Hlynur - 15.12.1957, Blaðsíða 2

Hlynur - 15.12.1957, Blaðsíða 2
Ljósmyndarafélag SIS L j ósmy ndaraf élagið (svonef n dur ljósmyndaklúbbur) er nú komið vel af stað. Það hefir látið útbúa sérstakan ljósmyndaklefa í kjallara Sambands- lnissins. Þar eru tæki til framkölluncr, og stækkunar og sér félagið um nauð- synlegt efni, bæði framkallara og fixer. Þá hefir félagið hug á að annast innkaup á filmum og ljósmyndapappír fyrir félagsmenn, og annast Kristín Þór pantanir frá fékgsmönnum á þessum vörum. Stjórn félagsins hefir haft samráð við þá sem vanir eru myndavinnslu um, að þeir leiðbeini byrjendum eftir því sem tck eru á. Geta byrjendur einnig snúið sér til Kristínar Þór, sem mun útvega þeim leiðbeinanda. Fyrir- komulag og tækjaútbúnaður er slíkur, að stjórn félagsins vonast til að menn geti komizt í ljósmyndaklefcnn með stuttum fyrirvara. , Full ástæða er til að fagna hinni á- gætu aðstöðu, sem félagið hefir kom- ið sér upp í samráði við forráðamenn SIS. Ljósmyndagerð er að verða hér á landi, sem annars staðar, ein vinsæl- asta skemmtun fólks. Með góðri að- stöðu og leiðbeinendum er þess að vænta, að mikill árangur náist hjá starfsfólki Sambandsins á þessu sviði. Fyrir nokkru síðan efndi félagið til skuggamyndasýningar og var öllum starfsmönnum heimill aðgangur. Að- sókn var ágæt og ríkti mikil ánægja með sýninguna. Þcð var Baldur Tryggvason, sem sýndi skuggamynd- irnar og hafði hann tekið þær í sum- arleyfi sínu. Skýrði hann myndirnar og lýsti ferðalaginu um leið og tókst honum hvorutveggja prýðilega. Þessi sýning, sem þó var aðeins til- raun, gefur til kynna inn á hvaða brautir hægt er að fcra með starfsemi ljósmyndarafélags. Stcrfsemi Ijósmynd- arafélags getur bæði verið til hinnar mestu skemmtunar og fræðslu. Á tuttugu ára afmæli sínu barst Starfsmannafélagi SIS eftirfarandi heillaskeyti frá Starfsmannafélagi KEA: Hlýðið þið kveðju og bæn um blessun meiri bræðra og systra norðan af Akureyri. Lifið þið heil og lífsins gleði njótið í leik og starfi sanna gleði hljótið. Vaxi’ ykkur sigrar á sérhverja lund í sókninni, starfsbræður góðir. Vaxi’ ykkur ásmegin, vaxi’ ykkar pund, vaxi ykkar fjármunasjóðir. Ekki er vitað um höfundinn, en það er ekki að því að spyrja með Norðlend- inga. Þeir eru allir menn hagmæltir og eiga létt með að láta vísur og kvæði fljúga. Ekki hefir Starfsmannafélag SIS beðið HLYN fyrir svar- og þakkar- kvæði, en það skal tekið fram að því yrði fúslega veitt móttaka. 2 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.