Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Síða 23

Skessuhorn - 13.12.2017, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2017 23 Ívar Orri Kristjánsson á Akranesi var annar íslenskra dómara sem bættist á lista alþjóðadómara FIFA fyrir árið 2018, en listinn var birtur nýverið. Ívar hefur þó vitað lengi af þessu, eða allt frá því KSÍ hafði samband við hann í september og upplýsti að til stæði að tilnefna hann á lista al- þjóðadómara fyrir Íslands hönd. „Ég var gífurlega ánægður og stoltur með tilnefninguna. Ég segi kannski ekki að ég hafi stefnt að þessu alla tíð. En eftir að hafa dæmt í hæsta gæða- flokki á Íslandi undanfarin ár þá hef- ur það verið á markmiðaskránni að komast á lista alþjóðadómara, þó ég hafi kannski ekki horft til þess þegar ég var að byrja,“ segir Ívar í samtali við Skessuhorn. En hvað þýðir það fyrir knatt- spyrnudómara að komast á lista al- þjóðadómara FIFA? „Nú opnast sá gluggi að fara að dæma erlendis und- ir eigin formerkjum. Dómarar sem koma nýir inn á alþjóðalista byrja í þriðja styrkleikaflokki, sem er jafn- framt sá neðsti í af fjórum flokkum. Í þeim styrkleikaflokki byrja dóm- arar að dæma landsleiki yngri lands- liða, U17, U19 og U21, í Evrópu- keppnum ungliða og í fyrstu um- ferðum undankeppni Evrópudeilda UEFA. Það að dæma á erlendum grundvelli er auðvitað bara uppskera mjög erfiðrar vinnu og góðs gengis hér heima og í erlendum verkefnum sem KSÍ hefur útvegað manni síð- astliðin ár. Síðan hef ég verið mjög heppinn að hafa fengið að fara sem varadómari í erlend verkefni síð- ustu tvö ár og þar af leiðandi hlotið dýrmæta reynslu. Nú er það undir manni sjálfum komið að sýna það og sanna hvað býr í manni,“ segir hann. Byrjaði að dæma fyrir tilviljun Ívar er 28 ára gamall og hóf að dæma árið 2010. Síðan þá hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín sem dómari, var til að mynda valinn besti dómari Pepsi deildar kvenna tvö ár í röð, 2013 og 2014, og besti dómari ÍA undanfarin tvö ár. En tilviljun ein réði því að hann tók upp flaut- una á sínum tíma. Hann lék með Skallagrími upp yngri flokkana og síðar með meistaraflokki „við góðan orðstír,“ eins og hann orðar það léttur í bragði. Árið 2010 var hann hluti af meistaraflokki Borg- arnesliðsins, lék í 3. deild karla en gat lítið spilað það sumarið vegna meiðsla. Það var þá sem vinur hans plataði hann til að koma með sér á dómaranámskeið og síðan þá hefur Ívar klæðst dómaratreyj- unni inni á vellinum. „Ég held reyndar að flestir dómarar byrji að dæma fyrir tilviljun, þetta detti einhvern veginn upp í hendurnar á þeim. Ég tel að strákar og stelp- ur leggi sjaldnast upp með það að verða dómarar,“ segir Ívar. Ástæð- una segir hann vera hvernig dóm- arastarfið birtist út á við. „Þetta lítur ekki nógu spennandi út og virkar ekki heillandi. Spurningin sem ég er oftast spurður að þeg- ar dómarastarfið er til umræðu er hvernig ég þoli að láta drulla yfir mig í 90 mínútur? Fólk heldur að það sé dómgæsla í hnotskurn, að glíma við stöðugan fúkyrða- flaum á meðan leik stendur en það er eins langt frá veruleikanum og það verður,“ segir hann. Mannleg samskipti og leikstjórnun „Dómgæsla snýst fyrst og síðast um mannleg samskipti og leik- stjórnun. Þetta snýst um að hafa samskipti við hóp af fólki, 22 leik- menn, tvo þjálfara og varamanna- bekki beggja liða. Áskorun dómar- ans felst í því að halda einbeitingu og reyna að taka réttar ákvarðanir á sama tíma og allir eru að reyna að hafa áhrif á mann sjálfan. Ég tel að lykillinn að því að gera vel í dóm- gæslu séu heilbrigð mannleg sam- skipti og að vera trúr sjálfum sér,“ útskýrir hann en bætir því við að fyrst og fremst sé skemmtilegt að fást við dómgæslu. „Flestir sem ná að komast yfir þann hjall að dæma nokkra leiki og komast á þann stað að hafa gaman af þessu líta aldrei til baka. Þá er ekki aftur snúið,“ segir Ívar Orri Kristjánsson knatt- spyrnudómari að endingu. kgk „Dómgæsla snýst fyrst og síðast um mannleg samskipti“ - segir Ívar Orri Kristjánsson alþjóðaknattspyrnudómari Ívar Orri Kristjánsson í þann mund að ganga inn á Laugardalsvöll til að dæma bikarúrslitaleik ásamt aðstoðardómurum leiksins. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Útsendingar Jólaútvarps Grunnskóla Snæfellsbæjar hófust í gærmorgun, þriðjudaginn 12. desember og munu útsendingar standa yfir fram á laug- ardagskvöld. Undirbúningurinn á sér þó nokkurn aðdraganda, því síðustu vikur hafa yngri bekkir skólans unnið hörðum höndum að því að taka upp sína þætti í stúdíói. Eldri krakkarn- ir verða hins vegar í beinni útsend- ingu. „Þetta hefur verið þónokkur vinna en engu að síður gengið vel að undirbúa útsendingarnar og taka upp. Krakkarnir í 1. til 7. bekk hafa gert bekkjarþætti sem eru teknir upp fyrirfram, en 8. til 10. bekkur flytur sína þætti í beinni útsendingu eft- ir handriti sem krakkarnir hafa sjálf- ir skrifað,“ segir Margrét Lára Guð- mundsdóttir kennari í samtali við Skessuhorn. Hún hefur haldið utan um undirbúning útvarpsútsendinga með krökkunum og verið þeim inn- an handar. Fjölbreytt dagskrá Handritsgerð er unnin sem verk- efni í íslensku og gera allir krakk- arnir handrit, hvort sem þeir vilja fara með þau í útvarpið eða ekki. Krakkarnir hafa val um að vera með í útsendingum en flestir hafa valið að taka þátt „Þátttakan er mjög góð, við erum með fimm þætti úr hverjum ár- gangi og flestir úr hverjum bekk vilja vera með,“ segir hún. Fyrir vikið eru efnistök þáttanna eins mismunandi og þættirnir eru margir og dagskrá- in afar fjölbreytt. „Núna er til dæm- is verið að taka viðtal við bæjarstjór- ann um pólitík, í beinni útsendingu,“ nefnir Margrét sem dæmi þegar hún ræðir við blaðamann. „Síðan má nefna brandaraþátt, sem saman- stendur eingöngu af bröndurum og tónlist, ég held það verði skemmti- legt að hlusta á það. Þá verða flutt- ar jólasögur og svo er þáttur tveggja stúlkna í 8. bekk sem tóku viðtöl við fólk frá ýmsum löndum um jóla- hefðir, þar af verður eitt viðtalanna í beinni útsendingu,“ segir hún en tekur fram að þetta sé aðeins brot af efni útvarpsins að þessu sinni. Útvarpsstjörnur framtíðarinnar Þetta er í annað sinn sem krakkarn- ir í Grunnskóla Snæfellsbæjar bregða sér í hlutverk dagskrárgerðarmanna í desember og standa að útvarpsút- sendingum. „Ég vona að þetta verði fastur liður og ætlun okkar er að reyna að halda þessu við. Þetta er skemmtilegt og gaman að sjá krakk- ana spreyta sig á öðruvísi vinnu og blómstra í útvarpinu,“ segir Mar- grét og er ekki í vafa um að í hópn- um leynist útvarpsstjörnur framtíð- arinnar. Hlusta má á útsendingu Jólaút- varps Grunnskóla Snæfellsbæjar á tíðninni FM 103,5. Auk þess er að finna hlekk á heimasíðu skólans, www.gsnb.is, fyrir þá sem vilja hlíða á krakkana í tölvu eða snjalltækjum. kgk/ Ljósm. af Facebook-síðu Jó- laútvarps GSNB. Jólaútvarp GSNB ómar í vikunni Krakkarnir í 1. bekk mættir í stúdíóið.Anel, Björg Eva, Laufey, Sædís og Aldís við upptökur á dögunum. Sylvía og Marta tóku upp tvö lög sem flutt verða í útvarpinu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.