Hlynur - 15.12.1957, Page 14
Hvert var nú svo farið í sumar, og
hvernig búið þið ykkur út í ferðalögin?
Fyrsta ferðin var farin á hvítasunn-
unni inn í Landmannaafrétt, það var
3ja daga ferð. I sumar höfum við svo
farið að Hvalvatni, Veiðivötnum, Surts-
hellir, inn á Kjöl og í Kerlingafjölk
inn í Þjórsárver og niður með Þjórsá
að norðan, upp með henni að sunnan
og síðan Fjallabaksveg niður í Skaftár-
tungur. Þetta er hægt að segja í fáum
orðum, en það tekur lengri tíma að fara
þetta og maður situr ekki alltaf lóð-
réttur í stólnum eins og hér. A Fjalla-
baksveg eru brekkurnar sumar t. d. svo
brattar, að ýmist liggur maður á bak-
inu í bílsætinu, eða þá stendur á gólf-
inu og spyrnir á móti stýrinu, þegar
farið er niður. Aldrei kom neitt fyrir,
nei, nei, síður en svo. Það bilaði einu
sinni viftureim, en annað var það nú
ekki. Utbúnaður, hann var af ýmsu
tagi, og bíllinn hefði sannarlega ekki
mátt minni vera til þess að innbyrða
það allt. Það voru bæði suðuáhöld,
tjöld, benzín, matvæli, skólfur og hak-
ar, gúmmíbátur, kaðlar, vírar og flug-
vallajárn, til þess að skjóta undir hjól-
in ef Soffía festist. Þess utan veiði-
stangir, rifflar, útvörp, myndavélar og
svo var með okkur hitt og þetta fólk,
sem þyrsti í ævintýrin eins og okkur.
Hvað er þér minnisstæðast úr ferð-
unum?
Þetta var allt saman hvað öðru
skemmtilegra og engin leið að draga
þar nokkur mörk á milli. Utsýn af
Kerlingafjöllum til Vatnajökuls er t. d.
óviðjafnanlegt. Það er líka óvanalegt
að liggja í tjöldum upp við Hofsjökul
og hlusta á gaggið í tófunum og kvakið
í öndunum, þegar svefn sígur á brá.
Okkur brá líka talsvert einu sinni, það
var liðin vika án þess að við sæjum
nokkurn mann, hvítan eður svartan, þá
er það einn morguninn að boðið er
góðan daginn utan dyra. Þar var þá
kominn Sigurjón Rist og tveir aðrir
vatnsmælingamenn. Áttum við á eng-
um von og urðum við dálítið hlessa.
Hvað bíður svo Soffíu nú er vetrar?
Hún fær enga hvíld. Við förum upp
til fjalla á skíði og auðvitað verður hin
upprunalega Soffía þá með. Það er unun
að renna sér á henni niður hlíðarnar.
Að sumri er áætlað að fara Sprenei-
sand og Odáðahraun og koma niður hjá
Grímsstöðum á Fjöllum. Munum að
öllum líkindum fara niður á Firðina,
ef allt gengur að óskum.
Eldamennskan, hvernie er með hana?
Við höfum eldað í tjaldi, en í vetur
er ráSgert aS byggja yfir allan bllinn
og innrétta þar sérstakt eldhús. Teikn-
14 HLYNUR