjar litu í búðir enda tilboð í gangi á hverju götuhorni. Meðfylgjandi mynd- ir tók Anna Hallgrímsdóttir í ferð- inni. mm Kvenfélag Stafholtstungna brá sér til Barcelóna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.