Hlynur - 15.12.1957, Síða 13
komið. Jú, ég get sagt þér það, en þú
verður að steinþegja yfir því.
Hvort ég skal.
Jæja, þannig er mál með vexti, að fyr-
ir nokkrum árum vorum við Guðni uppi
í Hengli og vorum þá með sleðann, sem
þú sérð að er ofan á henni Soffíu
þarna á myndinni. Sleðann höfðum við
smíðað en ekki gefið honum neitt nafn.
Nú ber svo til, að í Hengli eru nokkrir
skátaskálar, sem allir hafa sinn úti-
kamar, og heita þeir allir einhverju
nafni. Einn þeirra hét Soffía. Við urð-
um hrifnir af nafninu og gáfum sleð-
anum ])að. Þetta hefir verið hinn mesti
happasleði, og virðist nafnið hafa fært
honum ekkert nema allt hið bezta.
Þegar við fórum okkar fyrstu ferð á
bílnum, var Soffía auðvitað tekin með,
og fylgir hún með í öllum okkar ferð-
um. Þótti okkur því vel sæma að færa
nafnið yfir á bílinn einnig, og varð það
af. Henrik Aunio, sem hér var einu
sinni auglýsingateiknari, málaði síðan
nafnið framan á Soffíu og sómir það
sér ágæta vel. Soffía hefir lengi þjónað
okkur vel, því sleðinn var búinn að
renna með okkur um fjöll og firnindi í
tvö ár, áður en bíllinn kom til sögunn-
ar. Föðurnafnið fékk hún frá Bjarna í
Túni.
HLYNUR 13