Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2017 21 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Staða leikskólastjóra leikskólans Andabæjar er laus til umsóknar Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningar- bréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rök- stuðningi fyrir hæfni í starfið skulu sendar til borgarbyggd@borgarbyggd.is. Umsóknarfrestur er til 20. desember nk. Nánari upplýsingar veitir Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, annamagnea@ borgarbyggd.is, sími: 840-1522. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar sem konur hvött til að sækja um starfið. Menntunar og hæfniskröfur: Leyfisbréf leikskólakennara• Stjórnunarreynsla• Færni í mannlegum samskiptum• Skipulagshæfni og fagmennska• Starfssvið: Stjórnar daglegri starfsemi og ber ábyrgð á • faglegu starfi og rekstri leikskólans í samræmi við markmið laga um leikskóla Ber ábyrgð á skipulagi skólastarfs í samstarfi við • foreldra, starfsfólk skólans og skólayfirvöld Ber ábyrgð á mannauðsmálum, svo sem • ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólastjóra hjá leikskólanum Andabæ á Hvanneyri í Borgarbyggð. Andabær er þriggja deilda leikskóli í afar fallegu umhverfi. Snæfellsbær SK ES SU H O R N 2 01 7 Auglýsing á aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015-2031 Snæfellsbær auglýsir samkvæmt 31. gr skipulagslaga nr. 123/2010 til- lögu að aðalskipulagi Snæfellbæjar 2015-2031 ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Snæfellsbæjar að Klettsbúð 4 og hjá Skipulagsstofnun frá og með 14. desember 2017 til 8. febrúar 2018. Tillagan er einnig aðgengileg á heimasíðu Snæfellsbæjar, http://taeknideild-snb.is/. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. febrúar 2018. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Snæfellsbæjar að Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ eða á netfangið byggingarfulltrui@snb.is. Tillagan er sett fram í greinargerð og á uppdráttum og er auglýst með athugasemdum Skipulagsstofnunnar og yfirliti hvernig brugðist var við athugasemdum. Segja má að hluti af fótboltavellin- um í Ólafsvík hafi fengið nýjan til- gang, en það hefur ekki ekki farið fram hjá íbúum á svæðinu að þessa dagana standa yfir framkvæmdir á Ólafsvíkurvelli. Verið er að jarð- vegskipta undir gervigras eins og fram hefur komið í Skessuhorni. Ákveðið var að nota hluta af efninu sem til féll til að bæta umferðarör- yggi. Var alls um 3000 rúmmetrum ekið í vegkantinn fyrir utan Enni á rúmlega 300 metra kafla til að gera hann aflíðandi og draga úr slysa- hættu í þeim tilfellum þegar bílar lenda utan vegar. Hefur öryggis- svæðið á veginum verið stækkað með þessum hætti og ræsi lengd. Það er TS vélaleiga sem annast verkið. þa Efni úr knattspyrnuvelli ekið í vegaxlir Foreldrafélögin á sunnanverðu Snæfellsnesi, í samvinnu við Sögu- fylgjur, buðu síðastliðinn laugar- dag upp á Rökkurró í Hofsstaða- skógi. Var viðburðurinn vel sótt- ur og úr varð skemmtileg fjöl- skyldustund. Farið var í ratleik, sungið, sagðar fallegar jólasögur og boðið upp á jólakökur og heitt kakó og kaffi. Að sjálfsögðu birt- ist svo jólasveinninn börnunum til ennþá meiri gleði. Voru krakkarnir óhræddir að dæla á hann spurning- um um hin og þess mál sem tengd- ust þeim bræðrum. iss Rökkurró í Hofsstaðaskógi Soroptimistaklúbbur Snæfells- ness afhenti nýverið foreldrum allra barna sem fæddust á þessu ári í Snæfellsbæ að gjöf bókina Fyrstu 1000 dagarnir, barn verð- ur til. Börnin eru fjórtán talsins. Höfundur bókarinnar er Sæunn Kjartansdóttir ljósmóðir. Sorop- timistasystur Snæfellsness hafa síðan ákveðið að gefa öllum verð- andi foreldrum í Snæfellsbæ bók- ina og mun hún verða afhent framvegis á meðgöngunni þeg- ar konur fara í eftirlit á Heilsu- gæslustöðinni í Ólafsvík. Til- gangur gjafarinnar er að efla for- eldra í nýju hlutverki. þa Afhentu foreldrum bók að gjöf

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.