Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 20176 Nafnasam- keppni um sameinað hestamanna- félag B O R G A R B Y G G Ð : Vinnuhópur um samein- ingu hestamannafélaganna Faxa og Skugga, sem hefur það hlutverk að fylgja eft- ir samþykkt félaganna frá 30. nóvember síðastliðn- um um sameiningu Faxa og Skugga, hefur ákveð- ið að efna til samkeppni um nafn á félaginu. Af því tilefni er óskað eftir hug- myndum að nýju nafni á hestamannafélagið. Tillög- um að nafni má skila á net- fangið umsb@umsb.is fyr- ir 1. janúar 2018. „Öllum áhugasömum er frjálst að senda inn tillögur og gam- an væri ef það fylgdi tillög- unni útskýring, rökstuðn- ingur eða tenging í hér- aðið. Í framhaldinu verð- ur kosið um nýtt nafn í rafrænni kosningu með- al félagsmanna sem verð- ur nánar auglýst þegar nær dregur,“ segir í tilkynningu frá Pálma Blængssyni hjá UMSB, en sambandið fer með oddasæti í sameining- arnefnd félaganna. -mm Ný stjórn HSH SNÆFELLSNES: Hér- aðsþing HSH var á mánu- daginn en hafði ekki verið haldið í tvö ár. Á þinginu, sem fór fram í félagsheim- ilinu Klifi í Ólafsvík, var ný stjórn og varastjórn kos- in. Hjörleifur K. Hjörleifs- son var kosinn formaður ásamt öðru nýju stjórnar- fólki. Ragnhildur Sigurð- ardóttir, sem sat í starfs- stjórn HSH í fyrra var líka kosin í stjórnina ásamt Garðari Svanssyni, fyrrver- andi framkvæmdastjóra. „Það er kraftur í okkur og allt horfir til betri veg- ar hjá okkur. Við ætlum að rífa sambandið í gang fyr- ir allt íþróttafólkið okkar,“ segir Laufey, framkvæmda- stjóri HSH. Hún bætir við að stemningin hafi verið góð og fleiri mætt en hún hafi gert ráð fyrir eða um 45 þingfulltrúar frá öll- um aðildarfélögum HSH. Á þinginu voru lagðir fyr- ir ársreikningar HSH fyrir árin 2015 og 2016 og þeir samþykktir. Þá var lögð fyrir ársskýrsla ársins 2016. Íþróttamaður ársins hjá HSH er Berglind Gunn- arsdóttir, leikmaður meist- araflokks kvennaliðs Snæ- fells í körfuknattleik, eins og greint er frá í annarri frétt í blaðinu í dag. -mm Skipulag skotæf- ingasvæðis BORGARBYGGÐ: Meiri- hluti umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar Borgar- byggðar samþykkti á fundi sín- um í gær fyrir sitt leyti breyt- ingu á aðalskipulagi sem heim- ilar skotæfingasvæði í landi Hamars, ofan við Borgarnes. Tillagan er sett fram á upp- drætti og með greinargerð sem dagsett er 5. desember síðast- liðinn. Tillagan tekur til breyt- ingar á Aðalskipulagi Borgar- byggðar 2010-2022, þ.e. breyta landnotkun svæðis í landi Ham- ars úr landbúnaði í íþróttasvæði ÍÞ. Ný reið- og gönguleið verð- ur lögð 400 m sunnan við skot- æfingasvæðið,“ segir í bókun frá fundinum. Málsmeðferð verður samkvæmt 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri af- greiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókunin var samþykkt af fjór- um nefndarmönnum, en Björk Jóhannsdóttir fulltrúi Samfylk- ingar sat hjá við afreiðsluna. -mm Borgnesingar aldrei verið fleiri BORGARBYGGÐ: Á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að 11. desember síðastliðinn hafi íbúar Borgarbyggðar verið 3750. Hefur þeim fjölgað um 70 síðan 11. desember 2016. Flest- ir hafa íbúar verið rétt tæplega 3.800 árið 2008. Þar af eru íbú- ar í Borgarnesi rúmlega 2000 og hafa þeir aldrei verið fleiri. -mm Í frétt í Skessuhorni í síðustu viku var greint frá kvörtunum sem bor- ist hafa vegna starfsemi fiskþurrk- unarfyrirtækisins Arctic Prótein við Sólbakka í Borgarnesi. Fyrirtæk- ið rekur litla fiskþurrkun þar sem unnið er próteinduft og olía úr fisk- slógi sem fellur til við slátrun á eld- islaxi. Fram kom að fyrirtækið hef- ur tilskilin starfsleyfi til vinnslunnar en vegna þrálátrar lyktarmengunar og að ekki hefur veirð brugðist við umkvörtunum á það yfir höfði sér afturköllun starfsleyfis. Heilbrigð- iseftirlit Vesturlands hefur ítrekað sent bréf þar sem farið er fram á úr- bætur. Í færslu á Facebook síðunni „Borgarnes“ í kjölfar birtingar frétt- arinnar í Skessuhorni útskýrir Víðir Örn, talsmaður fyrirtækisins, ástæð- ur lyktarmengunarinnar: „Undan- farið höfum við verið að fá kvartan- ir vegna lyktar frá starfsemi okkar. Lyktinni mætti lýsa sem ósonbland- aðri suðulykt sem hefur stundum fundist í kringum húsnæði okkar,“ segir Víðir Örn. Efla fengin til að leysa vandamálið „Við höfum nýlega bætt við ósón- kerfi okkar sem á að hafa það hlut- verk að eyða þeirri lykt sem gengur út um skorstein hússins. Sú breyting skilaði sér í því að gufan sem geng- ur út um skorsteininn hefur þessa einkennilegu ósónlykt sem sumum finnst vera ólykt. Undir skorstein- inum er vifta sem blæs svo lofti úr vinnslusal okkar og hefur sú lykt, ef einhver, blandast við gufuna. Það sem ég vildi koma á framfæri er að nú höfum við fengið til liðs við okk- ur ráðgjafa frá verkfræðistofu Eflu sem ætlar að koma með lausnir yfir það hvernig best sé að hreinsa það loft sem kemur frá verksmiðjunni, sem og hvernig sé best að stækka og breyta skorsteininum. Skorsteinn- inn sem nú er á húsnæðinu er þann- ig að gufan gengur bæði upp og nið- ur úr svokölluðum hatti sem er efst á honum. Það gerir það að verkum að gufan leitar fljótt beint til jarðar. Ég vona að þið getið gefið okkur tíma,“ segir Víðir Örn í ávarpi sínu til Borgnesinga; „til að laga okkar mál svo við getum haldið áfram að starfa í þessu frábæra bæjarfélagi í sátt og samlyndi við ykkur íbúana.“ mm Unnið að úrbótum vegna lyktarmengunar Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra hefur lagt til hlið- ar hugmyndir Jóns Gunnarssonar fráfarandi ráðherra um fjármögn- un stórra samgöngumannvirkja á suðvesturhorninu með innheimtu vegtolla. Jón skipaði eins og kunn- ugt er nefnd sem útfærði þá leið að tvöfalda Suðurlandsveg austur fyrir Selfoss, Vesturlandsveg í Borgarnes og tvöföldun Reykjanesbrautar með vegtollum sem yrðu á að giska 140 krónur á hverja ferð. Þannig mætti á sex árum ljúka framkvæmdum við stofnvegi sem vissulega eru flösku- hálsar í vegakerfinu eins og umferð er nú. Í sáttmála nýrrar ríkisstjórn- ar er hins vegar ekki gert ráð fyrir að þessi leið verði farin til að hraða uppbyggingu samgöngumannvirkja og hefur Sigurður Ingi Jóhannsson nýr ráðherra staðfest að slíkum hug- myndum hafi einfaldlega verið ýtt til hliðar. Í ljósi loforða ríkisstjórn- arflokkanna mun væntanlega koma í ljós við fjárlagagerð eða í ríkisfjár- málaáætlun sem lögð verður fram í mars hversu langur tími verður áætl- að að framkvæmdirnar munu taka. Jón Gunnarsson var gestur í morg- unútvarpi Rásar 2 í síðustu viku. Þar kvaðst hann hissa á ákvörðun Sig- urðar Inga eftirmanns síns í ráð- herraembættinu og telur hana skref aftur á bak. „Meðan ekki koma fram aðrar hugmyndir þá finnst mér vera farið aftur á bak,“ sagði Jón Gunn- arsson þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins og fyrrum ráðherra. mm Vegaframkvæmdir verða ekki fjármagnaðar með vegtollum Umferð um „allar“ akreinarnar um hringveginn við Hafnarfjall.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.