Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 201720
Síðastliðinn fimmtudag fór fram
kynning á 100 verkefnum sem verða
á dagskrá aldarafmælis sjálfstæðis og
fullveldis Íslands 2018. Kynningin
var haldin í Safnahúsinu við Hverf-
isgötu að viðstöddum fulltrúum
verkefna af öllu landinu. „Á næsta
ári fögnum við aldarafmæli sjálf-
stæðis og fullveldis Íslands. Afmæl-
isnefnd var falið, samkvæmt þings-
ályktun, að standa fyrir hátíðarhöld-
um um land allt. Var ákveðið að fara
þá leið að leita til landsmanna um
mótun dagskrár afmælisársins. Aug-
lýst var eftir tillögum að verkefnum
á dagskrána. Bárust 169 tillögur og
var sótt um rúmlega 280 milljónir
króna. Á fimmtudaginn voru kynnt
þau 100 verkefni sem valin voru úr
innsendum tillögum.
Verkefnin sem valin voru á dag-
skrána eru fjölbreytt og verða unnin
um land allt. Þau bera með sér hug-
myndaauðgi og gefa mynd af öflugu
menningar- og atvinnulífi í landinu.
Verkefnin spanna allt litrófið; þau eru
stór og umfangsmikil eða minni um
sig, en öll styrkja þau ímynd þjóðar-
innar sem sjálfstæðrar og fullvalda
þjóðar í samfélagi þjóðanna. Mörg
verkefnanna fela í sér samstarf ein-
staklinga, samtaka og stofnana hér á
landi og erlendis, en sérstaklega var
hvatt til nýsköpunar í áherslum sem
nefndin kynnti á vef sínum þegar
auglýst var eftir verkefnum á afmæl-
isdagskrána,“ segir í tilkynningu af-
mælisnefndar.
Hæstu styrkina, eða þrjár millj-
ónir, hljóta hátíðarsýningar í Þjóð-
minjasafni Íslands 2018, Óperan
Bræður eftir Daníel Bjarnason í Ís-
lensku óperunni og Sagafilm sem
ætlar að framleiða sjónvarpsþætti
um Fullveldisöldina.
Styrkir á Vesturland
Hér á eftir er umfjöllun um þau
verkefni á Vesturlandi sem hlutu
styrki, en alls renna 6,8 milljónir
króna til verkefna sem hafa beina
skírskotun í landshlutann.
Fullveldisöldin
í fjarska og nánd
Snorrastofa í Reykholti fékk vilyrði
fyrir tveggja milljóna króna styrk
vegna verkefnisins „Fullveldisöldin
í fjarska og nánd 1918–2018. Snorri
og sjálfstæðisbaráttan.“ Snorrastofa
setur upp þemasýningu sem tengist
fornum bókmenntum og fullveld-
inu. Sýningin verður tengd grunn-
sýningu Snorrastofu og mun ramma
inn málþing sem verður á haustdög-
um og fjallar um fornar bókmenntir
og fullveldið. Er þetta hluti af stærra
verkefni sem Snorrastofa stendur
fyrir. Verkefnið er unnið í samstarfi
við íbúa í Borgarfirði og hollvina-
samtök Snorrastofu í Noregi.
Viðburðir í
Stykkishólmi
Stykkishólmsbær fékk 1,5 millj-
ón króna í styrk vegna „Viðburð-
ir á vegum Stykkishólmsbæjar í til-
efni aldarafmælis fullveldis Íslands.“
Stykkishólmsbær og stofnanir bæj-
arfélagsins standa fyrir ýmsum við-
burðum á afmælisárinu. Tónlistar-
skólinn leggur áherslu á að kynna
og flytja íslenska tónlist og ættjarð-
arlög ásamt því að nemendur semja
lög með tímamótin í huga. Veitt
verða verðlaun. Þjóðbúningahátíðin
Skotthúfan verður haldin á vegum
Norska hússins. Opnuð verður sýn-
ing í Amtsbókasafninu á verkefnum
nemenda þar sem fjallað verður um
hvernig var að alast upp 1918 saman-
borið við 2018. Grunnskólinn mun
efna til ritgerðasamkeppni og Ljós-
myndasafn Stykkishólms sýnir ljós-
myndir tengdar 1918. Leikskólinn
mun vinna verkefni tengd íslenska
fánanum og halda sýningu. Fullveld-
isdagurinn 1. desember verður há-
punktur hátíðahaldanna. Byggða-
safn Snæfellinga og Hnappdæla mun
opna sýningu um tengsl Jóns Sig-
urðssonar við ýmsa framfaramenn
búsetta í Stykkishólmi á 19. öld.
Konur í landbúnaði
Landbúnaðarsafn Íslands fær hálfa
milljón króna í styrk vegna verk-
efisins: „Konur í landbúnaði í 100
ár.“ Sýningunni er ætlað að varpa
ljósi á mikilvægan og fjölbreyttan
þátt kvenna í landbúnaði en sá þátt-
ur hefur oft farið dult í umræðu um
íslenskan landbúnað í gegnum árin.
Áætlað er að setja sýninguna upp í
Halldórsfjósi á Hvanneyri og á sýn-
ingunni verða myndir og mun-
ir sem sýna þátt kvenna í landbún-
aði frá stofnun fullveldis til okkar
daga. Einnig verða sett upp fræðslu-
spjöld sem tengjast viðfangsefninu.
Sýningin er ætluð öllum aldurshóp-
um til fróðleiks og komið verður á
samstarfi við grunn- og leikskóla á
Hvanneyri, bæði við undirbúning
og á meðan á sýningunni stendur.
Sýningin er unnin í samstarfi við
fjölmarga aðila, þar á meðal Kven-
félagið 19. júní sem fagnar 80 ára af-
mæli sínu á næsta ári.
Fullveldi til fullveldis
Jónína Erna Arnardóttir í Borgar-
nesi hlýtur hálfa milljón króna í styrk
vegna verkefnisins „Fullveldi til full-
veldis.“ Verkefnið eru tónleikar með
sögumanni, þar sem farið er yfir
menningarsögu Íslands í tónum og
tali, frá því að við vorum fullvalda
þjóð til þess að við urðum það aftur.
Íslensk tónlist allt frá Ár var alda til
Þjóðsöngsins og nýs tónverks sem
hefur verið pantað hjá ungu íslensku
tónskáldi af þessu tilefni. Kastljósi
er beint á það hvað tónlist og menn-
ing hafði mikil áhrif á sjálfsmynd Ís-
lendinga til að við gætum verið sjálf-
stæð þjóð.
Íslensk kammertónlist
Reykholtshátíð 2018 fær hálfa millj-
ón vegna verkefnisins „Fullveldi í
100 ár: íslensk kammertónlist frá
1918–2018.“ Verða það lokatón-
leikar Reykholtshátíðar í sumar. Á
tónleikunum verður leikið úrval ís-
lenskra kammerverka frá fullveldis-
árinu 1918 og fram til ársins 2018.
Dr. Árni Heimir Ingólfsson tón-
listarfræðingur verður ráðgefandi í
þessu verkefni. Á tónleikunum verð-
ur frumflutt á Íslandi nýtt verk eftir
Borgnesinginn Önnu Þorvaldsdótt-
ur tónskáld, en frumflutningur á
verkinu fer fram í París í apríl 2018.
Heimildarmynd
um útileiki
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi
hlýtur 400 þúsund króna styrk vegna;
„Viðburðir og heimildarmynd um
útileika barna 1918–2018.“ Byggða-
safnið hyggst fjalla um og gera stutta
heimildarmynd um útileiki barna
sem og halda viðburði því tengdu.
Með verkefninu er leitast við að gera
útileikjum barna frá upphafi 20. ald-
ar skil á myndrænan hátt og með því
skrá og varpa ljósi á hvernig útileik-
ir barna hafa breyst frá þessum tíma
fram á okkar daga. Myndin verður
hluti af grunnsýningu Byggðasafns-
ins í Görðum, Akranesi.
Minningarreitur um
Sturlu Þórðarson
Dalabyggð fyrir hönd áhugahóps
um Sturlu Þórðarson, hlýtur 300
þúsund króna styrk vegna; „Opn-
un minningarreits um sagnaritarann
Sturlu Þórðarson.“ Sturla Þórðar-
son, sagnaritari, skáld og lögmaður,
bjó á Staðarhóli í Saurbæ í því hér-
aði sem nú heitir Dalabyggð, fædd-
ur 1214, dáinn 1284. Hann er af-
kastamestur sagnaritara 13. aldar,
ekki aðeins um sögu Íslands, held-
ur einnig Noregs. Arfur hans á fullt
erindi til samtímans, enda er hann
stór hluti sjálfsmyndar Íslendinga.
Síðsumars verður opnaður minn-
ingarreitur um Sturlu á Staðarhóli í
Saurbæ og verður opnunarathöfn í
tilefni þess.
Vínlandssetur
Eiríksstaðanefnd hlýtur 300 þús-
und króna styrk vegna Vínlands-
seturs í Leifsbúð Búðardal. Í und-
irbúningi er opnun Vínlandsseturs
í Búðardal þar sem landafundasögu
Íslendinga verða gerð skil í sýning-
arformi. Setrið verður systurset-
ur Landnámsseturs í Borgarnesi. Í
apríl verður blásið til viðburðar sem
verður formlegt upphaf uppbygg-
ingarinnar þar sem fjallað verður
um þetta metnaðarfulla verkefni op-
inberlega, sýnd drög að hönnun og
sagt frá ferlinum, auk þess sem fyrsta
senan að sýningunni verður sýnd og
fjallað um tengsl þessara landafunda
við fullvalda ríkið Ísland.
Ættjörðin og
unga fólkið
Safnahús Borgarfjarðar í Borgar-
nesi hlýtur 300 þúsund króna styrk
vegna verkefnisins „Ættjörðin og
unga fólkið.“ Verkefnið er sam-
starfsverkefni við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar þar sem unnið er með
ungu fólki í listsköpun. Á árinu 2018
tekur markmið og textaval sérstakt
mið af fullveldisárinu. Valin verða
ættjarðarljóð af ýmsu tagi og eft-
ir borgfirsk skáld á ýmsum tímabil-
um, alveg til samtíma. Umfjöllun-
arefnið er ættjörðin og verða ljóð-
in sett í vinnuhefti sem dreift verður
til nemenda Tónlistarskólans í byrj-
un janúar. Þeir vinna svo með texta
úr heftinu að eigin vali undir hand-
leiðslu kennara sinna og semja tón-
list við þá. Lokapunktur verkefnis-
ins er svo tónleikar í Safnahúsi 19.
apríl þar sem nemendur flytja sjálfir
eigin verk.
„Kellingarnar“
minnast fullveldis
Bókasafn Akraness og leikfélag-
ið Skagaleikflokkurinn hlýtur 300
þúsund króna styrk vegna verkefn-
isins „“Kellingarnar“ minnast full-
veldis.“Markmið „Kellinganna“
er að fræða og skemmta samferða-
mönnum sínum í göngu um bæ-
inn. Leitað verður fanga í Héraðs-
skjalasafni Akraness, í dagbókum,
fundargerðum, tímaritum, bréfum
og hreppskjölum. Horft verður til
þessara þátta; byggðin, höfnin, heil-
brigðismál / spánska veikin, skóli,
kirkja, félagsstörf og hátíða-höld 1.
des. 1918. Afraksturinn verður flutt-
ur á göngu um Akranes, áð verður
á stöðum sem tengjast efninu. Með
verkefninu er varpað ljósi á lífið á
Akranesi árið 1918, borið saman við
daginn í dag.
Barnamenningarhátíð
á Snæfellsnesi
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes hlýtur
200 þúsund króna styrk vegna verk-
efnisins; „Barnamenningarhátíð á
Snæfellsnesi.“ Á barnamenning-
arhátíðinni verður sérstök áhersla
lögð á fjölmenningarsamfélagið
sem við búum í. Á hátíðinni verð-
ur kynning á 21 þjóðerni sem búsett
er á Snæfellsnesi. Á barnamenning-
arhátíðinni fer fram kynning á mat-
arhefðum, þjóðdönsum, söng o.fl.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
Frystiklefann á Rifi og alla skóla á
Snæfellsnesi.
mm
Verkefnastyrkjum úthlutað til að
minnast aldarafmælis fullveldisins
Fulltrúar styrkþega þegar styrkjunum var úthlutað í Safnahúsinu við Hverfisgötu sl. fimmtudag.
Hér má sjá hvernig styrkjum er dreift um landið, enda lögð áhersla á þátttöku sem flestra landsmanna.