Skessuhorn - 13.12.2017, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 201710
Verslunin Borgarsport í Borgar-
nesi átti 35 ára afmæli síðastlið-
inn fimmtudag. Í tilefni dagsins var
boðið upp á ýmis tilboð í verslun-
inni auk þess sem viðskiptavinum
var boðið upp á köku eftir klukk-
an 16 og börnin fengu gefins „spin-
ner“. Að sögn Helgu Sifjar Andr-
ésdóttur, eiganda Borgarsports,
gengur reksturinn ljómandi vel og
er hún ánægð með hversu dugleg-
ir heimamenn eru að koma við og
eiga viðskipti við Borgarsport.
arg
Borgarsport í
Borgarnesi 35 ára
Kaka var í boði í tilefni afmælisins.
Félagið Langholt ehf., sem á og
rekur Bauluna í Borgafirði, hef-
ur fengið nýja eigendur. Fyrri eig-
endur höfðu rekið félagið síðustu
17 ár með miklum sóma en það var
1. september sl. að nýir eigendur
komu að rekstrinum. Elmar Guð-
laugsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri félagsins. Hann hafði
starfað hjá Ölgerðinni síðan 2009,
síðast sem sölumaður á landsbyggð-
inni, sem nýtist honum mjög vel á
nýjum starfsvettvangi.
Elmar segir að það sé mikill hug-
ur í honum að breyta og byggja
staðinn enn betur upp. „Baulan
hefur verið matsölustaður, verslun
og eldsneytissöluaðili sl. ár. Mikl-
ar breytingar eru hafnar til að bæta
alla þjónustu við viðskiptavini en
sem dæmi hefur matseðilinn verið
stækkaður og nú hægt að fá pizz-
ur allan daginn. Einnig munum
við stækka matsalinn á næstunni
svo hægt verði að taka við stórum
rútum og þeim ferðamönnum sem
vilja fá góða þjónustu. Frá byrjun
hefur ekki verið innangengt á milli
bensínstöðvar og verslunnar en
því verður nú breytt,“ segir Elmar.
Framkvæmdir hafa nú þegar verið
hafnar og segir Elmar gert ráð fyrir
að þeim ljúki í byrjun apríl nk.
-fréttatilkynning
Nýir eigendur Baulunnar
í Borgarfirði
Snæfellsbær lét nú í byrjun mánað-
arins bora tilraunaholu við Ráðhús
Snæfellsbæjar á Hellissandi. Með
þessari borun var verið að kanna
jarðlögin en þau eru nokkuð flókin
blanda m.a. af klöpp og hrauni. Það
var Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
sem sá um borunina. Að sögn Krist-
ins Jónassonar, bæjarstjóra Snæfells-
bæjar, tókst borunin vel en töluvert
vatn og sjór er í holunni sem er 150
metra djúp. Hitinn í henni mælist
6,5 gráður og botnhiti um 15 gráður.
Eins og staðan er nú er gert ráð fyr-
ir að holan nýtist til að kynda Ráð-
húsið með því að tengja „vatn í vatn“
varmadælu við hana. Einnig hlýst við
þetta góð reynsla sem ætti að nýt-
ast til að bora fleiri holur á svæðinu.
Til að mynda verður auðveldara að
reikna út kostnað við borun og kaup
á varmadælum við hús. Reynslan af
notkun „vatn í vatn” varmadælna
hefur sýnt fram á orkusparnað upp á
50 - 60% og ef hús eru vel einangruð
og með gólfhita ætti sparnaðurinn að
geta orðið meiri þar sem þess konar
hús þurfa minni orku. þa
Nægilegur hiti fannst við ráðhússvegg
til að knýja varmadælu
Síðastliðinn laugardag var jóla-
markaður haldinn í gömlu hlöð-
unni í Nesi í Reykholtsdal. Þar
kenndi ýmissa grasa í jólatengdum
varningi, matvöru og fleiru. Með-
al annars var kynnt til leiks ný ís-
gerð í Brekkukoti í sömu sveit sem
systkinin Halldóra Lóa og Helgi
Eyleifur Þorvaldsbörn standa fyr-
ir. Ísinn þeirra verður seldur und-
ir vörumerkinu Laufey, til heið-
urs ömmu þeirra Laufeyju Hann-
esdóttur í Brekkukoti. Óhætt er að
segja að Laufey ísinn hafi slegið í
gegn og fékk hann afar góðar við-
tökur á markaðinum.
mm
Kynntu Laufey ísinn á jólamarkaði
Jónína Sigríður Þorláksdóttir og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir kynna hér Laufeyjar
ísinn á jólamarkaði í Nesi.
Ísinn er fyrst um sinn framleiddur
með þremur bragðtegundum, meðal
annars með jarðarberjum og basiliku
frá Sólbyrgi. Ljósm. kj.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa
gert skýrslu um olíunotkun í sjáv-
arútvegi og væntanlega notkun til
ársins 2030, auk annarra umhverf-
isþátta í starfsemi sjávarútvegsfyrir-
tækja. „Mikið hefur áunnist á und-
anförunum áratugum og mjög hefur
dregið úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda sem rekja má til sjávarútvegs
á Íslandi. Sú þróun heldur áfram á
komandi árum. Einkum er horft til
áranna 1990 til 2030 í skýrslunni, en
það er það tímabil sem Parísarsam-
komulagið miðast við. Það er von
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi að
skýrslan gefi nokkuð skýra mynd af
þróun í olíunotkun sjávarútvegs á Ís-
landi og einnig því, hvernig sjávar-
útvegurinn mun á næstu árum draga
enn frekar úr olíunotkun og losun
gróðurhúsalofttegunda,“ segir í til-
kynningu.
Meðal helstu niðurstaðna í skýrsl-
unni eru að sterkir fiskistofnar, fram-
farir í fiskveiðum og betra skipulag
veiða hefur leitt til verulega minni
olíunotkunar í sjávarútvegi og þar
með losun gróðurhúsalofttegunda.
Eldsneytisnotkun í sjávarútvegi
hefur í heild minnkað um 43% frá
árinu 1990 til ársins 2016. Þá kemur
fram að reiknað er með að eldsneyt-
isnotkun í sjávarútvegi hafi dreg-
ist saman um 134 þúsund tonn frá
árinu 1990 til ársins 2030. Þá verði
bræðsla á fiski nær eingöngu knúin
með rafmagni og raforkuframleiðsla
um borð í fiskiskipum heyri til und-
antekninga þegar skip eru í höfn.
Gangi þetta eftir mun eldsneytis-
notkun í sjávarútvegi dragast saman
um 54% á tímabilinu.
Í skýrslunni kemur fram að árs-
notkun eldsneytis í sjávarútvegi árið
2016 var sú lægsta frá árinu 1990,
bæði frá fiskiskipum og fiskimjöls-
verksmiðjum. Loks kemur fram að
fjárfestingarþörf í fiskiskipum fram
til ársins 2030 er metin um 180
milljarðar króna. Nýrri og tækni-
væddari skip munu draga enn frekar
úr umhverfisáhrifum sjávarútvegs.
Hagkvæmnisútreikningar sýna að
hagstæðara er að nota rafmagn úr
landi þegar skip eru í höfn, frekar en
að keyra ljósavélar sem ganga fyrir
olíu. mm
Verulega dregur úr eldsneytis-
notkun í sjávarútvegiÍsfisktogaranum Viðey RE var á fimmtudaginn siglt af stað frá
Tyrklandi áleiðis til Íslands. Gert
er ráð fyrir að siglingin taki hálf-
an mánuð og er skipið væntanlegt
til Reykjavíkur skömmu fyrir jól.
Viðey er síðasta skipið í röð þriggja
nýrra ísfisktogara sem Celiktrans
skipasmíðastöðin í Tyrklandi smíð-
aði fyrir HB Granda, en áður voru
uppsjávarskipin Venus NS og Vík-
ingur AK smíðuð fyrir HB Granda
hjá sömu stöð.
Heimsiglingin verður í hönd-
um Jóhannesar Ellerts Eiríkssonar
skipstjóra og hans manna. Ráðgert
er að formleg móttaka vegna komu
Viðeyjar til heimahafnar í Reykjavík
verði föstudaginn 22. desember.
mm
Viðey RE á heimsiglingu
Viðey RE við brottför frá Tyrklandi.