Hlynur - 15.06.1975, Qupperneq 5
undirbúningsnefndar og létu þá
sumir nefndarmanna eldhúsgólfið
duga sem legubekk.
Eftir hádegi á föstudag var ekið
til Borgarness og Kf. Borgfirðinga
skoðað og boðið til kaffisamsætis
af hálfu kaupfélagsins. Síðan ók
Ólfur Sverrisson kf.stj. með þátt-
takendum um kaupstaðinn og
kynnti starfsemi kaupfélagsins og
fór síðan með hópnum að Borg,
þar sem sr. Leó Júlíusson sagði
frá kappanum Agli og afrekum
hans og gerðu menn góðan róm að
máli hans. Síðan var ekið í Bif-
röst og var þar dvalið til mánu-
dagsmorguns við góðan aðbúnað
Guðmundar Arnaldssonar og starfs-
liðs hans og var aðdáunarvert hvað
hið fámenna starfslið gat gert gest-
um til þæginda og yndisauka. Á
laugardaginn var ekið á Snæfells-
nes en heldur voru veðurguðirnir
andsnúnir ferðafólkinu og utarlega
á nesinu var slagveður og rok eins
og það getur verst verið hér á
landi. Petta leiðinlega veður létu
þátttakendur þó ekkert á sig fá,
og var jafnvel að heyra á sumum
að þeir teldu sig ekki standa að
baki hinum fornu víkingum, þegar
þeir bjuggu sig út í rosann og rign-
inguna.
Sunnudeginum var eytt í göngu-
ferðir um nágrenni Bifrastar og
fundur haldinn í aðalráði KPA,
sem sagt er frá annars staðar í
blaðinu. Pessa tvo fyrstu daga var
Baldvin P. Kristjánsson leiðsögtl-
maður en síðari hluta ferðarinnar
tók Sigurður A. Magnússon við og
einnig var notið góðrar aðstoðar
Gunnlaugs P. Kristinssonar frá
Akureyri, sem líka var ánægður
að segja hvaðan hann væri af land-
inu. Þessum mönnum ber mikil
þökk fyrir snjalla leiðsögn og
skemmtilegan félagsskap.
A mánudeginum var ekið til Reyk-
holts, yfir Uxahryggi til Þingvalla
og síðan til samkomuhússins að
Minni-Borg, þar sem gist var í
svefnpokum og snætt gómsætt
hangikjöt frá Reykhúsi SlS. Næsta
dag var ekið að Skálholti og dóm-
kirkjan skoðuð og Gun. Krist-
insson settist þar við orgelið og
A Bifröst var setustofan vinsæl til skrafs yfir kaffibolla. Lengst til vinstri
er sú gamla kempa Baldvin P. Kristjánsson, þá Sveinbjörg Guðmunds-
dóttir, Reykjavík og Gun Kristinsson, Akureyri.
Fremst á þessari mynd eru norsku hjónin Bertba og Trygve Andreassen
og Marie Hammer Hansen til hægri.
Hér sjást fremst frá vinstri: H. C. Andersen og Ellen Petersen frá Dan-
mörku og þórunn Jónsdóttir frá Reykjavík.
HLYNUR 5