Skessuhorn - 13.12.2017, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2017 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
WWW.VARMACLOTHING.COM
Frí heimsending um land allt
GEFÐU HLÝJU Í JÓLAPAKKANN
Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar nýja stöðu kerfisstjóra á bæjarskrifstofunni
á Akranesi. Í starfinu felst að vera tæknilegur leiðtogi og móta nýja tæknistefnu fyrir Akranes-
kaupstað. Gert er ráð fyrir svigrúmi að vaxa í starfi s.s. með endurmenntun, námskeiðum og
ráðstefnuhaldi.
Umsóknarfrestur er til og með 27. desember 2017. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, baejarstjori@akranes.is.
Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar. Umsóknum fylgi ítarleg starfs-
ferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi til starfsins.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með
sjö þúsund íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða
þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð í
stjórnsýslunni.
Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæðni,
metnaður og víðsýni.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Dagleg umsjón, notendaþjónusta og rekstur
tölvukerfa og vélbúnaðar
• Umsjón með afritunar- og hýsingarmálum
• Innleiðing og stýring nýrra kerfa og
verkefna sem því tengjast
• Umsjón með og stýring verkefna sem snúa
að tæknilegum verktökum
• Greining og fyrirbygging vandamála sem
kunna að koma upp
• Gera umbætur í rekstri tölvuumhverfisins
með einfaldleika og öryggisstöðlum
• Aðstoða og hafa yfirsýn með að koma á
námskeiðum fyrir starfsfólk
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræði eða
góð starfsreynsla æskileg
• Góð reynsla af rekstri tölvukerfa og
innleiðingu nýrra kerfa
• Góð þekking og reynsla æskileg af
Microsoft hugbúnaði s.s Active Directory,
PowerShell, Exchange, Office 365, Azure,
Lync og SCCM
• Rík þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð samskipta- og leiðtogahæfni
• Frumkvæði og metnaður að ná árangri í
starfi
Erum við að leita að þér?
Kersstjóri óskast til starfa hjá Akraneskaupstað
Í opinberri heimsókn forseta Ís-
lands um Dalasýslu í liðinni viku
var meðal annars farið fyrir strandir
eins og það er kallað, þegar ekið var
um Skarðsströnd og Fellsströnd.
Vegirnir á þessari leið eru malar- og
leirbornir. Í næsta stoppi, sem var í
Búðardal, fékk ökumaður forsetans
aðstöðu hjá Valdísi Gunnarsdótt-
ur til að skola af bílnum. Hún tók
meðfylgjandi myndir við það til-
efni. mm
Forsetabíllinn fékk hluta
Dalaveganna í nesti