Hlynur - 15.06.1975, Page 6
Gun Kristinsson leikur á orgel
Skálholtskirkju. Stundin þar varð
öllum ógleymanleg.
töldu það margir eftirminnilegasta
atburð ferðarinnar, þegar „Hærra
minn guð til þín“ hljómaði um
hvelfingu kirkjunnar á fimm tungu-
málum og sólargeislarnir léku sér
á gólfinu gegnum steinda glugga
Gerðar Helgadóttur. Pví næst var
ekið upp í Pjórsárdal þar sem farið
var í sund og fannst hinum erlendu
þátttakendum það undrun sæta
að sjá heita uppsprettu leidda í
sundlaug í miðri auðninni. Pá var
þegið kaffi að félagsheimilinu í
Árnesi í boði KEA og síðan ekið
að Gullfossi og Geysi og loks að
Laugarvatni, þar sem gist var í
húsmæðraskólanum sem á sumrin
er rekið sem Eddu hótel. Hafði þá
veðrið heldur batnað og sennilega
verður þessi sumarnótt á Laugar-
vatni mörgum minnisstæð.
Að morgni var ekið til Selfoss,
Mjólkurbú Flóamanna skoðað und-
ir leiðsögn Gunnars Finnlaugsson-
ar rekstrarstjóra og síðan borið
fram skyr, sem hlaut góða dóma
hjá viðstöddum og mun hafa leynst
í mörgum pinkli, þegar haldið var
utan. Pá var garðyrkjuskólinn í
Hveragerði skoðaður og komið í
Eden og svo ekið til höfuðborg-
arinnar, Árbæjarsafnið skoðað og
síðan gistu gestirnir á einkaheim-
ilum og voru allir mjög hrifnir af
viðtökum gestgjafa sinna. Á
fimmtudaginn fóru margir til Vest-
mannaeyja og notuðu svo daginn
til verslunar. Um kvöldið var
snætt á Hótel Esju og um miðnætti
héldu gestirnir burt. Par með lauk
skemmtilegum og allt of stuttum
dögum, en sem betur fór var nótt-
in vel notuð líka og virtust menn
almennt hafa gleymt að svefnþörf
væri fyrir hendi.
Undir borðum á Laugarvatni af-
hentu gestir LÍS góðar gjafir: Dan-
ir útsaumaðan veggskjöld, sem ein
konan í hópi dönsku þátttakend-
anna hafði saumað, frá Norðmönn-
um kom bók með litmyndum frá
Noregi, Svíar gáfu veggskjöld, sem
gefinn var út í tilefni 50 ára af-
mælis Vár Gard og Finnar gáfu
fagran kertastjaka. Formaður LlS
tók á móti gjöfunum og færði gef-
endum bestu þakkir. Eftir heim-
komuna sendu Svíar öllum íslensku
þátttakendunum veggskjöldinn sem
að ofan greinir.
Hér hefur í stuttu máli verið
sagt frá dagskrá þessarar vináttu-
viku og mjög stiklað á stóru. En
það er enginn efi á því, að þeim
sem tóku þátt í þessari samkomu
norrænu þjóðanna fimm verður
hún minnisstæð.
Hvað var svo unnið? Pær radd-
ir heyrast oft, að lítið gagn sé í
orðskrúði og fagurgala stjórnmála-
manna þegar þeir hittast. Hins
Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri
í Borgarnesi og Ritva Jouhki, ís-
landi/Finnlandi.
Séra Leó Júlíusson segir sögur af
kappanum Agli og fleira frá Borg
og Borgarkirkju.
vegar verður að gera nokkurn
greinarmun á stjórnmálamönnum
og fólkinu. Pessi ferð sannaði það,
að þegar fólkið kemur saman er
ekki þörf á löngum ræðum og
orðskrúði. Hér talaði maður við
mann eins og gert er á hverju
heimili og hverjum vinnustað í
löndunum fimm og fólkið fann,
að það átti sameiginleg áhugamál
og hugsaði það sama. Og tungu-
málavandræði, hvað var nú það?
Norðurlandaþjóðirnar eiga að geta
skilið hverja aðra fyrirhafnarlítið,
enda sannaðist á þessari vináttu-
viku að Finnar og Islendingar áttu
jafn greiðan aðgang hvorir að öðr-
um og við aðra þátttakendur, eins
og þeir sem tala skyldari mál.
Pað er sorglegt til þess að vita,
að seldar skuli fyrir spottprís ferð-
ir til að velta sér á ströndum sól-
arlanda og þamba vín, sem hýru-
dregnir suðurlandabúar þurfa að
ausa í ofalda ferðamenn, en ferðir
til nágranna okkar á Norðurlönd-
um seldar á verði, sem margir
veigra sér við að greiða, þar sem
það er svo hátt. Úr þessu þarf að
bæta og því fyrr, því betra.
Pakkir skulu færðar þeim, sem
fyrir vináttuvikunni stóðu og þakk-
ir þeim, sem þátt tóku í skemmt-
un þessara daga. •
6 HLYNUR